:

Loftgæði í Reykjavík um áramótin

Flugeldar1

Styrkur svifryks (PM10) er iðulega hár í Reykjavík fyrstu klukkustund nýs árs og oft nýársnóttina alla ef veður er stillt. 1. janúar 2010 var til dæmis fyrsti svifryksdagur ársins. Líklegt er að styrkur svifryks muni lækka hratt á nýársnótt 2011 vegna austlægra vinda og spáðri úrkomu síðar um nóttina. „Það er því óljóst hvort styrkur svifryks fer yfir sólarhringsmörk þennan dag,“ segir Anna Rósa Böðvarsdóttir heilbrigðisfulltrúi hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á vefmæli Reykjavíkurborgar sem er tengdur mælistöð á Grensásvegi. Farstöð borgarinnar verður að þessu sinni staðsett í Blesugróf.

Svifryk fór á árinu 29 sinnum yfir sólarhrings heilsuverndarmörk í Reykjavík árið 2010 en mátti samkvæmt reglugerð fara sjö sinnum yfir mörkin. Í níu skipti er ástæðan rakin til öskufjúks frá Eyjafjallasvæðinu og fór styrkurinn hæst í um það bil 400 míkrógrömm á rúmmetra en heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50. Þetta er hæsta svifryksgildið á 21. öldinni í Reykjavík.

Flugeldar geta valdið háum styrk svifryks. Búist er við töluverðri sölu á flugeldum en heildarinnflutningur fyrir landið um þessi áramót var 510.024 kg sem er meira en í 2009 en þá voru uppgefnar tölur um 425 tonn. Töluvert magn af flugeldum er þegar til í landinu frá liðnu ári. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri þurfa að gæta sín þegar mest er skotið og styrkurinn hár.

Köfnunarefnisdíoxíð (NO2) fór tvisvar sinnum yfir heilsuverndarmörkin á sólarhring árið 2010 en mörkin eru 75 míkrógrömm á rúmmetrar. Leyfilegt er að fara sjö sinnum yfir heilsuverndarmörkin samkvæmt reglugerð. Brennisteinsvetni (H2S) fór tvisvar sinnum yfir heilsuverndarmörkin á sólarhring en mörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Leyfilegt er að fara fjórum sinnum yfir þau á ári.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með brennum og veitir starfsleyfi fyrir þeim. „Við skoðum allar brennur og göngum úr skugga um að þar sé ekkert efni sem ekki má brenna,“ segir Ólöf Vilbergsdóttir heilbrigðisfulltrúi og að hleðslan sé einnig metin og fjarlægð frá íbúðarhúsum. Ábyrgðarmanni brennu er skylt að sjá svo um að á brennur fari ekki óæskilegur eldsmatur.

Feikilegt magn af rusli hlýst af flugeldum. Umbúðirnar eru aðallega pappi sem fólk þarf að skila sjálft í endurvinnslustöðvar ásamt öðrum skotleifum. Flugelda má alls ekki setja í tunnur við heimili fólks.


nánar

Gunnar Hersveinn
31. desember 2010 23:45
Uppruni: Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur

Einkunn

Hirðing jólatrjáa í Reykjavík 2011

Endurunnið jólatré

Borgarbúar geta farið sjálfir með jólatrén sín endurgjaldslaust á endurvinnslustöð eða keypt þjónustuna hjá sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum. Sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré fremur en 2010. Flestir fara eina ferð um jólin á endurvinnslustöðvar Sorpu með ýmsar umbúðir, pakkningar utan um flugelda og annað sem til fellur. Jólatréð er eitt af því sem þarf að fara í endurvinnslu.

Nokkur íþróttafélög í Reykjavík munu á nýju ári bjóða borgarbúum upp á þá þjónustu að hirða jólatré að hátíðunum loknum. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan hafa t.a.m. samstarf um hirðingu jólatrjáa. Íslenska gámafélagið sækir jólatré á heimili og í fyrirtæki. Hægt er að panta hirðingu trjáa á netinu hjá fyrirtækjunum.

Grafík: Nýtt líf sprettur af endurunnu jólatré, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.


nánar

Gunnar Hersveinn
30. desember 2010 14:20
Uppruni: Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur

Einkunn

Nr. 80/2010 - Reglugerð um merkingar og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skrifað undir reglugerð um merkingar og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Samkvæmt reglugerðinni er matvæla- og fóðurfyrirtækjum gert skylt að merkja matvæli sem samanstanda eða innihalda erfðabreytt efni.

Markmið þessara reglna er að tryggja upplýst val neytenda við kaup á matvöru. Matvæla- og fóðurfyrirtækjum verður gert skylt að upplýsa eftirlitsaðila um feril vörunnar og innihald hennar.

Frestur til að uppfylla öll ákvæði reglugerðarinnar er til 1. ágúst 2011.

Ljósmynd: Frá undirskrift reglugerðar um merkingar og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Á myndinni eru auk ráðherra þau f.v. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir aðstoðarmaður ráðherra, Baldur P. Erlingsson lögfræðingur í ráðuneytinu og Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri.


nánar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
30. desember 2010 08:40
Uppruni: Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

Einkunn

Auglýsingaverðlisti

Ein mikilvægasta fjáröflunarleið Náttúran.is eru birtingar auglýsinga fyrir fyrirtæki sem hafa eitthvað fram að færa í sambandi við umhverfisvænar vörur og þjónustu hér á landi. Ágóðinn af auglýsingasölunni gerir okkur kleift að veita stöðuga og ókeypis umhverfisfræðslu fyrir alla.

Með því að birta auglýsingar hér á vefnum ná fyrirtæki beinu sambandi við markhóp sem er að leita eftir upplýsingum og lausnum í græna kantinum. Heimsóknir á vefinn eru mældar á modernus.is.

Sjá hverjir hafa styrkt okkur með auglýsingum til þessa.

Sjá verð á auglýsingabirtingum hér að neðan:

A - hauskubbur- 300 x 75 p.

1 mánaðar birting 160.000*
3 mánaða birting m. 10% afsl. 432.000*
6 mánaða birting m. 20% afsl. 768.000*
9 mánaða birting m. 30% afsl. 980.000*
12 mánaða birting m. 40% afsl. 1.150.000*

B - hliðarkubbur - 150 x 150 p.

1 mánaðar birting 120.000*
3 mánaða birting m. 10% afsl. 324.000*
6 mánaða birting m. 20% afsl. 576.000*
9 mánaða birting m. 30% afsl. 756.000*
12 mánaða birting m. 40% afsl. 864.000*

C eða D - hliðarkubbur - 150 x 75 p.

1 mánaðar birting 60.000*
3 mánaða birting m. 10% afsl. 162.000*
6 mánaða birting m. 20% afsl. 288.000*
9 mánaða birting m. 30% afsl. 378.000*
12 mánaða birting m. 40% afsl. 432.000*

E+ - hliðarkubbur - 150 x 75 p. (birtist að hluta eða alveg við skrun á minnstu fartölvuskjáum)

1 mánaðar birting 35.000*
3 mánaða birting m. 10% afsl. 94.500*
6 mánaða birting m. 20% afsl. 168.000*
9 mánaða birting m. 30% afsl. 220.000*
12 mánaða birting m. 40% afsl. 252.000*

F - kubbur fyrir vörur á Náttúrumarkaði - vöruskráningu fylgir auglýsingabirting í slembivali

Verð á 12 mánaða skráningu vöru á Náttúrumarkað:

1 - 3 vörur - skráning á vöru (til sölu) 4.900*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 9.800*
4 - 10 vörur - skráning á vöru (til sölu) 3.920*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.840*
11 vörur eða fl. - skráning á vöru (til sölu) 3.330*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.600*

G - hliðarkubbur - 300 x 150 p. (birtist við skrun)

1 mánaðar birting 120.000*
3 mánaða birting m. 10% afsl. 324.000*
6 mánaða birting m. 20% afsl. 576.000*
9 mánaða birting m. 30% afsl. 756.000*
12 mánaða birting m. 40% afsl. 864.000*

*Öll verð í íslenskum krónum, án vsk. Auglýsing birtist á forsíðu og öllum undirsíðum sem og á hinum mism. málum; natturan.is, nature.is, natur.is (ísl. ensku og þýsku). Í öllum tilfellum er miðað við sexfalda róteringu, þ.e. allt að sex auglýsingar geta skiptst á plássinu. 50% afsláttur af framlengingu vöruskráningar eftir fyrsta árið.

Allar nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra Guðrúnu A. Tryggvadóttur gunna@nature.is sími: 483 1500, gsm: 863 5490.


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. desember 2010 00:14
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Gulir blettir sökum dropa

Baðkar

Gula bletti sem stafa af lekum vatnskrönum, er hægt að fjarlægja með blöndu af ediki og salti í jöfnum hlutföllum. Blandan er látin liggja áður en hún er skoluð af.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Siiri Lomb
29. desember 2010 20:01
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

1234129130131

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá: