Náttúruspilin

Orka - Rafmagnstæki

Rafmagnstækjum fjölgar sífellt á heimilum landsins. Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.


Heimild: Orkusetur. Grafik: Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is




Einkunn

Flokkar:

Orð í belg

Baldvin - fimmtudagur 2. apríl, 2009 klukkan 22:27:39

Það mætti nú alveg rökstyðja þetta með rannsóknum.
Ég heyri þessa goðsögn jafn oft og ég heyri að biðstöðunotkun sé hverfandi lítil.
Vilji fólk virkilega spara rafmagn og peninga þá er aðalatriðið að skipta öllum perum yfir í sparperur, þar sem það er hægt, sérstaklega þær sem lengi er kveikt á.
Það er mjög einfalt mál að gera rannsókn á þessu eða finna niðurstöður rannsókna og rökstyðja sitt mál.

Baldvin Björgvinsson Raffræðingur

Guðrún Tryggvadóttir - fimmtudagur 2. apríl, 2009 klukkan 23:05:18

Að sjálfsögðu eru rannsóknir á bak við þessar fullyrðingar, í þessu tilviki koma þær frá Sigurði Inga Friðleifssyni á Orkusetri. Hvað varðar sparperur þá höfum við einnig upplýsingar, studdar rannsóknum, um orkusparnað sem notkun sparpera myndi fela í sér. Um það fjallar þessi greinarstúfur þó ekki, það er gert á öðrum stöðum á vefnum. Prufaðu að slá inn leitarorðið „sparperur“ í leitarreitinn hér eftsti á síðunni. Allt sem á þessum vef er sett fram sem fræðsluefni hefur verið margprufað af fagaðilum á hverju sviði. Við erum þó ekki að birta rannsóknarniðurstöður hverrar fullyrðingar, enda stefnum við fyrst og fremst að því að uppfræða á skýran og myndrænan hátt þannig að fólk sé einhverju nær um hvernig ákvarðanir í daglegu lífi snerti umhverfi, heilsu og fjárhag.

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Leit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Bílskúrinn: Raftæki [29]

Náttúrumarkaður: Heimilistæki [9]

Orka: Rafmagn [58]

Orka: Rafmagn [17]

Tækni: Orka og eldsneyti [167]

Umhverfið: Orka [194]

Umhverfið: Vistvæn húsráð [85]

Grænar síður:

Orka: Rafmagn [55]

Orka: Rafmagn [49]

Tækni: Orka og eldsneyti [27]

Umhverfið: Orka [70]

Nýleg orð í belg

Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
Sömu gömlu aðferðirnar. Fjárfesta áður en leyfi er fengið. Leyfi sem mun ekki fást þar ...
Gunna Tryggva 29. 07. 2010 08:22:
Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
Skoðanakönnun Capacent/Gallup leiðir í ljós að 85% eru á móti því og 60% mjög mikið ...
Guðrún Tryggvadóttir 28. 07. 2010 23:49:
Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
„Lausn komin á Magma-málið segir á visir.is“ reyndar bara tilkynning um að tilkynna eigi um ...
Guðrún Tryggvadóttir 27. 07. 2010 15:08:
Litlu álfaspáspilin
Þetta eru alveg ótrúlega skemmtileg spil. Ég á stokk sjálf og finnst gott að grípa ...
Guðrún 26. 07. 2010 22:54:
Björk og Ross Beaty skrifast á
Magma's Corporate Profile: „Since inception in early 2008 we have acquired one operating power plant ...
Guðrún Tryggvadóttir 24. 07. 2010 13:16:
Björk og Ross Beaty skrifast á
VG með kröfu um riftun Magma-samningsins – Samfylkingin áminnt: http://eyjan.is/2010/07/24/vg-med-krofu-um-riftun-magma-samningsins-samfylkingin-ihugi-sina-stodu/
Guðrún Tryggvadóttir 24. 07. 2010 11:24:
VG krefst frestunar allra framkvæmda í stóriðju
Það stóð aldrei til að samsteypustjórn Vinstri Grænna og Samfylkingarinnar gerði eitthvað gagnlegt í orkumálum ...
Ásgeir Valur Sigurðsson 23. 07. 2010 17:24:
Vefurinn orkuaudlindir.is liggur niðri af ókunnum orsökum
Orkuaudlindir.is er aftur kominn í loftið!
Guðrún Tryggvadóttir 23. 07. 2010 16:02: