Fréttir
Hvernig versla ég á Náttúrumarkaðinum?

Náttúrumarkaðurinn er vefverslun með náttúrlegar og vottaðar vörur, og er byggður upp eins og markaður með mörgum deildum. Þú velur deild eða sérverslun „Deildir“ sem þú vilt skoða vöruúrvalið í og getur síðan farið úr einni deild í aðra hvenær sem er þvi deildirnar eru alltaf sýnilegar hér til hægri á síðunni. Þú getur einnig leitað eftir vöru eftir leitarorðum með því að slá orðið inn í leitarvélina hjá Voffa „Leita“ hér til hægri á síðunni eða leitað í „Vöruleit“ flipanum hér til hægri en þar getur þú þrengt leitina eftir framleiðanda merki eða vottun.
Að setja í körfu og fylgjast með kostnaði:

Þegar þú ert búin að tína til vörur í körfuna getur þú alltaf fylgst með hvað er komið í körfuna með því að opna körfuflipann „Karfa“. Ef þú færir bendilinn síðan yfir vöruheitið birtist ljósmynd af vörunni. Þannig getur þú stöðugt fylgst með því hvað þú hefur sett í körfuna.
Þú fylgist með sendingarkostnaði á línunni með bögglinum. Línan táknar eitt kíló, brúni liturinn er þyngd pakkans sem þú hefur þegar tekið til og græni liturinn er sú þyngd sem enn er ónýtt af einu kílói fyrir sama flutningskostnað*.
Þú sérð bæði vöruverðið, VSK-hlutann og sendingarkostnaðinn. Þegar þú verslar á Náttúrumarkaði ert þú alltaf að greiða „allt“ komið heim að dyrum.
Síðan þegar þú hefur ákveðið hvað þú kaupir smellir þú á „Skoða körfu nánar og kaupa“. Ef þú ert sátt/ur við það ferðu á greiðslusíðu.
Að ganga frá greiðslu fyrir böggulinn og heimsendinguna:

Eftir að smellt er á „Fara á greiðslusíðu“ kemur síða þar sem skrá þarf viðtakanda vörunnar og kennitölu þess sem fær reikninginn. Þegar þeirri útfyllingu er lokið er smellt á „Greiða“. Við það getur komið lítill gluggi sem tilkynnir að farið sé á annan vefþjón.
Þá er farið á vef Kortaþjónustunnar ehf. þar sem kortaupplýsingar eru gefnar upp og gengið frá greiðslu. Þú greiðir með greiðslukorti (Visa, Mastercard) og kortanúmerið er aðeins gefið upp gagnvart Kortaþjónustunni ehf. Þú getur einnig valið að greiða með millifærslu í banka. Sjá einnig „Skilmálar“ .
Ef pantað er fyrir kl 12:00 á hádegi berst böggullinn að jafnaði næsta virka dag en ef pantað er eftir kl 12:00 á hádegi berst böggullinn í allflestum tilvikum þarnæsta virka dag**.
*Flutningskostnaður miðast við verðskrá Póstsins (Íslandspósts) en sendingar innanlands eru jafnaðar milli landshluta á Náttúrumarkaði svo allir sitji við sama borð.
**Þ.e. ef böggullinn á að berast til móttakanda innanlands.
Einkunn
- - - -
Orð í belg
Tengt lesefni:
: Náttúrumarkaður [4]
Grænar síður:

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:
















Þorbjörg Hilbertsdóttir - fimmtudagur 23. september, 2010 klukkan 11:50:24
Sæl verið þið.
Ég er að reyna að kaupa prinsessu óróann, en mér tekst ekki að koma þessu í körfuna. Gefst upp í bili!! Fara kaupin aðeins fram á netinu? Hvað gerist ef þetta tækist og varan er ekki til? Ég myndi óska að greiða í gegnum Einkabankann ef út í það færi.
Það væri gott að heyra frá ykkur.
Kær kveðja
Þorbjörg
Guðrún Tryggvadóttir - fimmtudagur 23. september, 2010 klukkan 15:54:25
Sæl Þorbjörg. Við leysum úr þessu. Viltu gefa mér upp netfangið þitt eða senda mér netpóst á nature@nature.is svo við getum reddað þessu með óróann. Kv. G.T.
Berglind Helga Bergsdóttir - sunnudagur 9. janúar, 2011 klukkan 12:29:24
Góðan dag, mig langar að kaupa hjá ykkur lumie lampa og mér tekst að setja hann í körfu en ekki borga fyrir hann. þegar ég ýti á view cart and buy koma upp villuskilaboð...
Guðrún Tryggvadóttir - sunnudagur 9. janúar, 2011 klukkan 12:40:25
Sæl Berglind. Lumie Gæða-Lífsklukkan er uppseld. Þess vegna er ekki hægt að kaupa hana. Lumie Barna-Lífsklukkan og Lumie Útvarps-lífsklukkan eru til í takmörkuðu upplagi. Hvaða klukku varst þú að hugsa um að kaupa?
Berglind Helga Bergsdóttir - sunnudagur 9. janúar, 2011 klukkan 14:12:05
Ég var að hugsa um Lumie Útvarps lífsklukkuna, mætti ég borga í gegnum heimabanka?
Guðrún Tryggvadóttir - sunnudagur 9. janúar, 2011 klukkan 14:17:23
Já að sjálfsögðu. Getur þú sent mér netpóst á nature@nature.is með nauðsynlegum upplýsingum þ.e. nafn, kt., og við göngum frá þessu þannig að þú fáir klukkuna senda strax á morgun.