Fréttir
Geysir Green Energy og REI sameinuð
Stjórnir REI (Reykjavík Energy Invest) og Geysis Green Energy hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna undir merkjum hins fyrrnefnda. Við sameininguna verður til.Með sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy er REI orðið leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í fjárfestingum og þróun á sviði jarðvarma og eitt öflugasta fyrirtæki heims, bæði í rafmagnsframleiðslu og rekstri hitaveitna. Félögin hafa lagt áherslu á uppbyggingu viðskiptasambanda og fjárfestinga erlendis og eftir sameiningu eru mörg leiðandi fyrirtæki á sviði jarðvarma innan vébanda félagsins:
- 100% eignarhlutur í Jarðborunum, einu fremsta fyrirtæki veraldar í nýtingu jarðvarma og borana, sem var áður í eigu Geysis Green Energy.
- 48% eignarhlutur í Hitaveitu Suðurnesja, sem er samanlagður hlutur beggja félaganna.
- 70% eignarhlutur í Enex, sem vinnur að þróun jarðvarmaverkefna víðsvegar um heiminn, sem er samanlagður hlutur beggja aðila.
- 66% eignarhlutur í Enex Kína sem vinnur að þróun hitaveitna í Kína.
- 20% eignarhlutur í Western GeoPower í Kanada sem vinnur að þróun tveggja jarðvarmavirkjana í Bandaríkjunum. Þessi hlutur var áður í eigu Geysis Green Energy.
- 46% hlutur í Exorku International, sem vinnur að byggingu jarðvarmaorkuvera sem nýta svo kallaða Kalina-tækni til raforkuvinnslu. Þessi hlutur var áður í eigu Geysis Green Energy.
Til þessa hafa félögin verið í góðu samstarfi erlendis og með sameiningu mun bæði skapast aukinn slagkraftur og frekari sóknarfæri í Evrópu, Ameríku og Asíu. Áfram verður unnið náið með Orkuveitu Reykjavíkur í erlendum verkefnum félagsins. Samkomulag er á milli aðila um að einkaleyfisbundin starfsemi Hitaveitu Suðurnesja (veitukerfi sveitarfélaga) verði í meirihlutaeigu Reykjanesbæjar.
Eftir sameiningu félaganna verður heildarhlutafé rúmir 40 milljarðar króna og helstu eigendur verða:- Orkuveita Reykjavíkur 35,5%
- FL Group, 27%
- Atorka Group 20,1%
- Gitnir banki 6,2%
- Goldman-Sachs og Ólafur Jóhann Ólafsson 2,9%
- VGK-Hönnun 2,2%
- Aðrir 6,1%
Stjórnarformaður félagsins verður Bjarni Ármannsson og forstjórar félagsins verða Guðmundur Þóroddsson og Ásgeir Margeirsson. Sameinað félag verður vel í stakk búið til að mæta erlendri samkeppni og skipa sér í fremstu röð á sínu sviði og er verkefnastaða sameinaðs félags og tengdra félaga góð. Fyrirsjáanleg eru verkefni um byggingu og kaup um 700 megawatta raforkuvinnslu sem ná m.a. til Bandaríkjanna, Filippseyja, Grikklands, Indónesíu, Þýskalands og Eþíópíu. Framtíðarmarkmið félagsins er að framleiða 3-4.000 megavött fyrir lok árs 2009.
Með sameiningu fyrirtækjanna verður til leiðandi fyrirtæki sem hefur burði til að halda varanlegri forystu í nýtingu jarðhita í heiminum. Íslensk þekking og nýting íslensks hugvits er grunnurinn að framtíðarvexti fyrirtækisins. Með því að fjárfesta í vexti þessarar atvinnugreinar teljum við að fjárfestingarnar eigi að geta orðið arðbærar og stuðlað að vistvænni veröld. Í dag er því horft til margra kosta við öflun orku. Jarðvarmi er hagkvæm og umhverfisvæn leið til að framleiða orku. Einungis lítið brot jarðhita í heiminum hefur þegar verið nýtt. Stjórn og starfsfólk REI er stolt að eiga aðild að því að nýta slík tækifæri í framtíðinni.
Það er ánægjulegt að taka þátt í að móta jafn öflugt félag og Reykjavik Energy Invest er eftir sameiningu. Við sjáum mikil sóknarfæri á alþjóðavettfangi og sú mikla þekking sem skapast hefur innan félaganna mun nýtast vel í framgangi þess á næstu árum. Fjárfestar hafa verið að sýna verkefnum sem þessum aukinn áhuga og aðkoma FL Group að þessu nýja félagier í samræmi við okkar fjárfestingarstefnu.“
Glitnir er ráðgjafi Geysis Green Energy í sameiningarferlinu.
Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest og Hannes Smárason, stjórnarformaður í Geysi Green Energy og forstjóri FL Group, munu kynna samruna félaganna á fjárfestafundi FL Group í London á morgun, fimmtudaginn 4.október. Efni frá kynningarfundinum verður gert aðgengilegt á heimasíðu félagsins, www.flgroup.is.
Stjórn Reykjavik Energy Invest barst erindi frá Starfsmannafélagi Orkuveitu Reykjavíkur í byrjun september þar sem þess var farið á leit að starfsfólki Orkuveitunnar gæfist kostur á að kaupa hlut í Reykjavik Energy Invest. Í gær var starfsfólki OR gerð grein fyrir tilboði um kaup á hlut í félaginu. Það felur í sér að starfsmenn geta skráð sig fyrir kaupum á 100, 200 eða 300 þúsund króna hlutum að nafnvirði á genginu 1,3.
Reykjavik Energy Invest (REI) er fjárfestingar og viðskiptaþróunararmur Orkuveitu Reykjavíkur á alþjóðavettvangi. REI er stofnað í mars 2007 og er í 93% eigu Orkuveitunnar. REI er fjölþjóðlegt fjárfestingar og viðskiptaþróunarfélag sem einbeitir sér að fjárfestingu í jarðvarmavirkjunum, jarðvarmaveitum og grunnuppbyggingu í verkefnum þar sem tækifæri eru í nýtingu endurnýjanlegrar orku úr jarðvarma.
Geysir Green Energy var stofnað í janúar á þessu ári af FL Group, Glitni og VGH hönnun. Félagið hefur unnið að fjölmörgum jarðhitaverkefnum á liðnum mánuðum og hefur m.a. eignast Jarðboranir, 32% hlut í Hitaveitu Suðurnesja og fjárfest í jarðhitafélögum í Kanada, Þýskalandi og á Filippseyjum. Höfuðstöðvar Geysis eru í Reykjanesbæ.
3. okt. 2007 23:11
Uppruni: Orkuveita Reykjavíkur
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Orka
- Umhverfið
- - - -
Orð í belg
Tengt lesefni:
Orka: Endurnýjanleg [55]
Umhverfið: Alþjóðleg umhverfismál [346]
Umhverfið: Orka [232]
: Fyrirtæki [6]
Grænar síður:
Endurnýjanleg [64]
Orka [73]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 01:00Meira

Ábending frá veðurfræðingi
Kröpp lægð fer norðaustur yfir vestanvert landið í kvöld. Talsverð hríðarmugga verður um landið norðvestanvert frá því síðdegi og fram á kvöldið, einkum á fjallvegum, en annars setur víða niður krapa þó svo að sunnan og suðaustantil verði hlýrra og með rigningu. Snýst í hvassa SV- og V-átt seint í kvöld og nótt, einkum á Vestfjörðum og Norðurlandi með kólnandi veðri og éljum. Gera má ráð fyrir einkar byljóttum vindi og miklum hviðum í skamma stund um og eftir miðnætti á Siglufjarðarvegi og við vestanverðan Eyjafjörð.Færð og aðstæður
Hálkublettir eru í Þrengslum og á Hellisheiði.Um vestanvert landið er snjóþekja á Holtavörðuheiði og nokkuð víða á Snæfellsnesi. Annars er orðið autt nokkuð víða en þó hálkublettir sumstaðar.
Þæfingsfærð og snjókoma er víða á norðanverðum Vestfjörðum en snjóþekja og snjókoma á Þröskuldum. Annars eru hálkublettir, þæfingur og einhver éljagangur nokkuð víða.
Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.
Austanlands er hálka eða hálkublettir á fjallvegum en meira og minna autt á láglendi.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nú víða um land.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/
















Guðrún Tryggvadóttir - föstudagur 5. október, 2007 klukkan 10:04:34
Sameiningin hefur ollið miklum deilum, bæði innan Sjálfstæðisflokksins og hjá minnihlutar stjórnar OR. Hvernig stendur á því að ekki var hægt að boða fundinn með 7 daga fyrirvara eins og samþykktir félagsins kveða á um. Hvað olli því að flýta þurfti sér svona mikið? Ætlaði einhver annar að gleypa Geysir Green á næstu dögum?
Ásta - föstudagur 5. október, 2007 klukkan 19:45:01
Nei - en einhver hefði getað áttað sig á að verið væri að einkavæða 4 milljarða eða hvað það nú er - Og nú eru sömu menn að tala upp gengið - eða vitiði um einhvern sem hefur boðið tvöfalt verð? Viðskiptavild Orkuveitunnar erlendis? hefur Orkuveitan starfað erlendis???
OG þessi mikla sérfræðiþekking? hver er hún? Fjórar jarðvarmavirkjanir??? en við erum fín í hitaveitu. Vill einhver ryfja upp sérfræðiþekkinguna frá Kröflu? Getur sú þjóð sem brátt verður í 2. ssæti á heimslistanum yfir losun CO2 á heimsvísu þrátt fyrir feikn af jarðvarma og vatnsorku - kennt öðrum þjóðum eitthvað annað en sóun?
Guðrún Tryggvadóttir - laugardagur 3. nóvember, 2007 klukkan 13:29:20
Samningur REI og Geysir Green Energy hefur verið ógiltur. Hvort það séu endalok málsins eða útrásarinnar er þó ekki ljóst. Þegar að hitna fór í kolunum v. sameiningarinnar ákvað Náttúran að sinna ekki daglegum fréttaflutningi af vettvangi sameiningarinnar og því uppþoti sem varð meðal þjóðarinnar og því ferli sem fór í gang þegar að samstarfsslit meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur olli myndun nýs meirihluta og nýr borgarstjóri tók við. Ef að við hefðum ætlað að sinna þeirri fréttamennsku af einhverri alvöru hefði ekkert annað gerst á vefnum á meðan, slík voru lætin. Satt að segja botna ég ennþá ekki í þvi hvernig stjórnmálaboltinn rúllar né hvaða öfl þar eru að verki.
Áhugi Náttúrunnar liggur fyrst og fremst í því að vera málsvari náttúrunnar sjálfrar og fólksins sem á allt undir henni komið en ekki pólitískra afla. Einkavæðing íslenskra orkulinda og orkufyrirtækja er að sjálfsögðu ekki ópólitískt mál en afstaða Náttúrunnar er sú að einkaframtakði sé alls ekki slæm í sjálfu sér og reyndar frábært (Náttúran.is er einkaframtak) en einkaaðilar hafa ekkert umboð tll að „einkavæða“ og taka yfir fyrirtæki í almenningseign, hvort sem það eru náttúruauðlindirnar sjálfar eða fyrirtæki sem vinna með afurðir náttúruauðlinda. Náttúruauðlindir eru eign allra landsmanna og okkur ber að varðveita þær og nota af skynsemi og yfirvegun eða varðveita ósnertar fyrir komandi kynslóðir þegar ekki er hægt að tryggja sjálfbæra, skynsama notkun.