Fréttir
Kaffi, te og krydd á Náttúrumarkaði

Kaffi, te og krydd eru þurrkaðar afurðir ýmissa jurta. Líkt og með lifandi plöntur gildir að ræktun sé sem hreinust og náttúrulegust til að tryggja gæði. Einnig ráðast gæðin af því hvernig þurrkun, geymsla og pökkun á sér stað.
Lífræn vottun eða umhverfisvottun snýst um allt ferlið frá framleiðslu til pökkunar og tryggir að hvergi hafa verið notuð skaðleg efni og að unnið sé með gæði og umhverfisvernd í huga, samkvæmt ströngum reglum. Stundum er rotvarnarefnum eða jafnvel MSG bætt í kryddblöndur til að auka bragð eða endingu. Því er mikilvægt að lesa vel um innihaldið.
Hér í deildinni eru skráðar allar upplýsingar sem koma fram á umbúðum vörunnar og upplýst sérstaklega um vottanir. Kaffi er framleitt með því að brenna baunir kaffiplöntunnar. Framleiðsla plöntunnar er eins og önnur ræktun ýmist með eða án tilbúinna efna, s.s. áburðar eða skordýraeiturs. Með því að kaupa lífrænt ræktað kaffi getur þú tryggt að þú sért ekki að menga líkama þinn eða umhverfið. Sanngirnisvottun tekur til bæði te- og kaffiframleiðslu og tryggir að fólkið sem framleiðir vöruna vinni við mannsæmandi aðstæður og kjör.
Öllum er velkomið að selja vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða kaffi, te og krydddeild Náttúrumarkaðarins.
Grafík: Tákn kaffi, te og krydddeildar Náttúrumarkaðarins, hönnun: Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran er ehf.
Einkunn
- Náttúrumarkaður
- Næring
- Umhverfið
Tengt lesefni:
Náttúrumarkaður: Kaffi, te og krydd [8]
Næring: Vörur [32]
Umhverfið: Innkaup og förgun [199]
Grænar síður:
Vörur [4]
Innkaup og förgun [2]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 01:00Meira

Nýleg orð í belg
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















