Fréttir
Að skrifa niður
Það er ekki einfalt að fylgjast með og halda skrá yfir ræktunina og árangur hennar, jafnvel þó fartölva sé við höndina. Það er nógu erfitt að gera töflu yfir sáðskiptingar í görðunum. Að ætla sér að skrá niður árangur af sáningu, spírun, vexti og uppskeru margra grænmetistegunda, sem jafnvel er sáð til oftar en einu sinni, er verulega flókið. Skást virðist mér að halda utan um hverja tegund fyrir sig og fylgja henni eftir. Miklu erfiðara að skrá eftir dögum og vikum. En jafnvel þó skráð sé nokkuð vandlega virðist erfitt að átta sig á því af hverju fræ spíra stundum frábærlega vel og stundum láti allt á sér standa. Þó hjálpar skráning til að fá einhverja hugmynd um við hverju má búast.
Spírunartími einstakra plantna er mjög misjafn. Veður spilar líka þarna inn í og margir trúa að tunglið geri það einnig. Sumar algengar tegundir spíra inni við góðar aðstæður á fjórum dögum en gulrætur úti geta tekið sér þrjár, fjórar vikur áður en fyrstu broddarnir sýni sig. Radísur og salat getur verið tilbúið til matar eftir sex vikur frá sáningu við góðar aðstæður.
Ljósmynd: Grænkál, Guðrún Tryggvadóttir.
Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.
Einkunn
- Bændadagatal
- Bækur
- Eldhúsgarðurinn
Tengt lesefni:
Bændadagatal: Vor og sumar [89]
Bækur: Heilsuhandbók [57]
Bækur: Jurtahandbók [61]
Eldhúsgarðurinn: Ræktun [74]
Grænar síður:
Bækur: Jurtahandbók [2]
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















