Fréttir
Garðurinn
Sumargrænmetið hefur sætari keim, bragðlaukarnir búnir að fá nóg af beiskjunni enda margt nýtt að finna. Sumarbragðið finnst á fyrstu fljótsprottnu kartöflunum sem dekrað var við og kannski spergilkálsplöntu eða gulrót, sem þarf að grisja. Svo koma baunir eða kúrbítur úr gróðurskála, tómatar og gúrkur, allt eftir því hverju hefur verið plantað á hverjum bæ. Salatið er fullsprottið og nú er þess árstíð. Fyrstu forræktuðu kartöflurnar fara að stinga upp kollinum í byrjun júní. Blöðin þola alls ekki frost en kali fyrstu grösin er þó bara að bíða. Þau koma að öllum líkindum upp aftur. Rófur og kál er komið í potta og það má fara að planta út, ef veðrið er gott og hægt að skýla plöntunum. Það þarf að flytja tré og sinna matjurtabeðunum og þau krefjast vökvunar og eftirlits. Eftir miðjan júní má þó fara að taka burt yfirbreiðslurnar, allavega sumar þeirra, svo maður sjái hvað er tilbúið í matinn. Skrúbba svo af sér moldina og fara að njóta sumarsins.
Yfir hásumarið er eins og svolítil deyfð sé yfir garðverkunum. Rólegheitin koma rétt um það leyti sem arfinn og kryddplönturnar fara að blómstra, bóndinn búinn að slá kerfilinn og njólann. Hið sérkennilega bragð vorsins hverfur með síðustu næpunum (stundum þarf að henda þeim allra síðustu, ef þær hafa verið seinsprottnar og eru farnar að tréna).
Bakteríuvirknin er mest í görðunum á vorin. Þá er allt að gróa, breytast og sprengja af sér vetrarhýðið. Þetta hefur sterk áhrif á garðyrkjumanninn, rétt eins og hann fái sprautu af adrenalíni beint í æð. En um mitt sumar liggur þessi virkni í dái, framkvæmdaáhuginn dvínar og engu líkara en það sé boðið upp á að skreppa af bæ meðan kálið og rótarávextirnir eru að þroskast. Miklu máli skiptir að hafa sáð fjölbreytilegum salattegundum því að í júlí er það aðalgrænmetið. Sé maður þolinmóður, og mátulega værukær, finnst hvernig áhuginn eykst aftur með haustinu þegar bakteríuvirknin fer í gang. Þá tekur náttúran til við að umbreyta sumargróðrinum – klára verkið í bókstaflegri merkingu – draga blaðgrænuna og laufvöxtinn til baka og láta fræin og ávextina þroskast.
Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.
Myndin er tekin í skoti fyrir framan gróðurhús Hildar Hákonardóttur. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Bændadagatal
- Eldhúsgarðurinn
- Grasagudda
Tengt lesefni:
Bændadagatal: Vor og sumar [89]
Eldhúsgarðurinn: Ræktun [74]
Grasagudda: Gróður og nytjar [203]
Grænar síður:
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















