Fréttir
Suðurland bragðast best...
Undir yfirskriftinni Suðurland bragðast best...lystaukandi fyrirlestrar boðar Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja til málþings að Hótel Selfossi þ. 30. janúar 2008 k. 13:00 - 17:00.
Markmið málþingsins er að vekja athygli á framboði og nýsköpun í matvælaframleiðslu á Suðurlandi og að hvetja Sunnlendinga til þess að nýta matvæli úr heimabyggð. Þá er átt við heimamenn alla, en ekki síst þá sem stunda veitingarekstur og ferðaþjónustu.
Kynnt verða fjölbreytt verkefni einstaklinga og samstarfshópa í því skyni að miðla af reynslu þeirra sem eru að framleiða og markaðsetja matvæli víða um land. Má þar nefna verkefnin Beint frá býli, Matarkista Skagafjarðar, Stefnumót hönnuða og bænda Vörumerkjastjórnun, Heimaframleiðsla o.fl..
Í tengslum við málþingið verður sýningarsvæði þar sem matvælaframleiðendur á Suðurlandi kynna vörur sínar fyrir gestum. Þess er vænst að málþingið ásamt kynningunum varpi ljósi á það sem er á döfinni í matvælaframleiðslu, efli tengsl milli framleiðenda og neytenda og verði hvatning fyrir frumkvöðla til nýsköpunar.
Dagskrá Málþingsins er eftirfarandi:
13:00 - 13:10: Málþingsstjóri opnar og setur þingið
13:10 - 13:30: Svanhildur Pálsdóttir, Matarkista Skagafjarðar
13:30 - 13:50: Friðrik Valur Karlsson, Klasamyndun í Eyjafirðinum
13:50 - 14:00: Hildur Magnúsdóttir, Verslunin Borg, Hvað vilja neytendur?
14:00 - 14:20: Friðrik Eysteinsson, sölu- og markaðsstjóri SS ,,Mörkuð vörumerkjastjórnun í matvælaframleiðslu
14:20 - 14:40: Kaffi
14:40 - 15:00: Vilhjálmur Vernharðsson frá Möðrudal, heimaframleiðsla reynslusaga
15:00 - 15:20: Gunnlaugur Karlsson - Markaðssetning í íslenskri garðyrkju
15:20 - 15:40: Ólöf Hallgrímsdóttir, Verkefnið Beint frá Býli
15: 40 - 16:20: Brynhildur Pálsdóttir/Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir - Listaháskólinn, Stefnumót hönnuða og bænda
16:20 - 16:30: Berglind Hallgrímsdóttir, Samantekt og kynning á Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja í tengslum við matarklasa
Sjá vef VSSV - Vaxtarsamnings Suðurlands og Vestmannaeyja.
Sjá vef Beint frá býli og lista yfir býlin hér á Grænum siðum.
Sjá vef Matarkistu Skagafjarðar.
Efri myndin er af brauðstöngum kryddaðar með íslenskum jurtum og neðri myndin er af flatbökum með fjallagrösum frá Friðrik V sem er einn fyrirlesara á málþinginu. Friðrik er að norðan sem afsannar kannski yfirsögn málþingsins en það er annað mál. Myndirnar voru teknar við kynningu á handbók Beint frá býli á veitingastað Friðrik V á Akureyri þ. 27.02.2007. Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.
29. Jan. 2008 07:51
Uppruni: Náttúran.is
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Dagatal
- Grasagudda
- Landið
- Samfélagið
Tengt lesefni:
Dagatal: Viðburðadagatal [347]
Grasagudda: Gróður og nytjar [219]
Landið: Viðburðir [105]
Samfélagið: Nýsköpun [170]
Grænar síður:
Nýsköpun [154]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Ábendingar frá veðurfræðingi
Um og upp úr miðjum degi hvessir af vestri, fyrst sunnan- og suðvestanlands. Þá éljagangur og vaxandi hálka af þeirra völdum með kvöldinu um allt vestanvert landið. Í Mýrdal, einkum við Reynisfjall, má gera ráð fyrir vindhviðum allt að 30-40 m/s frá því upp úr hádegi og fram eftir degi.Færð og aðstæður
Á Mosfellsheiði eru hálkublettir en hálka á Lyngdalsheiði. Hálkublettir eru víða í uppsveitum Suðurlands. Þoka er á Hellisheiði.Á norðanverðu Snæfellsnesi og á Fróðárheiði er snjóþekja en hálkublettir á Vatnaleið. Hálka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði en snjóþekja á Laxárdalsheiði og í Svínadal.
Þæfingsfærð og skafrenningur er á Klettshálsi en snjóþekja og éljagangur á Ódrúgs- og Hjallahálsi. Á Steingrímsfjarðarheiði er snjóþekja og él en þæfingsfærð og él á Þröskuldum. Annars er hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Vestfjörðum nema hvað það er snjóþekja frá Súðavík og í Reykjanes.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir á flestum leiðum í Húnavatnssýslum, að mestu autt í Skagafirði en hálkublettir og þoka á Öxnadalsheiði.
Hálka er frá Hjalteyrarafleggjara út á Siglufjörð. Hálkublettir eru á Víkurskarði og Fljótsheiði en hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Einnig eru hálkublettir á Sandvíkurheiði, Hófaskarði og á Hálsum. Flughált er á Hólasandi.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Oddskarði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi er allar helstu leiðir greiðfærar.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli. Þetta á einnig við um Norðfjarðarveg og Vattarnesveg frá kl 10, laugardaginn 4. febrúar.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Tenging rofin
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/















