Fréttir
Fyrsti fundur haldinn í Umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur
Fyrsti fundur ný s umhverfis- og samgönguráðs var haldinn 12. febrúar. Ráðið hét áður umhverfisráð og fór einnig með hlutverk heilbrigðisnefndar. En með nýrri stjórnskipun hefur heilbrigðisnefnd Reykjavíkur verið skipuð og samgöngumál sem áður tilheyrðu Framkvæmdasviði færst yfir á Umhverfis- og samgöngusvið.Gísli Marteinn Baldursson formaður ráðsins sagði breytinguna meðal annars fela í sér viðurkenningu á að samgöngumál séu umhverfismál. Umhverfis- og samgönguráð mótar stefnu í umhverfis-, náttúruverndar- og samgöngumálum, tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs. Sjónarmið umhverfisins eiga að vera í fyrirúmi við mat á valkostum og vera lykilþáttur í samráði við íbúa og hagsmunaaðila. Gísli Marteinn fagnaði jafnframt því að heilbrigðisnefnd væri aftur tekin til starfa, það leggði áherslu á sjálfstæði málaflokksins.
Í umhverfis- og samgönguráði sitja fyrir meirihlutann: Gísli Marteinn Baldursson formaður (D), Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir varaformaður (D), Ásta Þorleifsdóttir (F) og Helga Jóhannsdóttir (D). Fyrir minnihlutann sitja í ráðinu Dofri Hermannsson (S), Þorleifur Gunnlaugsson (V), Margrét Sverrisdóttir (óháð) og Jakob Hrafnsson (B) er áheyrnarfulltrúi.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar er skipuð sex fulltrúum þar af einum tilnefndum af samtökum atvinnurekenda í Reykjavík. Egill Örn Jóhannesson er formaður nefndarinnar og er í forsvari um stefnumótun og ákvarðanir. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar er Árný Sigurðardóttir og ber ábyrgð á framkvæmd, rekstri og stjórnsýslu eftirlitsins. Heilbrigðiseftirlitið tilheyrir Umhverfis- og samgöngusviði því heilbrigðismál eru umhverfismál.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
Í Heilbrigðisefnd sitja fyrir meirihlutann: Egill Örn Jóhannesson (F), Kristján Guðmundsson (D), Ragnar Sær Ragnarsson (D) og fyrir minnihlutann: Guðrún Erla Geirsdóttir (S), Garðar Mýrdal (S). Áheyrnarfulltrúi atvinnulífsins er: Ólafur Jónsson.
Frétt frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur.
Myndin er af Ráðhúsi Reykjavíkur. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Samfélagið
Tengt lesefni:
Samfélagið: Stjórnsýsla [148]
Grænar síður:
Stjórnsýsla [4]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 01:00Meira

Nýleg orð í belg
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















