Fréttir

Bláa tunnan

Hvað má fara í tunnuna?
Í bláu tunnuna má setja öll dagblöð, tímarit, markpóst og annan prentpappír auk þess má setja fernur, umbúðapappír, sléttan pappa og karton frá og með 1. febrúar 2009. Bláu tunnurnar eru sömu stærðar og svörtu og grænu heimilistunnurnar.

Hvað kostar bláa tunna?
Verð fyrir bláu tunnuna er 7.400 kr. á ári. Tunnan er eign borgarinnar og leiguverð innifalið í árlegu sorphirðugjaldi fyrir tunnuna.

Hvernig er losun háttað?
Bláu tunnurnar eru losaðar á þriggja vikna fresti. Þar sem mikill markpóstur er í umferð um jól og áramót er aukalosun í desember og heildarfjöldi losanna á ári því 18. Tunnurnar eru sóttar inná lóðir íbúa við losun líkt og svörtu og grænu heimilistunnurnar. Ef tunnan er höfð í læstri sorpgeymslu þarf að koma lykli að geymslunni til Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar sem kemur honum áfram til losunaraðila.

Panta bláu tunnuna: sorphirda@reykjavik.is.





Einkunn

Flokkar:

Orð í belg

Sigrún - þriðjudagur 22. júlí, 2008 klukkan 20:01:36

Hvaða blá tunna?
Við í stóru fjölbýlishúsunum er ekki boðið uppá neitt. Svo að mestu leiti fara dagblóð og fernur í sorplúgurnar.
Ætlar borgin ekki að hafa einver úrræði fyrir þessi hús. Sem voru byggð fyrir um 40 árum, og þá óraði engan fyrir að sorp yrði verðmætt. Eða að þetta mikið af ruslpósti kæmi inná hvert heimili. Og ekki heldur allar fernurnar og plastumbúðirnar.

Guðrún Tryggvadóttir - þriðjudagur 22. júlí, 2008 klukkan 20:24:00

Sæl Sigrún, ég sendi fyrirspurna á sorphirda@sorphirda.is til að fá úr því skorið hvort að fjölbýishúsum standi bláa tunnan til boða eða ekki. Mun setja svarið hér inn þegar það berst!

Sorphirðan - Reykjavíkurborg - Blá tunna - miðvikudagur 23. júlí, 2008 klukkan 06:47:23

Sæl Sigrún, Íbúum borgarinnar í fjölbýlishúsum stendur bláa tunnan til boða eins og öðrum. Hægt er að panta bláu tunnuna í síma 411 8500 eða með tölvupósti á sorphirda@reykjavik.is. Til að panta tunnuna fyrir fjöleignarhús þarf samþykki íbúa hússins þar sem gjöldin af tunnunni skiptast á allar íbúðirhlutfallslega.Sjá nánar hér: http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-1000/1502_read-6740
Með kveðju,
Sigríður Ólafsdóttir, rekstrarstjóri sorphirðu Reykjavíkurborgar

3 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Endurvinnsla : Bylgjupappi [14]

Endurvinnsla : Dagblöð/tímarit [38]

Endurvinnsla : Fernur [17]

Endurvinnsla : Sléttur pappi [14]

Endurvinnsla : Þjónusta [38]

Garðurinn: Endurvinnsla [65]

Húsráð: Úrgangur-Endurvinnsla [48]

Umhverfið: Innkaup og förgun [199]

Grænar síður:

Bylgjupappi [8]

Dagblöð/tímarit [8]

Fernur [7]

Sléttur pappi [6]

Þjónusta [27]

Endurvinnsla [6]

Innkaup og förgun [2]

Nýleg orð í belg

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: