Fréttir
Græna Íslandskortið er komið í loftið
Grænt Íslandskort/Green Map en samvinnuverkefni Náttúran.is og alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli forvinnu Náttúran.is við skráningar aðila á Grænar síður og slær smiðshöggið á kortlagningu vistænna kosta í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi. Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is og á ensku á Nature.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem þegar eru fyrir hendi á vefnum. Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að græný vo neinn sem ekki hefur unnið fyrir því. Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt. Þeir sem vilja skrá sig á græna kortið láti vita af sér á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!
Skoða græna Íslandskortið (á íslensku) eða green map of Iceland (á ensku).
28. júl. 2008 11:53
Uppruni: Náttúran.is
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Samfélagið
- Umhverfið
Orð í belg
Tengt lesefni:
Samfélagið: Samskipti [21]
Samfélagið: Umhverfismál [937]
Umhverfið: Vistvæn húsráð [119]
Grænar síður:
Samskipti [3]
Umhverfismál [25]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 00:00Meira

Ábending frá veðurfræðingi
Kröpp lægð fer norðaustur yfir vestanvert landið í kvöld. Talsverð hríðarmugga verður um landið norðvestanvert frá því síðdegi og fram á kvöldið, einkum á fjallvegum, en annars setur víða niður krapa þó svo að sunnan og suðaustantil verði hlýrra og með rigningu. Snýst í hvassa SV- og V-átt seint í kvöld og nótt, einkum á Vestfjörðum og Norðurlandi með kólnandi veðri og éljum. Gera má ráð fyrir einkar byljóttum vindi og miklum hviðum í skamma stund um og eftir miðnætti á Siglufjarðarvegi og við vestanverðan Eyjafjörð.Færð og aðstæður
Hálkublettir eru í Þrengslum og á Hellisheiði.Um vestanvert landið er snjóþekja á Holtavörðuheiði og nokkuð víða á Snæfellsnesi. Annars er orðið autt nokkuð víða en þó hálkublettir sumstaðar.
Þæfingsfærð og snjókoma er víða á norðanverðum Vestfjörðum en snjóþekja og snjókoma á Þröskuldum. Annars eru hálkublettir, þæfingur og einhver éljagangur nokkuð víða.
Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.
Austanlands er hálka eða hálkublettir á fjallvegum en meira og minna autt á láglendi.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nú víða um land.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/
















Arna Ösp Magnúsardóttir - mánudagur 28. júlí, 2008 klukkan 15:58:52
Græna kortið er frábært framtak. En dregur ekki úr trúverðugleika þess að Alcan (Rio Tinto) sé þar skráð sem "ábyrgt fyrirtæki" í ljósi þessa: http://www.natturan.is/efni/1655/ ??
Guðrún Tryggvadóttir - mánudagur 28. júlí, 2008 klukkan 16:49:05
Græna kortið er ábyrgt framtak sem dregur ekki í dilka, jafnvel þó að starfsemi Alcan sé á margan hátt ákaflega óumhverfisvæn þá vill svo til að fyrirtækið stendur vel að umhverifsstjórnun og reynir eins og kostur er að vinna á sem umhverfisvænstan hátt. Í hverjum flokki á græna kortinu er skilgreint hvernig flokkað er (sést með því að fara á Green Map merkið yfir upptalningunni) og Alcan er með ISO 14001 vottun sem er virtasat umhverfisstjórnunarkerfi í heiminum í dag. Það verður að geta þess líka sem gott er gert, hver sem í hlut á. Ég á ekki von á því að breyting á eignarhaldi breyti einhverju um metnað fyrirtækisins á sviði umhverfisstjórnunar.