Fréttir
Gervitré á Íslandi? - BBC fjallar um CarbFix rannsóknarverkefnið
Breski fréttaþátturinn Newsnight fjallaði ný verið um CarbFix rannsóknarverkefnið við Hellisheiðarvirkjun og spurði meðal annars hvort gervitré, sem binda koltvísýring beint úr andrúmsloftinu, færu að skjóta rótum á íslenskum hraunbreiðum. CarbFix verkefnið miðar hins vegar að því að kanna fþsileika þess að binda koltvísýring úr jarðhitagufu sem kristalla í basaltjarðlögum. Orkuveita Reykjavíkur stendur straum af stærstum hluta kostnaðar við verkefnið og eru samstarfsaðilar fyrirtækisins Háskóli Íslands, Columbia háskóli í Bandaríkjunum og Rannsóknarráð franska ríkisins í Toulouse.
Í þættinum er rætt við Wallace Broecker, sem er brautryðjandi í rannsóknum og umræðu um loftslagsvandann. Broecker situr í vísindanefnd CarbFix verkefnisins. Þá er rætt við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og Hólmfríði Sigurðardóttur, sviðsstjóra nýsköpunar og þróunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur, en hún er jafnframt verkefnisstjóri CarbFix. Þá eru teknir tali aðilar sem lýsa efasemdum um kolefnisförgunarverkefni almennt og telja þau draga um of athyglina frá því að frekar þurfi að taka á olíuþorsta heimsbyggðarinnar.
Í verkefninu er koltvísýringur leystur upp í vatni undir þrýstingi og vökvanum dælt niður um borholur í Svínahrauninu. Umfangsmiklar undirbúningsrannsóknir hafa þegar verið gerðar á grunnvatnsstraumum á svæðinu í tengslum við verkefnið og sérstaklega athugaðir straumar frá borholunum sem á að nýta. Gert er ráð fyrir að á næsta ári hefjist niðurdæling koltvísýringsblöndunnar frá virkjuninni.
Þá má einnig benda umfjöllun Morgunblaðsins síðastliðinn laugardag um verkefnið og skyld verkefni.
Umfjöllun Newsnight á BBC.
Heimasíða CarbFix.
Heimasíða Orkuveitu Reykjavíkur.
Umfjöllun um jarðvarmavirkjanir á Fræðsluvef Orkuveitu Reykjavíkur.
10. nóv. 2008 21:14
Uppruni: Orkuveita Reykjavíkur
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Tækni
- - - -
Tengt lesefni:
Tækni: Græn tækni [32]
Tækni: Sjálfbær [58]
Tækni: Vistvæn [102]
Tækni: Þróun [50]
: Kolefnisjöfnun [12]
Grænar síður:
Græn tækni [25]
Sjálfbær [5]
Vistvæn [24]
Þróun [19]
Kolefnisjöfnun [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 01:00Meira

Ábending frá veðurfræðingi
Kröpp lægð fer norðaustur yfir vestanvert landið í kvöld. Talsverð hríðarmugga verður um landið norðvestanvert frá því síðdegi og fram á kvöldið, einkum á fjallvegum, en annars setur víða niður krapa þó svo að sunnan og suðaustantil verði hlýrra og með rigningu. Snýst í hvassa SV- og V-átt seint í kvöld og nótt, einkum á Vestfjörðum og Norðurlandi með kólnandi veðri og éljum. Gera má ráð fyrir einkar byljóttum vindi og miklum hviðum í skamma stund um og eftir miðnætti á Siglufjarðarvegi og við vestanverðan Eyjafjörð.Færð og aðstæður
Hálkublettir eru í Þrengslum og á Hellisheiði.Um vestanvert landið er snjóþekja á Holtavörðuheiði og nokkuð víða á Snæfellsnesi. Annars er orðið autt nokkuð víða en þó hálkublettir sumstaðar.
Þæfingsfærð og snjókoma er víða á norðanverðum Vestfjörðum en snjóþekja og snjókoma á Þröskuldum. Annars eru hálkublettir, þæfingur og einhver éljagangur nokkuð víða.
Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.
Austanlands er hálka eða hálkublettir á fjallvegum en meira og minna autt á láglendi.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nú víða um land.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/















