Fréttir

Viðurkenningar veittar á degi umhverfisins

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrúnu Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Haldið var upp á dag umhverfisins í dag með afhendingu viðurkenninga og ýmsum viðburðum. Við sama tækifæri fékk prentsmiðjan Oddi afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins og nemendur Hvolsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins.

Sigrún Helgadóttir hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Sigrún Helgadóttir og föruneytiSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrún Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti en þetta var í fyrsta sinn sem sú viðurkenningin er afhent. Umhverfisráðherra ákvað að veita viðurkenninguna í tilefni af tuttugu ára afmæli umhverfisráðuneytisins í ár.
Sigrún Helgadóttir hefur helgað starfskrafta sína umhverfismálum, ekki síst við að miðla fræðslu til barna og ungmenna en einnig hefur hún lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að auka skilning almennings á náttúru og umhverfi.

Á árunum 2000 til 2008 var Sigrún verkefnisstjóri Grænfánaverkefnisins. Hún skipulagði það frá upphafi og stýrði því þar til þátttökuskólarnir voru komnir yfir eitt hundrað talsins og á öllum skólastigum.

Sigrún hefur þýtt og staðfært námsefni í umhverfisfræðum og einnig skrifað námsefni í náttúru- og umhverfisfræðum, bæði fyrir nemendur og kennara. Þá hefur hún samið vandaða og afar fróðlega bók um Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Ásbyrgi en hún var þar landvörður. Hún var fyrsti landvörður þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum og mótaði þá starf landvarða og beindi því inn á þá braut að landverðir túlkuðu náttúru fyrir gesti til að auka skilning þeirra á henni.

Að auki hefur Sigrún starfað með ýmsum félögum að umhverfismálum og hefur einnig komið þekkingu sinni á framfæri á vettvangi stjórnmálanna. Hún starfaði með hópi áhugafólks um umhverfismál, Græna hópnum, sem lét til sín taka og hvatti meðal annars mjög til stofnunar sérstaks ráðuneytis umhverfismála. Síðar var hún varaþingkona Kvennalistans 1987-1991 og 1994-1995. Hún bar þá fram ýmsar hugmyndir varðandi umhverfismál og átti meðal annarra stóran þátt í að semja þingmál um stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis sem Kvennalistinn lagði fram á Alþingi. Einnig bar hún fram mörg ný sjónarmið, til dæmis um grænan hagvöxt, nýja skilgreiningu hagvaxtarhugtaksins og kvenlæga vistfræði.

Starfsfólk Odda tekur við KuðungnumPrentsmiðjan Oddi hlaut Kuðunginn

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Þóru Hirst, gæðastjóra prentsmiðjunnar Odda Kuðunginn fyrir framlag fyrirtækisins til umhverfismála á liðnu ári.
Í máli Sigþrúðar Jónsdóttur, formanns valnefndar Kuðungsins, kom fram að fyrirtækið hefði árum saman unnið eftir ákveðinni umhverfisstefnu, það hefði tekið upp umhverfisstaðla og unnið að því að lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á umhverfi og heilsu.Á síðasta ári hlaut  fyrirtækið hina norrænu umhverfisvottun, Svaninn. Svanurinn gerir strangar kröfur til prentsmiðja og lítur meðal annars til orku- og efnanotkunar, sorpflokkunar og rýrnunar. Kröfur Svansins til efnanotkunar í prentsmiðjum eru sérstaklega strangar. Svansvottunin nær yfir alla prentþjónustu  Odda og fyrirtækið er fyrsta prentsmiðjan í heiminum sem hefur hlotið Svansvottun á framleiðslu bylgjukassa.


Í Odda er mjög fullkomin sorpflokkun, sem hefur leitt til meiri endurvinnslu og minni urðunarúrgangs. Þá hefur breytt framleiðslutækni leitt til minni efnanotkunar og markvissari stýringu til að lágmarka notkun á hættulegum efnum og tryggja rétta meðhöndlun þeirra.
Pappírinn sem notaður er í Odda ber Evrópublómið, umhverfisvottun Evrópusambandsins. Hann er endurunninn eða kemur frá nytjaskógum, þannig að fleiri tré eru gróðursett heldur en þau sem felld eru. Með því er ekki gengið á skógana og nýtingin er sjálfbær. Meginhluti trjánna í þessum skógum fer í timbur en kurlaðar trjágreinar, afskurður og sag eru notuð til pappírsframleiðslu. Þá er allur afskurður og pappírs afgangar hjá Odda gefnir í alla leikskóla landsins.
Oddi hefur skýra umhverfisstefnu og til að tryggja að þau skilyrði séu uppfyllt er unnið markvisst að því að allir 250 starfsmenn fyrirtækisins séu upplýstir um umhverfisáhrif sem tengjast rekstri prentsmiðjunnar sem og lög, reglugerðir, staðla og kröfur í umhverfismálum.
Í valnefnd kuðungsins sátu Sigþrúður Jónsdóttir formaður fyrir hönd umhverfisráðherra, Ingunn Þorsteinsdóttir fyrir Alþýðusamband Íslands og Guðbergur Rúnarsson fyrir Samtök atvinnulífsins.

Nemendur Hvolsskóla útnefndir varðliðar umhverfisins

Við sama tilefni útnefndi umhverfisráðherra nemendur í 10. bekk Hvolsskóla varðliða umhverfisins. Verkefnasamkeppnin Varðliðar umhverfisins er samstarfsverkefni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur og er haldin árlega meðal nemenda í 5.-10. bekk í grunnskólum landsins.  Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.
Nemendur Hvolsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins fyrir faglega skýrslu um umhverfisáhrif vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. Í skýrslunni leitast nemendur við að varpa ljósi á umfang framkvæmdanna og áhrif þeirra á umhverfið með því að flétta viðfangsefnið inn í stærðfræði, eðlisfræði og náttúrufræði.  Reiknaður var út umhverfiskostnaður af framkvæmdum í Landeyjahöfn, m.a. fundin út koltvísýringsmengun af flutningum grjóts í brimvarnargarð. Einnig voru borin saman þau áhrif sem eru af siglingum til Þorlákshafnar annars vegar og til Landeyjahafnar hins vegar með því að reikna út kostnað vegna olíunotkunar og magn koltvísýrings sem losnar út í andrúmsloftið á þessum tveimur siglingaleiðum. Að lokum veltu nemendur fyrir sér ávinningi landgræðslu með tilliti til bindingar koltvísýrings til að draga úr umhverfisáhrifum framkvæmdanna.

Náttúran.is 2.0 opnuð

Umhverfisráðherra opnaði í dag nýja útgáfu heimasíðunnar náttúran.is á þriggja ára afmæli hennar. Vefurinn hefur verið endurskrifaður frá grunni og tekið til í allri uppbyggingu vefsins. Náttúran.is 2.0 inniheldur nokkra nýja liði og enski hluti vefsins er orðinn yfirgripsmeiri og meginefni hans er  nú aðgengilegt á þýsku. Af nýjum liðum má nefna; Vistvæn innkaupaviðmið, Náttúruspjall, nýtt viðmót Náttúrumarkaðarins og vöruleit þar sem hægt er að þrengja leitina eftir framleiðanda og vottunum.

Fjöldi viðburða

Efnt var til fjölda viðburða á degi umhverfisins í ár. Meðal annars efndi Fuglavernd og Félag umhverfisfræðinga til göngu kringum Reykjavíkurtjörn og um Vatnsmýrina þar sem líffræðileg fjölbreytni svæðisins var kynnt. Þá efndu Grasagarðurinn og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn til viðburða og Græna ljósið bauð í bíó.

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Nú er haldið upp daginn í tólfta sinn og í ár er dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.




Einkunn

Flokkar:

Orð í belg

Anna Lúðvíksdóttir - föstudagur 14. maí, 2010 klukkan 22:38:06

Tilnefnd til Kuðungsins í ár voru eftirtaldir aðilar: Náttúran.is, Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS, Framtíðarorka, Oddi, PM endurvinnsla, Landgræðsla ríkisins, Náttúrustofa Vesturlands, Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, ISS Ísland, Gámaþjónustan, Fengur, Djúpavogshreppur, Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Kaffitár.

Guðrún Tryggvadóttir - sunnudagur 16. maí, 2010 klukkan 13:30:28

Það er auðvitað ánægjulegt hve margir koma til greina til Kuðungsins! Ég hefði t.d. vilja sjá hjá GuðjónÓ fá Kuðunginn fyrir mörgum árum síðan en þeir sem draga lestina fá sjaldnast viðurkenningar.

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Leit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Dagatal: Viðburðadagatal [296]

Í fararbroddi: Verðlaunuð [15]

Samfélagið: Umhverfismál [679]

Samfélagið: Umhverfisvefir [17]

Samfélagið: Viðburðir [136]

Umhverfið: Umhverfisverðlaun [15]

Umhverfisverðlaun: Kuðungurinn [9]

Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [287]

Nýleg orð í belg

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: