Fréttir

Náttúruskoðun fyrir alla fjölskylduna í Sesseljuhúsi

Býfluga á malurtÍ erli nútímans gefst oft lítill tími til að njóta þess sem náttúran og umhverfið hefur upp á að bjóða. Hér áður fyrr var þekking á landslagi, fuglum og jurtum og eitthvað sem hvert barn lærði í æsku en nú eru aðrar áherslur. Það þýðir þó ekki að áhugi á náttúru og umhverfi fari minnkandi en tækifærin til þekkingaröflunar eru með öðrum hætti.

Sesseljuhús að Sólheimum stendur fyrir fræðslufundum í allt sumar þar sem sérfræðingar á ýmsum sviðum sem tengjast umhverfismálum sjá um að fræða almenning. Sérfræðingarnir munu flytja stutt erindi og fara út í kjölfarið og skoða jurtir, fugla, landslag og annað eftir því sem við á. Þetta er tilvalin fræðslustund fyrir alla fjölskylduna. Allir fundirnir hefjast klukkan 13:00 í Sesseljuhúsi og standa yfir í 1 - 2 klst. Aðgangur er ókeypis!

Dagskrá:

5. júní - Hvernig á að sniðganga kemísk efni - Benedikta Jónsdóttir, heilsuráðgjafi fjallar um hvernig sniðganga megi kemísk efni í umhverfinu s.s. í matvælum, snyrtivörum og hreinlætisvörum.

13. júní - Dagur hinna villtu blóma - Sigurður H. Magnússon , Fil.Dr. plöntuvistfræðingur fer með gesti Sólheima í fræðslugöngu. Þessi dagur er haldinn á Norðurlöndum í byrjun sumars ár hvert til að fræða almenning um villtar plöntur.

19. júní - Landslagið með gleraugum jarðfræðingsins - Jón Eiríksson, jarðfræðingur við Raunvísindadeild Háskóla Íslands mun fjalla um jarðfræðina á svæði Sólheima.

26. júní - Líffræðilegur fjölbreytileiki - Hildur Vésteinsdóttir, MSc. sérfræðingur hjá umhverfisstofnun fjallar um mikilvægi þess að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika.

27. júní - Fræðsluganga um íslenskar lækningajurtir - Anna Rósa Róbertsdóttir B.Sc., Dip.Phyt, MNIMH grasalæknir fer með fólk í fræðslugöngu um Sólheima og kynnir íslenskar lækningajurtir.

10. júlí - Fuglaskoðun - Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur og ljósmyndari, fjallar um fugla í landi Sólheima og fer með gesti í fuglaskoðunarferð um svæðið.

17. júlí - Vistvæn tækni - Andri Ottesen, framkvæmdastjóri Carbon Recycling International fjallar um vistvæna tækni og vistvænar áherslur í atvinnuuppbyggingu.

7. ágúst - Hagnýting íslenskra jurta - Einar Logi Einarson grasafræðingur fjallar um tínslu og vinnslu íslenskra jurta.

21. ágúst - Umhverfisvæn ferðaþjónusta - ferðaþjónusta framtíðarinnar - Guðrún Bergmann fjallar um umhverfisvæna ferðaþjónustu.

28. ágúst - Áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á umhverfið - Rannveig Guicharnaud, jarðvegsfræðingur hjá Lanbúnaðarháskóla Íslands fjallar um áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á umhverfið.

Ljósmynd: Býfluga á valurt, Guðrún Tryggvadóttir.




Tengdir viðburðir


Hvernig á að sniðganga kemísk efni - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
5. jún. 2010 13:00

Dagur hinna villtu blóma - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
13. jún. 2010 13:00

Landslagið með gleraugum jarðfræðingsins - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
19. jún. 2010 13:00

Líffræðilegur fjölbreytileiki - Fræðslufundur í Sesseljuhúsi
26. jún. 2010 13:00

Fræðsluganga um íslenskar lækningajurtir - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
27. jún. 2010 13:00

Fuglaskoðun - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
10. júl. 2010 10:00

Vistvæn tækni - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
17. júl. 2010 13:00

Hagnýting íslenskra jurta - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
7. ágú. 2010 13:00

Umhverfisvæn ferðaþjónusta - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
21. ágú. 2010 13:00

Áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á umhverfið - Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi
28. ágú. 2010 13:00


Einkunn

Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Dagatal: Viðburðadagatal [348]

Landið: Viðburðir [105]

Samfélagið: Fjölskyldan [135]

Samfélagið: Umhverfismál [937]

Samfélagið: Viðburðir [178]

Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [415]

Viðburðir: Útivera [49]

Nýleg orð í belg

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: