Fréttir
Listin að lifa - Yoga, öndunartækni, hugleiðsla
Art of living er „öndunartækni“, sem er streitulosandi og hefur reynst vel sem áfallahjálp. Aðferðin hefur m.a. verið notuð eftir flóðbylgjuna miklu í Asíu, eftir stríðið í Kósóvó og á Haítí eftir jarðskjálftann mikla þar núna í vor. Art of Living, AOL, er öndunartækni og hugmyndafræði, sem Sri Sri Ravi Shankar er höfundur að. Upprunnið úr fræðum Yoga, Bhagavad Gita, og öðrum indverskum Vedic fræðum og heimspeki.
AOL Art of Living kynning verður haldin að Heimalandi í Rangárþingi eystra, þann 29. júní, kl: 21:00 - 22:00 og eru allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis.
„Hugsanir okkar er á endalausu flakki milli fortíðar og framtíðar. Við höfum áhyggjur af einhverju sem sem koma skal eða erum að velta okkur uppúr einhverju sem er löngu liðið. Þetta framkallar streitu í líkamanum. Ef við erum í núinu og náum að kyrra hugann tekst okkur mun betur að takast á við lífið. Einbeiting eykst og lífsgæði aukast.“
En hvernig förum við að því að kyrra hugan? Fæstir vita að líkaminn býr yfir einstöku „tæki“ til að losna við stress þ.e: „öndunina“. Já flest okkar nýta einungis lítinn hluta af öndunni og anda bara af gömlum vana og gera sér ekki grein fyrir mætti markvissrar öndunar.
Art of living öndunartæknin getur gagnast þér á eftirfarandi hátt:
- Þú lærir æfingar sem að stuðla að betra jafnvægi á milli líkama, sálar og huga
- Þú lærir tækni til þess að losna við neikvæðar hugsanir og tilfinningar
- Getur minnkað stress og kvíða
- Getur bætt heilsu og eykur orku
- Getur bætt einbeitingu og sjálfsöryggi
- Þú getur öðlast betri sjálfsþekkinu
Sjá nánar um AOL á www.arofliving.is.
Mynd: AOL félagar á Íslandi.
Tengdir viðburðir
Art of living kynning
29. jún. 2010 21:00
Einkunn
- Heilsan
- Viðburðir
Tengt lesefni:
Heilsan: Andlega hliðin [16]
Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [283]
Grænar síður:
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















