Fréttir
Galdrafár geisar á Suðurlandi - svartir kettir, afturgöngur og skelfdir bæjarstjórar
Á Selfossi eru menn hræddir við ketti. Þeir hafa verið að lesa gamlar galdraskræður sem halda því fram að kettir séu djöfulóð dýr og svartir kettir séu beinlínis af hinu illa. Galdrafár hefur geisað í bæjarstjórninni, svo megnt að öll bæjarstjórnin greip til þess ráðs á síðasta kjörtímabili nota bene, að ganga að sem flestum köttum dauðum og krefjast þess að eftirlifandi kattarhræður yrðu hafðar í bandi á lóð eigenda sinna undir ströngu eftirliti.
Grunur leikur á að uppruna þessa galdrafárs megi rekja til Skruddu einnar, gamallar galdrabókar Flóa- og Skeiðamanna sem Bjarna Harðar tókst að grafa upp í dánarbúi bónda eins uppi á Skeiðum. Bæjarstjórnin komst í skrudduna og nú er fjandinn laus í bókstaflegum skilningi. Menn hafa einnig tekið eftir því að óvenjulega líflegur draugagangur hefur verið undanfarið í draugasafninu, og loga þar hrævareldar á næturnar. Nú er svo komið að jafnvel galdrakunnustu menn eru orðnir smeykir.
Gripið hefur verið til þess ráðs að setja upp sérstakt embætti kattafangara og gengur hann um með horn og klaufir í svörtum búningi og veiðir saklausar kisurnar og stingur þeim í skjóðu sína og drekkir kisunum síðan í hyl í Ölfusánni. Hrelldir kattareigendur emja og veina og heyrst hefur að verið sé að magna seið gegn bæjarstjórninni. Fjölkyngnin í bæjarfélaginu á sér engin mörk enda hefur komið upp sú hugmynd að leita til geistlegra manna, þ.e. presta til þess að reyna að kveða niður þetta illvíga galdrafár. Einn presturinn sást um daginn vera að fylgjast með þegar lífsýni var tekið úr Bobby Fischer, en aðrir segja að Fischer gangi nú laus og sé farinn að tefla fjöltefli á fimmtudagskvöldum í Sunnlenska bókakaffinu og eru víst fáir sem standast honum snúning.
En hvað á að gera? Kvittur hefur komið upp um að kattaútrýmingarherferðin sé einungis upphafið á einhverju meira og stærra. Nornir í Árborg mega víst fara að vara sig enda gætu galdrabrennur orðið næsta skref. Einhver þóttist sjá nakta konu á kústskafti fljúga yfir Kentucky Fried Chicken staðnum á miðvikudagskvöldið og einhver annar sagðist hafa séð Meistarann úr Meistaranum og Margarítu eftir Búlgakov fá sér pylsu í pylsuvagninum. Aðrir halda því fram að brennisteinsfnykur sé farinn að berast úr áhaldahúsinu og einhver þóttist sjá Fást sjálfan bregða sér inn í Krónuna að kaupa lakkrís.
En bæjarstjórnin er með stjórn á þessu öllu saman, eða það segir hún a.m.k. og á meðan fer köttum í Árborg ört fækkandi.
Ljósmynd: Kötturinn Lísa, frjáls læða, Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Landið
- Náttúran
Tengt lesefni:
Landið: Dýralíf [101]
Náttúran: Húsdýr í sveit [11]
Grænar síður:
Dýralíf [16]
Húsdýr í sveit [41]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi N- og A-lands. Gildir til 11.02.2012 01:00Meira

Nýleg orð í belg
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















