Vottuð náttúruafurð: Æðardúnn

Vottuð náttúruafurð - Tún

Tún - vottuð náttúruafurð

Upprunavottun. Vottuð náttúruafurð eru þær afurðir skilgreindar sem ekki teljast lífrænar en eru af náttúrulegum uppruna, eru framleiddar með sjálfbærri nýtingu auðlindar, eru leyfileg aðföng í lífræna framleiðslu, og eru meðhöndlaðar frá söfnun til síðustu pökkunar eða merkingar eins og um lífrænar afurðir væri að ræða.

Sjá nánar á vef vottunarstofunnar Túns.


nánar

Náttúran
26. apríl 2010 15:56
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

SængurfötHúsgögnVefnaðarvörurVefnaðarvörurSkórSnyrtivörurSnyrtivörurHúsgögnLýsingNáttborðFataskápurLjósmyndirLýsingHurðSvefnherbergiðhusid_svefnherbergi
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Svefnherbergið - Sængurföt

Útöndun og einangrunargildi í ekta dúnsæng (æðadún eða gæsadún) er auðvitað betri en úr gerviefnum og því í flestum tilfellum hollari. Nauðsynlegt er að viðra sængina reglulega og helst láta hreinsa hana eftir þörfum.

Með vefnaðarvörur s.s. sængurföt og fatnað þarf að hafa í huga að mörg litarefni og framleiðsluferli fela í sér að efnið er meðhöndlað með sýruböðum, og eiturefnum af ýmsum gerðum, sumum jafnvel skaðlegum heilsunni. Eins er framleiðslan sjálf oft uppspretta alvarlegra umhverfisáhrifa og heilsutaps fólks. Sum efni eru þó umverfisvænni en önnur.

Bómull er eitt skaðlegasta hráefnið vegna mikillar eiturefnanotkunar við ræktun þess. Fyrir hvert kg. af bómull sem er ræktað þarf um eitt kg. af eiturefnum. Sé hins vegar valin lífrænt ræktuð bómull þá er eiturefnanotkun næstum bönnuð og notkun skaðlegra efna við meðhöndlun efnanna haldið í algeru lágmarki.

Umhverfismerki á borð við Svaninn tryggir að framleiðslan hafi verið umhverfisvæn, lífrænar vottanir (fjöldi merkja í umferð um allan heim) gefa til kynna að varan hafi verið framleidd með lífrænum aðferðum. Sanngirnisvottun er staðfesting á því að varan er unnin á siðferðislega sanngjarnan hátt, án skaðlegra áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir fái sanngjörn laun fyrir vinnuna.

Sjá nánar um hættuleg efni og tilbúin efni.


nánar

Náttúran er
26. júní 2007 09:30
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

1

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: