Eldhúsgarðurinn: Gróðursetning

Sáðalmanak fyrir febrúar 2012

Fyrsta sáðalmanak fyrir árið 2012 lítur nú dagsins ljós en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tók saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar í fyrra og heldur áfram að taka þau saman fyrir okkur í ár.

Efnið er unnið úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur  Tími

1.  febrúar   00 – 04 ávöxtur, 05 – 24  rót
2.  febrúar   00 – 17 rót, 17 – 24 óhagstætt
3.  febrúar   00 – 24 rót
4.  febrúar   00 – 04 rót,  05 – 24 blóm
5.  febrúar   00 – 24 blóm
6.  febrúar   00– 04 blóm, 05 – 24 blað
7.  febrúar   00– 20 blað, 21 – 24 ávöxtur
8.  febrúar   00 – 24 ávöxtur
9.  febrúar   00 – 12 ávöxtur, 13 – 24 óhagstætt
10. febrúar  00 – 04 óhagstætt, 05 – 08 ávöxtur, 09 – 24 rót
11. febrúar  00 – 05 rót, 05 – 24 óhagstætt
12. febrúar  00 – 24 rót
13. febrúar  00 – 12 rót, 14 – 24 blóm
14. febrúar  00 - 18 blóm, 19 –24 óhagstætt
15. febrúar  00 – 24 óhagstætt
16. febrúar  00 – 17 óhagstætt, 18 – 24 blað
17. febrúar  00 – 24 ávöxtur
18. febrúar  00 – 24 ávöxtur
19. febrúar  00 – 05 ávöxtur,  06 – 24 rót
20. febrúar  00 – 24 rót
21. febrúar  00 – 09 rót, 10 – 24 blóm
22. febrúar  00 – 24 blóm
23. febrúar  00 – 20 blóm, 21 – 24 blað
24. febrúar  00 – 24 blað
25. febrúar  00 – 13 blað, 14 – 24 óhagstætt
26. febrúar  00 – 24 óhagstætt
27. febrúar  00 – 24 ávöxtur
28. febrúar  00 – 13 ávöxtur, 14 – 24 rót
29. febrúar  00 – 19 rót, 20 – 24 óhagstætt

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur. Upplýsingarnar eru úr garðabók Maríu Thun.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir febrúar 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.


nánar

Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
11. febrúar 2012 11:17
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Eldhúsgarðurinn - góð ráð til að rækta garðinn sinn

Matjurtargarður getur verið stór eða lítill, villtur eða ákaflega vel skipulagður eins og Eldhúsgarðurinn hér á vef Náttúrunnar en hann er hugsaður sem einskonar „fyrirmyndargarður“ sem hver og einn getur síðan breytt að eigin geðþótta og aðlagað aðstæðum svo sem;  fjölskyldu- og garðstærð, tíma og nennu.

Hugmyndin að Eldhúsgarðinum* er sú að útfæra matjurtaræktun sem getur verið flókin á einfaldan og skemmtilegan máta. Nákvæm skipulagning getur virst  þrúgandi við fyrstu sýn en hún er, þegar upp er staðið, einfaldari leið en sú að misreikna sig og gefast svo kannski upp á miðju sumri án þess að uppskera neitt sem heitið getur. Hver og einn getur auðvitað valið hvaða ráð hann notfærir sér og hver ekki.

Vist er þægilegt að pota niður hinu og þessu eftir því hvaða plöntur rata til manns og hvaða fræpokar finnast í geymslunni síðan í fyrra eða í rekkanum í blómabúðinni. En þau okkar sem þurfum að spara pláss, tíma og peninga en höfum þó engu að síður  þann metnað að uppskera sem mest ætilegt fyrir eldhúsið í  sumar – við þurfum skipulag sem nýtir plássið vel og gefur glögga yfirsýn yfir hvað er hægt að rækta og hvernig.

Til að skoða Eldhúsgarðinn smelltu hér.

Til að skoða sáðalmanakið smella hér.

Eldhúsgarðinum er miðum við fermeter sem stærðareiningu. Teikningarnar sýna hve margar plöntur af hverri tegund komast fyrir á hverjum fermeter (beði). Svo getum við reiknað út hve marga fermetra við teljum æskilega fyrir okkar eigin garð. Beðin í garðinum eru 12 og því 12 m2 til að rækta í. Heildarstærð garðsins alls er 6x3 metrar eða 18 m2, með stígum og munaðareyju sem reiknað er með til þess að hægt sé að athafna sig betur og njóta lífsins á milli stríða og til að leggja frá sér verkfæri, plöntur og fræ og uppskeruna sjálfa þegar líður á sumarið.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
29. janúar 2012 18:53
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Sáðalmanak fyrir júlí 2011

Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Júlí 2011

Dagur  Tími

1. júlí      00 – 24 blóm
2. júlí      00 – 16 blóm, 17 – 24 blað
3. júlí      00 – 24 blað
4. júlí      00 – 04 blað, 05 – 08 ávöxtur, 10 – 19 blóm, 21 – 24 blað
5. júlí      óhagstæðir
6. júlí      dagar
7. júlí      til
8. júlí      sáningar
9. júlí      00 – 24 blóm
10. júlí    00 – 24 blóm
11. júlí    00 – 03 blóm, 04 – 24 blað
12. júlí    00 – 24 blað
13. júlí    00 – 10 blað
14. júlí    00 – 24 ávöxtur
15. júlí    óhagstæður
16. júlí    00 – 11 óhagstæður, 14 – 24 rót
17. júlí    00 – 21 rót, 22 – 24 blóm
18. júlí    00 – 24 blóm
19. júlí    00 – 22 blóm
20. júlí    00 – 24 blað
21. júlí    00 – 13 blað, 14 – 24 blóm
22. júlí    00 – 02 blóm, 04 – 24 blað
23. júlí    00 – 02 blað, 04 – 24 ávöxtur
24. júlí    00 – 24 ávöxtur
25. júlí    00 – 02 ávöxtur, 03 – 24 rót
26. júlí    00 – 24 rót
27. júlí    00 – 17 rót, 18 – 24 blað
28. júlí    00 – 10 blóm, 11 – 24 óhagstætt
29. júlí    00 – 09 ávöxtur, 10 – 24 blóm
30. júlí    00 – 24 blað
31. júlí    00 – 12 blað, 14 – 20 ávöxtur, 21 – 24 blað

1. til og með 12. júlí hagstætt tímabil til útplöntunar og uppskeru rótarávaxta á „rótardögum“, 13. til og með 26. júlí hagstætt til söfnunar blað og blómjurta og þá á „blað- eða blómadögum“, 27. til og með 31. aftur hagstætt til útplöntunar og uppskeru rótarávaxta.

Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.

Grafík: Sáðalmanak fyrir júlí 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Guðfinnur Jakobsson
1. júlí 2011 09:50
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Sáðalmanak fyrir júní 2011

Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Júní 2011

Dagur  Tími

1. júní      00 – 24 rót.
2. júní      00 – 24 rót.
3. júní      00 – 06 rót, 07 – 24 blóm.
4. júní      00 – 24 blóm.
5. júní      00 – 09 blóm, 10 – 24 blað.
6. júní      00 – 16 blað, 17 – 24 ávöxtur.
7. júní      óhagstæður til sáningar.
8. júní      00 – 24 ávöxtur.
9. júní      00 – 10 ávöxtur, 11 – 24 rót.
10. júní    00 – 14 óhagstætt tímabil, 15 – 24 rót.
11. júní    00 – 14 rót, 14 – 24 óhagstætt.
12. júní    00 – 16 óhagstætt, 16 – 24 blóm.
13. júní    00 – 21 blóm, 22 -24 blað.
14. júní    00 – 24 blað.
15. júní    00 – 15 blað, 15 – 24 óhagstætt.
16. júní    00 – 02 blað, 03 – 24 ávöxtur.
17. júní    00 – 22 ávöxtur, 22 – 24 óhagstætt.
18. júní    00 – 24 rót.
19. júní    00 – 06 rót, 07 – 21 blóm/ávöxtur, 22 – 24 rót.
20. júní    00 – 12 rót, 13 – 24 blóm.
21. júní    00 – 24 blóm.
22. júní    00 – 17 blóm, 18 – 24 blað.
23. júní    00 – 18 blað, 19 – 24 blóm.
24. júní    00 – 08 blóm, 09 – 24 blað.
25. júní    00 – 18 blað, 19 – 24 ávöxtur.
26. júní    00 – 24 ávöxtur.
27. júní    00 – 16 ávöxtur, 17 – 24 blóm.
28. júní    00 – 10 blóm, 11 – 24 rót.
29. júní    00 – 24 rót.
30. júní    00 – 14 rót, 15 – 24 blóm.

Tímabilið frá 2. til og með 14. júní hagstætt til útplöntunar og uppskeru róta. 15. til og með 29. júní hagstætt til uppskeru og/eða söfnunar blaða/blóma. Sem dæmi væru góð tímabil til að safna birkilaufi, sem og blaðjurtum þann 22. júní frá kl. 18 til kl. 18 þann 23. og aftur frá kl. 9 þann 24. til kl. 18 þann 25. júní. Blómum frá kl. 19 þann  23. til kl. 8 þann 24. júní, einnig aftur frá kl. 17 þann 27. til kl. 10 þann 28. júní, einnig frá kl. 15. þann 30. júní.

Á þessum tímabilum sem hér eru upp talin eru blöðin og/eða blómin kröftugust, en það þýðir samt ekki að þau séu einskis virði utan þessara tímabila. Einnig er ávallt hagstæðara að safna eða uppskera ofanjarðarhluta jurta fyrri hluta dags, eða fram til kl. hálftvö og uppskera rætur/rótarávexti seinni hluta dags og fram á kvöld.

Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.

Grafík: Sáðalmanak fyrir júní 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir
1. júní 2011 13:24
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Sáðalmanak fyrir maí 2011

Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Maí 2011

Dagur  Tími

1.      00 – 24 blað
2.      00 – 01 blað, 03 – 24 ávöxtur
3.      00 – 24 ávöxtur
4.      00 – 01 ávöxtur, 03 – 24 rót
5.      00 – 24 rót
6.      00 – 24 rót
7.      01 – 24 blóm
8.      00 – 24 blóm
9.      00 – 02 blóm, 03 – 24 blað
10.    00 – 16 blað, 17 – 24 ávöxtur
11.    00 – 24 ávöxtur
12.    00 – 24 ávöxtur
13.    00 – 03 ávöxtur, 04 – 24 rót
14.    00 – 24 rót
15.    óhagstæður til sáningar
16.    01 – 06 rót, 07 – 24 blóm
17.    00 – 11 blóm, 12 – 24 blað
18.    00 – 24 blað
19.    00 – 17 blað, 18 – 24 ávöxtur
20.    00 – 24 ávöxtur
21.    00 – 24 ávöxtur
22.    00 – 24 rót
23.    00 – 24 rót
24.    00 – 04 rót, 05 – 24 blóm
25.    00 – 24 blóm
26.    00 – 06 blóm, 07 – 24 blað
27.    02 – 14 blóm, 15 -24 blað
28.    00 – 24 blað
29.    00 – 12 blað, 13 – 24 ávöxtur
30.    00 – 24 ávöxtur
31.    00 – 11 ávöxtur, 12 – 24 rót

Tímabilið frá 6. maí til og með 18. maí er hagstætt til útplöntunar og gróðursetningar. Gróðursetja berjarunna og ávaxtatré á ávaxtadögum, blaðgrænmeti á blaðdögum o.s.frv.

Á hringferð sinni kringum jörðina fylgir máninn að mestu leyti sólarbrautinni  eins og hún lítur út frá jörðinni séð, þó er braut hans ýmist lítið eitt fyrir ofan hana eða neðan. Þegar máninn fer lækkandi miðað við braut sólarinnar þá er hagstætt tímabil til útplöntunar og gróðursetningar, því þá leita lífs- og vaxtarkraftar gróðursins meira niður á við, en þegar máninn fer hækkandi er kraftur gróðursins meiri í efri hluta jurta og trjáa.

Oft er spurt: hvað er næstbest, ef ekki er hægt að sá t.d. vegna veðurs rótarávöxtum á „rótardögum“? Ætla mætti að þá væri hagstæðast að sá á ávaxtadögum, því rótin, eða þá kálhöfuðið eru einskonar ávaxtamyndun hjá jurtinni. Við tölum jú td. um rótarávexti.

Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.

Grafík: Sáðalmanak fyrir maí 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.


nánar

Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir
17. maí 2011 22:55
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: