Bændadagatal: Dagar

Kyndilmessa

Hún er 2. febrúar og heitir líka „hreinsunarhátið blessaðrar Maríu meyjar”. En samkvæmt Móselögum taldist kona óhrein í fjörutíu daga, eftir að hún hafði alið sveinbarn. Og því gekk María með Jesúbarnið til helgidómsins fjörutíu dögum eftir 25. desember til að láta hreinsast. Hreinsunarháttur Maríu sést fyrst getið í Jerúsalem snemma á 4. öld, en er þá reyndar bundin við 14. febrúar, þar sem þá var fæðingardagur Jesú enn talinn 6. janúar. Hátíðin var svo fyrirskipuð árið 524 af Jústiníanusi keisara í Miklagarði, en þar geisaði þá pestnæmur sjúkdómur, og vildu menn treysta því, að María eyddi pestinni. Henni var þá gefið heitið „Fundur Herrans og móður hans með Símoni og Önnu”, sbr. 2. kapítula Lúkasarguðspjalls. Árið 690 skipaði Sergius páfi í Róm, að á hreinsunarhátíðinni skyldi vígja öll þau kerti, sem ætluð væru til kirkjunnar á árinu. Á þessum degi var á miðöldum einnig farin mikil skrúðganga innan kirkju og utan og um kirkjugarð. Bar þá hver maður logandi kerti, bæði klerkalið og söfnuður.

Af þessi öllu fékk hátíðin nafnið missa candelarum sem þýðir kertamessa. Það orð sést oft í íslenskum fornbréfum frá 15. og 16. öld, en fyrir þann tím og eftir siðbreytingu er orðið kyndilsmessa allsráðandi. Ekki er með öllu ljóst, hvernig á því nafni stendur, en benda má á þrjú atriði: hljóðlíkinguna við engilsaxneskuna candel mæssan, en þaðan mun orðið hafa borist í íslensku einsog margt fleira í kirkjumáli, ekki er víst, að á þessum tíma hafi verið glögg skil milli merkingar orðanna kyndill og kerti. Hugsanlegt er, að í áðurnefndri skrúðgöngu utan kirkju hafi reynst ókleift að bera logandi kerti úti í norrænu þorraveðri og því verið notaðir kyndlar. Munnlegar sagnir hafa verið um þær leifar þessa katólska siðar, að leitast hafi verið við að ljóma bæinn upp með kertaljósum meir en ella á kyndilmessu. Laust fyrir aldamót telja þó fróðir menn, að þetta sé löngu útdautt. Á hinn bóginn eimdi lengi eftir af þeirri þjóðtrú, að sólskin á kyndilmessu væri illsviti svo sem segir í þessari alkunnu vísu:

Ef í heiði sólin sést á sjálfa kyndilmessu snjóa vænta máttu mest maður upp frá þessu.

Til eru vitnisburðir um nafngreint fólk, sem svo mikla trú hafði á þessari spá, að það bölvaði sólskini á kyndilmessu eða breiddi jafnvel fyrir glugga, ef sólin skein glatt á þessum degi. Varðandi atvinnulífið er þess annars að geta, að daginn eftir kyndilmessu hófst vetravertíð á Suðurlandi.


nánar

Árni Björnsson
2. febrúar 2012 22:39
Uppruni:

Einkunn

Sólarkaffi

Í mörgum þröngum fjörðum og dölum landsins, einkum á Vestfjörðum og Austfjörðum, líða oft nokkrar vikur eða mánuðir svo í skammdeginu, að sólin sést ekki yfir fjallabrúnir. Þegar hún birtist aftur, var og er víða venja að fagna henni með dálitlu tilhaldi svo sem kaffi og pönnukökum. Tímasetningin var auðvitað mismunandi eftir legu einstakra bæja, svo að vart var um sameiginlega hátíð að ræða fyrir heilt byggðarlag. Í kauptúnum gat hinsvegar komið fyrir að fólk tæki sig saman. Á síðari áratugum hafa sum átthagafélög í stærri bæjum, einkum Reykjavík, tekið upp þann sið að hafa svokkallað sólarkaffi einhvern dag í nánd við endurkomu sólarinnar í þeirra heimasveit.


nánar

Árni Björnsson
2. febrúar 2012 17:16
Uppruni:

Einkunn

Pálsmessa

Hún er 25. janúar, og þann dag á Sál frá Tarsus að hafa mætt Jesú Kristi á veginum til Damaskus, snúist til trúar á hann og hætt að ofsækja kristna menn. Eftir það verður hann Páll postuli. Þessi sinnaskipti Páls hafa löngum þótt draga nokkurn dilk á eftir sér bæði í náttúrunni sjálfri og hugarfari manna. Reyndar er það svo, að um þetta leyti er veturinn víða talinn hálfnaður og því heldur von á veðurbreytingum nálægt Pálsmessu. Hér á landi hefur veðrið á Pálsmessu verið talið marktækt fyrir veðurfar næstu vikna. Sólskin og heiðríkt veður á þessum degi boðar frjósama tíma, en sé þykkbiðri eða snjókoma má búast við harðri veðráttu. Um það vitna þessar vísur, sem þekktar eru í mörgum tilbrigðum víða um land:

Ef heiðbjart er og himinn klár á helga Pálus messu mun þá verða mjög gott ár mark skal hafa á þessu En ef þoka Óðins kvon á þeim degi byrgir fjármissi og fellis von forsjáll bóndinn syrgir. Dagurinn þótti líka viðsjárverður í ástamálum og hætt við að elskendum snerist þá hugur og ekki endilega til góðs eins og Páli. Einn siður hefur verið nokkuð þekktur sumstaðar hér á landi, en hann er sá að gefa hrafninum sérstaklega vel á Pálsmessu. Átti hann þá ekki að leggjast á lömb bóndans að vori. Að vísu var alsiða að gefa bæjarhröfnunum öðru hverju einhvern hroða í mannúðarskyni og samkvæmt kenningunni „Guð borgar fyrir hrafninn“. En á Pálsmessu fengu þeir betur úti látið en endranær. E.t.v. gat hann þá frekar látið vera að ofsækja lömbin eins og Páll að hundelta guðslömbin.


nánar

Árni Björnsson
25. janúar 2012 07:12
Uppruni:

Einkunn

Geisladagur

Svo er 13. janúar nefndur í almanaki, og eru um hann miklu eldri heimildir en eldbjargarmessu eða þegar í Sturlungu og Biskupssögum. Hinsvegar er mjög óljóst, hvernig á nafninu stendur, því að samsvarandi heiti dagsins er ekki að finna í nálægum löndum. Á máli kirkjunnar var þetta dagur heilags Hilaríusar. Dýrlingar voru að vísu stundum nefndir geislar á íslensku, en vandséð er, hversvegna dagur Hilaríusar hefði átt að hljóta slíkt nafn öðrum fremur. Verið getur, að hér sé skírskotað til Bethlehemsstjörnunnar, sem vitringarnar frá Austurlöndum sáu.

Katólska kirkjan ákvað á sínum tíma, að sá viðburður hefði orðið 6. janúar, sem á latínu var þá kallaður “festum luminarium”, sem vel mátti þýða með orðinu geisladagur. Var í því sambandi oft sýndur helgileikur í kirkjum, „hátíð stjörnunnar“. Dagsetningin hefði síðan getað færst til um eina viku, þar sem 6. janúar fékk annað þekktara nafn, Epiphania, þ.e. opinberun, auk þess að heita þrettándi dagur jóla. Nokkur tilhneiging virðist nefnilega hafa verið til þess að framlengja jólahátíðina um eina viku.


nánar

Árni Björnsson
13. janúar 2012 18:15
Uppruni:

Einkunn

Þrettándinn

Nafn hans er stytting úr þrettándi dagur jóla 6. janúar. Eins og áður er um getið var hann talinn fæðingardagur Jesú á undan 25. desember. En þegar sú tign var af honum tekin, hlaut hann í staðinn virðingarheitið ephiphania, sem merkir opinberun, og var þá svo látið heita, að Kristur hefði á þeim degi opinberast með þreföldum hætti hér á jörðu: tilbeiðslu vitringanna, skírninni í Jórdan og brúðkaupinu í Kana. Fyrsta opinberunin hefur einkum verið talin honum til gildis, enda heitir hann á sumum málum dagur hinna þriggja heilögu konunga. Hallgrímur Pétursson kveður svo: Opinberunarhátíð heitir þrettándi þá komu vitringar úr austurlandi.

Þrettándanóttin hefur líka átt sér heitið draumnóttin mikla, því að þá átti Austurvegskonunga að hafa dreymt fyrir fæðingu Jesú. Þá hefur það sannanlega veirð til sumstaðar á landinu a.m.k. að kalla þrettándann gömlu jólin eða jólanóttina gömlu. Ekki er ljóst, hvort þarna liggja að baki einhver munnmæli um, að hannhefði verið jóladagur á undan 25. desember, en það mætti furðulegt heita. Hitt kann vera, að þegar allt tímatalið færðist til um 1 daga við breytingun aúr gamla í nýja stíl árið 1700, þá hafi sumt fólk átt bágt með að botna í þeirri röskun og þrettándinn fengið þetta nafn, þótt þar skakki 1-2 dögum, sem er heldur lítilvægt, þegar menn hafa ekki dagatal hangandi uppi á vegg hjá sér.

Hvað þjóðtrú varðar, má segja að allt hið sama geti gilt um þrettándanótt og áður var sagt um nýársnótt. Þó er það allt í minna mæli. Ennfremur komu þrettándabrennur stundum í stað áramótabrennu, en það var einkum ef ekki viðraði nógu vel á gamlárskvöld. Þar sem þrettándinn var síðasti dagur jólanna, var oftast nokkuð um dýrðir á honum, vel haldið til í mat og drykk og mikið spilað. Var það stundum kallað að rota jólin. Og nú er hringur ársins fullur og byrjar nýja veltu.

Ljósmynd: Þrettándabrenna í Reykjanesbæ af www.vf.is.


nánar

Árni Björnsson
6. janúar 2012 14:37
Uppruni:

Einkunn

1234101112

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: