: Áliðnaður

Iðnaðurhusid_borgin
BendillEf smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Iðnaður

Iðnaður er mikilvægur hluti af atvinnulífi hverrar þjóðar. Hann hefur þó margvísleg áhrif á umhverfi og náttúru sem ekki eru öll af hinu góða. Stór iðnfyrirtæki losa t.d. mikið af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið þótt gerðar séu strangar kröfur til mengunarvarna í starfsleyfum.

Umhverfisstjórnun er því mikilvægur þáttur í allri slíkri starfsemi. Gerðar eru kröfur um „grænt bókhald“ hjá slíkum fyrirtækjum auk þess sem mörg þeirra setja sjálfum sér skýr umhverfismarkmið og vinna samkvæmt ítrustu varfærni í umgengni við náttúruna í starfsemi sinni. Tæplega 50 stofnanir og fyrirtæki halda grænt bókhald.

Þetta er þó ekki nándar nærri nógu útbreyddur metnaður. Umhverfisstjórnunarstaðallinn ISO 14001 er t.a.m. á fáum stöðum í heiminum eins lítið notaður og hér á landi. Aðeins 15 fyrirtæki hafa uppfyllt kröfur ISO 14001 til þessa.

Merkja má hve umhverfismeðvituð fyrirtæki eru með því að skoða hvort þau hafi umhverfisvottun, hafi umhverfisstefnu sína aðgengilega og helst á forsíðu heimasíðu sinnar og hvort að fyrirtækið hafi verið verðlaunað af opinberum aðilum fyrir umhverfisstarf sitt. Upplýsingar um öll þessi atriði er að finna hér á „grænum síðum“.


nánar

Náttúran er
15. janúar 2012 16:15
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Mengunarslys líklega af mannavöldum

Fjórir eru látnir og á annað hundrað slasaðir eftir mengunarslys í súrálsverksmiðju í vesturhluta Ungverjalands. Slysið er sagt vera eitt hið versta í landinu fyrr og síðar.

Neyðarástandi var lýst yfir í þremur sýslum í Ungverjalandi í dag eftir að rauð, báxítmenguð leðja rann frá verksmiðjunni í stríðum straumum. Auk þeirra fjögurra sem hafa fundist látnir er sex til viðbótar saknað.

Leðjan flæddi um að minnsta kosti sjö þorp og bæi, þar á meðal Devecser, þar sem ástandið var sagt afar alvarlegt. Svo öflugt var flóðið að það skolaði bifreiðum út af vegum og skemmdi brýr og hús.

Forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orban, segir að mengunarslysið í súrálsverksmiðju í vesturhluta landsins megi hugsanlega rekja til mannlegra mistaka. Fjórir létu lífið þegar ein milljón rúmmetra af báxít-menguðu vatni flæddi úr verksmiðjunni gegnum nokkur þorp. Að minnsta kosti 120 slösuðust.

Neyðarástandi var lýst yfir í þremur héruðum fyrr í dag. Búið er að stöðva lekann frá súrálsverksmiðjunni og góðar líkur eru taldar á því að hægt verði að koma í veg fyrir að úrgangsvatnið renni í Dóná.


nánar

Ríkisútvarpið
6. október 2010 10:24
Uppruni: Ríkisútvarpið ohf

Einkunn

Yfirvofandi stóriðjuhrun og Green New Deal

Helguvík

Í bloggi á ejunni.is í dag fer Dofri Hermannsson myrkum orðum um stóriðjuáform á landinu. Í inngangi segir hann:

Lengi hefur verið ljóst að ekki er til næg orka í 360 þt álver í Helguvík. Það er m.a.s. mjög ótryggt að hægt sé að útvega orku í 180 þt álver eins og nú er verið að reyna að fjármagna en til þess þarf um 315 MW. Þeir sem hafa bent á þetta undanfarin misseri hafa verið hrópaðir niður líkt og þeir sérfræðingar sem bentu á vanda bankanna af fólki sem hefur haft hagsmuni af því að halda blekkingunni áfram. Enginn þessara hagsmunaaðila hefur þó getað sýnt fram á hvar á að taka orkuna. Skþring bæjarstjórans í Reykjanesbæ var sú að orkan kæmi ekki úr borholum heldur af raforkunetinu. Einmitt, og mjólkin kemur úr fernum.

Í Helguvík er um kapal að ræða sem gengur ekki upp. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að OR bþst ekki við svari um fjármögnun Helguvíkurálvers fyrr en á nýju ári en það sem ekki kemur þar fram er að nú í nóvember þarf OR að gefa Mishubishi lokasvar um kaup á 5 túrbínum sem áttu að fara í að klára Hellisheiðarvirkjun og gera nýja virkjun í Hverahlíð/Gráuhnjúkum.
Upphaflega voru pantaðar 7 túrbínur (þá var Bitruvirkjun líka á borðinu) en í fyrra samdi OR sig frá því að kaupa tvær. Það kostaði fyrirtækið 1,3 ma króna sem þó var vel sloppið miðað við að þurfa að kaupa þær án þess að hafa fyrir þær verkefni.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Dofri Hermannson
9. október 2009 14:30
Uppruni: Dofri Hermannsson

Einkunn

Álver á Bakka líklegra núna

Háhitasvæði á Norðurlandi Fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík verður fyrsta álverið á heimsvísu sem knúið verður áfram eingöngu með rafmagni frá jarðhitavirkjunum, gangi áform Landsvirkjunar eftir. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær hefur Alcoa ákveðið að hefja vinnu við mat á umhverfisáhrifum vegna álversins. Með því hefst lögformlegt ferli byggingar álversins og með því aukast líkur um að fyrirhugað álver verði að veruleika.

Fyrirhugað álver yrði um 250 þúsund tonn og þyrfti 400 megavött af rafmagni sem koma af jarðhitasvæðum í nágrenni Húsavíkur, í landi Norðurþings, Skútustaðahrepps, Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar. Fjölmennur íbúafundur var á Húsavík í gær.

Endanleg ákvörðun um að álver verði reist er þó háð umhverfismatinu og jákvæðum niðurstöðum þess.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Alcoa sýnt vilja til þess að reikna með möguleika á stækkun álversins úr 250 þúsund tonnum í 346 þúsund tonn, sem er sambærilegt því sem fyrirtækið rekur á Reyðarfirði.


þessi grein er lengri, lesa meira...



mh
4. apríl 2008 11:51
Uppruni: Fréttablaðið

Einkunn

Stjórnsýslukæra vegna útgáfu byggingarleyfis fyrir álver í Helguvík

Náttúruverndarsamtök íslands Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála stjórnsýslukæru vegna útgáfu byggingarleyfis fyrir álver í Helguvíks. Náttúruverndarsamtökin krefjast þess að framkvæmdaleyfin sem gefin voru út af sveitarstjórnum Reykjanesbæjar og Garðs þann 12. mars. s.l. verði fellt úr gildi. Til bráðabirgða er þess krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar án tafar þar til mál þetta hefur verið til lykta leitt, sbr. 6. mgr. 8. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997, sbr. einnig 29. stjórnsýslulaga 37/1993.

Fram kemur í kærunni að Skipulagsstofnun gerði þrenns konar fyrirvara áliti sínu um álver í Helguvík. Í fyrsta lagi varðandi óvissu um orkuöflun, í öðru lagi varðandi orkuflutninga og í þriðja lagi um losunarheimildir fyrir gróðurhúsalofttegundir.

Í áliti Skipulagsstofnunar segir að, áður en Norðuráli Helguvík sf. verður veitt framkvæmda- og byggingarleyfi þurfi að liggja fyrir hvort fyrirtækið fær þá losunarheimild sem það þarf eða hafi sýnt veitanda losunarheimilda fram á hvernig losun gróðurhúsalofttegunda verði mætt.

Fram kemur í kæru Náttúruverndarsamtakanna að hvork liggi fyrir slík heimild né áætlun er sýni hvernig Norðuráls hyggist mæta losun gróðurhúsalofttegunda. T.d. með kaupum á losunarkvótum.

Fullyrðingar lögmanns Norðuráls í grein í Morgunblaðinu í dag þess efnis að "... ekki [sé] annars að vænta en að væntanlegu álveri Norðuráls við Helguvík verði úthlutað losunarheimildum vegna starfsemi sinnar ..." lýsir annað hvort vaný ekkingu eða skeytingarleysi Norðuráls um alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

Sjá kæru Náttúruverndarsamtaka Íslands hér
.

nánar

Árni Finnsson
26. mars 2008 13:45
Uppruni: NSÍ - Náttúruverndarsamtök Íslands

Einkunn

123491011

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: