Náttúran.is: Fyrirtækið
Um fyrirtækið
Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund
Náttúran er ehf.
Kt.: 411106-1870
Breiðahvammi - 810 Hveragerði
Símar: 483 1500, 483 1516, 483 1517
Fax: 483 1518
Netfang: nature@nature.is
Starfskraftar Náttúrunnar
Einar Bergmundur Arnbjörnsson, tækniþróunarstjóri
Sjá ferilskrá Einars
Netfang: einar@nature.is
Sími: 483 1500
Gsm: 892 5657
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Sjá ferilskrá Guðrúnar
Netfang: gunna@nature.is
Sími: 483 1500
Gsm: 863 5490
Hlutverk og markmið Náttúrunnar
Náttúran.is er starfrækt sem upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt.
Leiðarljós við þróun og hönnun vefsins hefur frá upphafi verið: „frumleiki, jarðtenging og kraftur“. Vefurinn er unninn af hugsjón og áhuga aðstandenda, á að virkja neytendur í átt að umhverfisvænni lífsstíl. Umhverfismeðvitund getur svo auðveldlega orðið raunveruleg á hverju heimili og í hverju fyrirtæki ef að framsetning upplýsinga er einfölduð með sjónrænu aðgengi og tengingar myndaðar milli áhugasviða, viðmiða og framboðs. Þannig vill Náttúran vera límið á milli upplýsinga og neytenda og einfalda alla framsetningu þeirra flóknu upplýsinga sem liggja að baki umhverfisviðmiða og reglugerða í nútímaþjóðfélagi.
Náttúran.is á að vera náttúrutenging nútímamannsins og umhverfislögga í jákvæðum skilningi þess heitis.Saga Náttúrunnar
Hugmyndin að Náttúrunni.is fæddist sumarið 2002 og hefur verið í þróun æ síðan. Frumkvöðull verkefnisins er Guðrún Arndís Tryggvadóttir myndlistarmaður (sjá ferilskrá). Hugmyndin byggir á því að nota veraldarvefinn sem tæki fyrir þá sem áhuga hafa á að kynnast leyndarmálum náttúrunnar nánar og gera neytendum umhverfisvænar lausnir sýnilegri og aðgengilegri.
Náttúran hefur gengið í gegnum langt ferli og hefur mótast í samvinnu við fjölda aðila þann tíma sem vefurinn hefur verið í þróun. Haustið 2005 var settur í loftið frumgerð Náttúrunnar sem nefndist Grasagudda.is. Á Grasaguddu var leitast við að tengja saman upplýsingar um umhverfismál hvaðanæva að. Grasagudda.is sameinaðist síðan Náttúrunni.is þann 25.04.2007 og er því ekki starfrækt sem slík áfram. Aftur á móti nefnist ein undirsíða Náttúrunnar Grasagudda og fjallar hún um grös og náttúrunytjar á breiðum grundvelli og tengir upplýsingar úr ýmsum áttum.
Allt frá árinu 2005 hefur verið unnið að því að byggja upp tengslanet og afla samvinnuaðila og styrkja fyrir hina ýmsu hluta vefsins. Náttúran er ehf. var stofnuð haustið 2006 af 12 aðilum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja sjá umhverfisviðmið virka í viðskiptalífinu og auka umhverfisvitund neytenda.
Sýnileiki Náttúran.is
Náttúran.is byggir hugmyndafræði sína á samstarfi við alla sem eitthvað hafa fram að færi á sviði náttúru og umhverfis. Náttúran.is vill auka sýnileika annarra en til þess að það geti orðið treystum við á að samvinnuviljinn sé fyrir hendi í báðar áttir. Sýnileiki Náttúran.is er grundvallaratriði í kynningu á vefnum svo hann geti kynnt aðra. Aðstandendur Náttúrunnar vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra miðla sem birt hafa efni um starfsemi okkar og hlökkum til þess að mega efla vistvæna framtíð Íslands í samvinnu við þessa frábæru miðla.
Sjá lista yfir umfjallanir, útvarpsþætti, greinar og viðtöl um Náttúran.is á öðrum miðlum.



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla












2







