Á döfinni:

Hafið samband við til að skrá viðburði

Póstlisti


Á póstlista Náttúrunnar eru sendar fréttir og tilboð.
Add to Google

Náttúran.is: Þjónustan

Leitarvél Náttúrunnar

Voffi er ein „persónan“ í merki Náttúrunnar og tákn fyrir leitarvélina hér á vefnum en hann þefar uppi og vísar þér á það sem þú ert að leita að hvort sem það er hugtak, fyrirtæki eða ákveðin vara. Prufaðu að slá inn það sem þú hefur áhuga á að finna hér í leitarreitinn efst fyrir miðju á síðunni.

Þú getur einnig farið beint á Grænar síður og leitað aðalflokkunum eða slegið inn atriðisorð eða heiti aðilans sem þú leitar að. Ef þú veist aðeins fyrsta stafinn í því sem þú vilt finna getur þú notað stafrófsleitina. Græna Íslandskortið er enn önnur leið til að leita hér á vefnum. Þú smellir á Grænt Íslandskort og sérð þá þrjá meginflokka sem táknaðir eru með þremur litum þ.e.: blár fyrir „sjálfbæran lífsstíl“, grænn fyrir „náttúru“ og appelsínugulur fyrir „menningu og samfélag“.

Ef þú finnur ekki eitthvað sem þú leitar að þá skrifaðu Voffa á nature@nature.is og hann hjálpar þér við leitina.

meira
  • Deildu með vinum

Fréttastefna Náttúrunnar

Fréttagátt fyrir alla
Náttúran.is er óháður regnhlífarvefur og birtir skoðanir allra sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hver sem er getur sent inn frétt og tilkynnt um viðburð. Þær fréttir sem birtar eru á Náttúrunni verða að birtast undir nafni höfundar og ber höfundur einn ábyrgð á skrifum sínum.

Siðferðileg mörk
Náttúran áskilur sér rétt til að taka út fréttir og „orð í belg“ sem eru særandi, móðgandi eða geta beinlínis skaðað einhverja persónu, fyritæki eða stofnun. Náttúran tekur ekki afstöðu til pólitískra mála en er yfirlýstur málsvari umhverfisins.

Grænar innlendar og erlendar
Grænar íslenskar: Stefna Náttúrunnar er að koma á framfæri öllu því sem fréttnæmt getur talist á sviði náttúru- og umhverfismála á Íslandi. Þar má nefna nýsköpun á sviði vöruþróunar og þjónustu, fundir og ráðstefnur, yfirlýsingar og kærur, ferðamál og útivera, uppskeru og ræktun, sem og allt það sem tengist þeim persónum, félögum, stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast málefninu á einhvern hátt.
Grænar erlendar: Náttúran.is leitast við að tengja Ísland við alþjóðasamfélagið og birtir greinar um þróun umhverfismála hvaðanæva að úr heiminum.

Senda frétt eða grein til Náttúrunnar.

Sjá veðurkort Náttúrunnar.

Við minnum á fréttafóðrun Náttúrunnar.

nánar
  • Deildu með vinum

Grænar síður Náttúrunnar

Náttúran.is lítur á það sem samfélagslega skyldu sína að þróa eins fullkomnar „grænar síður“ fyrir Ísland og mögulegt er. Grænu síðurnar* gefi þannig yfirsýn yfir hin fjölmörgu fyrirtæki og stofnanir sem tengjast náttúru og umhverfi á einn eða annan hátt. Grænu síðurnar tengja viðmið og vottanir við fyrirtæki og vörur og gefa hinum almenna neytanda möguleika á að beina viðskiptum sínum þangað sem honum finnst vera stunduð fyrirmyndar starfsemi. Grænar síður eru liður í að gera eftirfarandi markmið Náttúrunnar er ehf. að veruleika:

  • Að þróa tæknilegar lausnir að samskiptaveröld sem getur tengt á milli þátta sem annars hafa aðeins huglæga eða óbeina tengingu
  • Að auka veg íslenskrar náttúru og náttúruafurða í landkynningarlegu tilliti
  • Að efla atvinnutækifæri henni tengdri um allt land og á öllum sviðum
  • Að efla þátttöku sem flestra í umhverfismeðvituðum lifnaðarháttum og neyslu sem er síður mengandi eða skaðleg en önnur

Á grænum síðum eru upplýsingar um fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eða stunda eftirtalda starfsemi:

  • Hafa umhverfisvottun (vottun þriðja aðila) fyrir framleiðslu sína eða starfsemi
  • Eru seljendur umhverfis- og/eða siðgæðisvottaðrar vöru
  • Hafa opinbera umhverfisstefnu
  • Hafa fengið umhverfisviðurkenningu
  • Halda grænt bókhald
  • Eru eftirlitsaðilar, matsaðilar eða stofnanir
  • Eru í ferli til að fá vottun
  • Bjóða þjónustu tengda náttúru og/eða umhverfi
  • Stunda sjálfbæra starfsemi
  • Eru framleiðendur/innflytjendur náttúrulegrar framleiðslu og/eða heilsuvöru

Ekkert gjald er tekið fyrir grunnskráningu á grænar síður. Hægt er að bæta ítarupplýsingum við skráninguna gegn hóflegu skráningargjaldi til eins árs í senn. Vottanir og aðrar ítarupplýsingar þurfa að vera byggðar á kröfum og skilyrðum tiltekinna vottunaraðila og vera óvéfengjanlegar. Náttúran áskilur sér rétt til að kynna sér réttmæti innsendra upplýsinga og vinnur í þeim tilfellum með viðkomandi vottunar- og eftirlitsaðilum.

Til þess að komast að því hvort að þitt fyrirtæki eða einhver sem að þér finnst að ætti heima á Grænum siðum sé þar inni nú þegar, þá slærðu inn leitarorð sem tengjast geta viðkomandi aðila í leitarvélina efst á síðunni eða ferð beint inn á Grænar síður og leitar undir þeim flokki sem að þér finnst passa fyrir viðkomandi. Hafir þú tillögur að skráningu aðila á Grænar síður eða vilt breyta eigin skráningu af einhverjum ástæðum þá hafðu endilega samband og við leitumst við að fullkomna skráninguna. Allar tillögur eru vel þegnar enda ekki hægt að vinna slíkar síður án aðstoðar allra sem hlut eiga að máli.

Sendu fyrirspurn eða tillögu á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 150.

*Vörurmerkið „Grænar síður“ er í eigu Náttúrunnar er ehf.

nánar
  • Deildu með vinum

Græn kort Náttúrunnar

Grænt Íslandskort er samvinnuverkefni Náttúran.is og alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli forvinnu Náttúran.is við skráningar aðila á Grænar síður og slær smiðshöggið á kortlagningu vistænna kosta í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi. Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is og á ensku á Nature.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem þegar eru fyrir hendi á vefnum. Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki hefur unnið fyrir því. Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt. Þeir sem vilja skrá sig á græna kortið láti vita af sér á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!

Skoðaðu stutta kynningu á því hvernig græna kortið virkar

Skoða Græna Íslandskortið (á íslensku) eða Green Map of Iceland (á ensku).

Endurvinnslukortið sýnir nákvæma staðsetningu grenndargáma og endurvinnslustöðva á höfuðborgarsvæðinu en unnið er að því að fá upplýsingar og hnit sem gera okkur kleift að sýna staðsetningu allra endurvinnslu- og gámastöðva á landinu.

Skoða Endurvinnslukortið. 

Ef þú vilt vita meira, gera athugasemdir eða taka þátt í vinnu við kortin, þá skrifaðu okkur á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500 

nánar
  • Deildu með vinum

Náttúrumarkaðurinn

Vefverslun Náttúrunnar

Eitt af meginmarkmiðum Náttúrunnar er að veita neytendum samræmdar upplýsingar um umhverfisvænar og heilbrigðar vörur á óháðu markaðstorgi, þannig að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun byggða á samanburði óvéfengjanlegra upplýsinga um vottanir, uppruna og tilurð vörunnar, hreinleika, samsetningu og förgun innihalds og umbúða.

Náttúran starfrækir netverslun sem býður söluaðilum tvo möguleika til að tengja vörur viðmiðum og innihaldslýsingum:
Annars vegar með því að skrá vörur hvar sem þær eru seldar og hins vegar með því að skrá og selja vörurnar beint á „Náttúrumarkaðinum“, netverslun Náttúrunnar. Vörurnar tengjast þannig ítarefni um efni og innihald, umhverfisviðmið og förgunarleiðbeiningar svo fátt eitt sé nefnt. Náttúrumarkaðurinn veitir fulla þjónustu, bæði litlum og stórum söluaðilum. Þannig sitja stærri og minni aðilar við sama borð, líkt og á stórum „náttúrumarkaði“. Neytendur geta rölt um og borið saman vörur úr öllum áttum og verið þess fullvissir að einn aðili sé ekki tekinn fram yfir annan hvað skráningu varðar.

Sjá hvernig verslað er á Náttúrumarkaðinum.

Sjá skilmála og skilareglur.

Sendu fyrirspurn eða óskir um skráningu á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500

nánar
  • Deildu með vinum


1 síða 1 2

Náttúrumarkaður

Nýleg orð í belg


1984 fann ég á annað hundrað fjögurra blaða smára hjá Norræna húsinu í Reykjavík. Ég ...
Sigurjón Helgi Kristjánsson 10. 03. 2010 12:11:
grein: Hvítsmári og fjögurra blaða smári
Til hamingju með þessa nýjung. Gaman að sjá hve fjölbreytt síðan er orðin hjá ykkur ...
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir 10. 03. 2010 09:54:
grein: Hver tekur við hverju til endurvinnslu?
Ég kíkti aðeins á rammaáætlunina og sá hvergi verndargildismat. Er einungis verið að kynna þá ...
Sólveig 9. 03. 2010 12:38:
grein: Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Sjá Ákallið hans Ómars um þjóðarsátt: http://www.natturan.is/greinar/191/
Guðrún Tryggvadóttir 27. 02. 2010 11:50:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Það er grein um Sigríði í Brattholti í Sögu, tímariti Sögufélagsins. http://www.sogufelag.is/timarit/saga_41_2_efnisyfirl.htm http://www.sogufelag.is/timarit/saga.htm
Pétur Þorleifsson 27. 02. 2010 10:55:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Mig langar bara til þess að þakka fyrir þessa frábæru vefsíðu, algjör brunnur upplýsinga og ...
Gerður Pálmadóttir 26. 02. 2010 18:46:
grein: Samband við Náttúruna
Það er merkilegt samkvæmt punkti eitt að kærendur eiga að tilgreina hvaða virkjanir eiga að ...
Pétur Þorleifsson 29. 01. 2010 18:21:
grein: Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat