Náttúran.is: Styrktaraðilar
Styrktaraðilar Náttúrunnar

Vinnumálastofnun, „Kvennasjóður“ - 2005
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands - 2005 og 2006
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, „Skrefi framar" - 2005 (x2) og 2006
Bændasamtökin/Framleiðnisjóður, „Smáverkefnasjóður“ - 2005
Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur - 2006
Framleiðnisjóður landbúnaðarins - 2006
Umhverfisráðuneytið - 2006 og 2009
Landbúnaðarráðuneytið - 2007
Endurvinnslan hf. - 2007
Hópbílar hf. - 2007
Umhverfisfræðsluráð - 2007
Alþingi Íslendinga - 2008, 2009 og 2010
Háskóli Íslands - Verkfræði og náttúruvísindasvið - 2008 og 2009
Iðnaðarráðuneytið - 2008 og 2009
Menntamálaráðuneytið - 2009
Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar - 2009
Reykjavíkurborg - 2009
Landsvirkjun - 2010
Sjá einnig lista yfir aðila sem stutt hafa Náttúruna með birtingu auglýsinga hér á vefnum.
Reykjavíkurborg - Styrktaraðili Náttúrunnar
Í september 2009 fékk Náttúran.is styrk frá Reykjavíkurborg til að þróa Grænt Reykjavíkurkort sem birtast munu á vefjum á vegum borgarinnar. Fyrsti tengillinn er þegar virkur á vef Höfðuborgarstofu visitreykjavik.is og er hugsaður sem grænn leiðarvísir fyrir erlenda ferðamenn. Náttúran mun síðan þróa nýja Green Map hópa sérstaklega fyrir Reykjavíkurborg.
Náttúran.is vinnur Grænt Reykjavíkurkort/Green Map Reykjavík í samvinnu við Green Map System™ og Land- og ferðamálafræðistofu Verkfræði og Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn!
Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar - Styrktaraðili Náttúrunnar
Vorið 2009 sóttu forsvarsmenn Náttúrunnar um styrk til frekari þróunar „Grasa-Guddu“ vefuppflettirits um íslenskar jurtir til Náttúruverndarsjóðs Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups. Grasa-Gudda fékk styrk úr sjóðnum sem gerir okkur kleift að halda áfram með þróun hennar en stefnt er að því að birta fyrstu hluta Grasa-Guddu seinna á árinu.
Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn!
Iðnaðarráðuneytið - Styrktaraðili Náttúrunnar
Vorið 2008 sóttu forsvarsmenn Náttúrunnar til styrkjar til útgáfu „52ja góðra ráða fyrir þig og umhverfið“ enda ráðin prentuð í stóru upplagi til dreifingar og útbreyðslu umhverfisráða til almennings. Ráðuneytið veitti styrk til verkefnisins.
Vorið 2009 fékk Náttúran.is síðan styrk frá Iðnaðarráðuneytinu til áframhaldandi þróunar Græna Íslandskortsins/Green Map, en grænkortagerðin er samvinnuverkefni milli Náttúran.is, alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Land- og Ferðamálafræðistofu Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Sjá Græna Íslandskortið, og ensku útgáfuna Green Map Iceland.
Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn.
Umhverfisráðuneytið - Styrktaraðili Náttúrunnar
Vorið 2006 fékk verkefnið styrk frá Umhverfisráðuneytinu. Umhverfisráðuneytið styrkti Náttúruna ennfremur við opnun vefsins og tók þátt í kynningarátaki. Sjá vef umhverfisráðuneytisins.
Vorið 2009 fékk Náttúran.is síðan styrk frá Umhverfisráðuneytinu til áframhaldandi þróunar Græna Íslandskortsins/Green Map, en grænkortagerðin er samvinnuverkefni milli Náttúran.is, alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems og Land- og Ferðamálafræðistofu Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Sjá Græna Íslandskortið, og ensku útgáfuna Green Map Iceland.
Náttúran.is þakkar kærlega fyrir stuðninginn!



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla





















