Endurvinnsla : Ýmislegt
Endurvinnsla sparpera
Endurvinnsla sparpera (Compact Fluorescent Lamp integrated– CFLi)
Hvernig á að farga sparperum að líftíma þeirra loknum?
Aðrar reglur gilda um perurnar en venjulegt heimilissorp og því má ekki fara með þær sem slíkt. Þess í stað þarf að fara með þær á endurvinnslustöðvar til förgunar. Vinsamlegast komið aftur með perurnar í IKEA verslunina til endurvinnslu eða kynnið ykkur endurvinnslumöguleika í ykkar sveitarfélagi.
Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir mig sem viðskiptavin?
Með því að tryggja að sparperum sé fargað eða þær endurunnar á réttan hátt, hjálpar þú til við að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu manna. Sparperur innihalda kvikasilfur sem getur haft skaðleg áhrif á fólk og umhverfi ef það er losað út í umhverfið. Förgun verður að vera í samræmi við umhverfisreglugerðir á hverjum stað.
Hvernig get ég vitað hvort henda má sparperum með heimilissorpi eða hvort þeim þurfi að skila til endurvinnslu?
Rétt eins og allur rafmagns- og rafeindabúnaður sem IKEA selur, eru sparperurnar með tákni sem sýnir ruslatunnu á hjólum sem búið er að krossa yfir. Þetta er evrópskt tákn úr WEEE-tilskipuninni sem þýðir að afhenda þarf vöruna til endurvinnslu að líftíma hennar loknum (WEEE stendur fyrir Waste of Electric and Electronic Equipment).

Hvað verður um sparperur sem skilað er til IKEA?
Samþykktir endurvinnsluaðilar, sem eru sérfræðingar í endurvinnslu, sjá um sparperurnar. Yfirleitt eru 80% efnisins í perunni nýtt við endurvinnslu (málmur, gler og kvikasilfur). Hin 20% eru að mestu plast sem oftast er notað til orkuframleiðslu. Mjög lítill hluti peranna verður afgangs.
Ef peran brotnar
Ef köld pera brotnar lekur dálítið af kvikasilfri út úr henni í dropum sem dreifast um svæðið. Droparnir eru nokkuð fljótir að detta á gólfið með brotum úr perunni, t.d. glerbrotum. Ef heit pera brotnar fer gas- og málmkennt kvikasilfur út í andrúmsloftið.
Hvað á að gera ef köld pera brotnar?
Safnaðu saman brotum úr perunni með stífum pappír eða pappa og settu þau í glerkrukku með loki. Þurrkaðu síðan gólfið með litlum rökum klút. Settu klútinn í glerkrukkuna, lokaðu henni og merktu, t.d. með textanum „gæti innihaldið kvikasilfur úr sparperu“. Farðu með krukkuna á endurvinnslustöð sem tekur á móti úrgangi sem er hættulegur umhverfinu.
Notið ekki ryksugu því hún getur stuðlað að uppgufun kvikasilfursdropanna og dreift þeim um loftið. Það veldur aukinni hættu á innöndun.
Hvað á að gera ef heit pera brotnar?
Lokaðu dyrunum að herberginu þar sem peran brotnaði. Loftræstu herbergið (með því að opna glugga) og yfirgefðu það. ELC (The European Lamp Companies Federation) mælir með því að herbergið sé tómt í 20-30 mínútur.
Safnaðu síðan saman brotum úr perunni, með stífum pappír eða pappa og settu þau í glerkrukku með loki. Þurrkaðu síðan gólfið og fleti nálægt brotnu perunni með litlum rökum klút. Settu klútinn í glerkrukkuna, lokaðu henni og merktu, t.d. með textanum „gæti innihaldið kvikasilfur úr sparperu“. Farðu með krukkuna á endurvinnslustöð sem tekur á móti úrgangi sem er hættulegur umhverfinu.
Notið ekki ryksugu því hún getur stuðlað að uppgufun kvikasilfursdropanna og dreift þeim um loftið. Það veldur aukinni hættu á innöndun.
Heimild: Sænska eiturefnastöðin. Efni birt þýtt á vef IKEA.
nánar
Sænska eiturefnastöðin
1. september 2010 16:41
Uppruni: IKEA á Íslandi
Einkunn
Handtöskur úr endurnýttum umbúðum
Kolors.is er ný netverslun sem selur handunnar töskur úr endurnýttu efni s.s. umbúðum af ýmsum vörum t.d. sælgætisbréfum, gosflöskumiðum, strikamerkjum, dagblöðum og tímaritum sem annars hefðu endað í landfyllingu. Kolors er með einkaleyfi fyrir sölu tasknanna hér á landi en þær eru framleiddar af bandaríska fyrirtækinu Ecoist.
Samstarfsaðilar Ecoist eru meðal annars: The Coca-Cola Company, Disney, Mars, Frito Lay, Luna Bar, og AVEDA. Töskurnar eru framleiddar á grundvelli Fair Trade af handverksfólki í Perú og Mexíkó. Sem hluti af umhverfisstarfi fyrirtækisins er að eitt tré er gróðursett fyrir hverja selda tösku.
Hver taska er handunnin og þess vegna eru engar tvær töskur alveg eins. Töskurnar eru sterkbyggðar, traustar og hrinda frá sér vatni. Til eru margar stærðir og tegundir og hægt að finna tösku sem hentar vel við hvaða klæðnað og tilefni sem er. Í myndinni Sex and the City 2 má sjá Samönthu (Kim Cattrall) skarta silfur tösku frá Ecoist. Auk þess hafa fjölmargar stjörnur í Hollywood skartað töskum frá Ecoist s.s. Cameron Diaz, Christina Ricci, Mary Louise Parker, Paris Hilton o.fl.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. ágúst 2010 01:07
Uppruni: Kolors.is / Náttúran.is
Einkunn
Flokkarinn og Endurvinnslukortið
Flokkarinn.is er vefur sem Íslenska gámafélagið stendur að en vefurinn á að hjálpa fólki og fyrirtækjum að flokka ruslið sitt auk þess sem hann þjónustar sveitarfélög með kynningu og fræðslu um flokkunarmál, ekki sýst um þriggja tunnu kerfi Íslenska gámafélagsins sem er nú starfrækt í tíu sveitarfélögum víðs vegar um landið. Sveitarfélögin eru: Stykkishólmsbær, Skaftárhreppur, Flóahreppur, Fljótsdalshreppur, Kópavogur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hveragerðisbær, Fjallabyggð og Árborg.
Nýlega var settur kubbur inn á forsíðu Flokkarans þar sem vísað er beint inn á Endurvinnslukort Náttúran.is og gefur þannig gott yfirlit yfir hvar á landinu er tekið við hvaða flokkum til enndurvinnslu. Endurvinnslukortið er eitt af fjölmörgum verkefnum sem Náttúran.is hefur ráðist í að eigin frumkvæði en ekkert slíkt yrirlit var til, í aðgengilegu formi fyrir allan almenning, áður en ráðist var í verkið. Stöðugt er unnið að því að fullkomna kortið og eru allar ábendingar og viðbætur okkur mikils virði.
Það virkar endurvinnsluhvetjandi á fólk að vita nákvæmleg hvert það á að fara og við hvaða flokkum er tekið á hverjum stað. Sveitarfélög, skólar og aðrir aðilar sem sjá sér fært að setja myndakubb með tengli á Endurvinnslukortið hafi samband við nature@nature.is til að fá kubb sendan í réttri stærð fyrir sinn miðil.

nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
11. ágúst 2010 11:53
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Hver tekur við hverju til endurvinnslu?

Endurvinnsla sorps er ein mikilvægasa leiðin til að minnka ágang á gæði jarðar og ætti að vera sjálfsagður þáttur í hverju fyrirtæki og á hverju heimili. Um 1/7 hluti alls úrgangs fellur frá heimilum en 6/6 frá fyrirtækjum heimsins. Með endurvinnslu eykst meðvitund um hvað við sóum miklu og verðmæt efni komast aftur í umferð og hættuleg efni fá þá meðhöndlun sem þarf til að gera þau minna skaðlega umhverfinu. Reynslan sýnir að endurvinnsla hvetur til minni sóunar og gerir fólk meðvitaðara um ábyrgð sína gagnvart umhverfinu. Skynsamlegast er auðvitað að velja frekar náttúrulegri efni og umbúðaminni vörur og flokka til endurvinnslu það sem endurvinnanlegt er, en alltaf fellur eitthvað til af sorpi, það er óhjákvæmilegt í nútíma þjóðfélagi.
Til þess að einfalda endurvinnsluna og hvetja fólk til að taka þátt í því að minnka magn sorps sem fer óflokkað í heimilistunnuna engum til gagns né gleði hefur Náttúran gert Endurvinnslukorten það er grænt kort hér á vefnum sem sýnir þér alltaf hvar næsti grenndargámur eða endurvinnslustöð í þínu næsta nágrenni er að finna og segir þér einnig hverju er tekið á móti þar. Nú þegar er búið að kortleggja stærstan hluta landsins en unnið er að því að safna upplýsingum um hvern einasta stað á landinu þannig að Endurvinnslukortið ný tist öllum alltaf.
Sjá dæmi: Krakkalýsi.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
6. ágúst 2010 16:38
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Pappamassi - skemmtilegur grautur
Nei þetta er ekki heilagrautur heldur pappamassi. Það er einfalt og skemmtilegt að gera pappamassa.
Eins og við erum alltaf að hamra á hér á síðunni er rusl ekki bara rusl heldur hráefni sem hægt er að vinna aftur og aftur. Þú getur gert ýmislegt úr pappírsruslinu, t.a.m. búið til skál úr úr dagblöðunum sem safnast upp hjá þér. Pappamassauppskriftin er sáraeinföld:
Það sem til þarf er:
Eggjabakkar eða dagblöð.
Vatn og plastfata
1/2 pakki af ódýru veggfóðurslími (púður)
1 kg hveiti
- Dagblöð eða eggjabakkar rifnir og bleyttir upp í volgu vatni í fötu. Látið liggja í einn sólarhring. Hægt er að hræra í blöndunni af og til til að leysa blöðin betur upp. Sumir nota töfrasprota, hrærivél eða borvél með hræripinna.
- Blaðasúpan tekin uppúr fötunni og mesta vatnið látið leka af.
- Sett aftur í fötuna með blöndu af veggfóðurslími, hrært vel í. Hveiti bætt út í blönduna, en það er ekki nauðsynlegt. Tilbúið til mótunar í form sem massinn getur fengið að þorna í eða á.
Að gera skál í skál er eitt það einfaldasta en auðvitað er hægt að gera eða finna alls konar hluti sem form fyrir massann en hafa ber í huga að það þarf að geta haldið utan um blautan massann og þolað bleytu í lengri tíma án þess að leysast upp eða bólgna. Hægt er að láta þunna plastfólíu í það form sem pappamassinn á að þorna í.
Auk dagblaðapappírs og eggjabakka er t.d. tilvalið að nýta afganga af skrautpappír, poka eða öskjur sem þú situr uppi með eftir jól eða afmæli. Eða bæta jurtum eða öðrum aðskotahlutum í pappamassann. Til að lita massann er annað hvort hægt að setja lit út í blönduna sjálfa eða lita þegar þurrt er orðið. Lakka síðan og skreyta af hjartans list.
Góða skemmtun!
meira
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. júlí 2010 22:45
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















