Fræðsla: Vísindi
Námskeið í Háskóla Íslands um erfðatækni, umhverfi og samfélag
Læknadeild HÍ býður nú upp á námskeið á MS stigi sem er opið nemendum Heilbrigðisvísindasviðs og Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Námskeiðið verður kennt sem lotunámskeið aðra vikuna í ágúst. Samkvæmt kennsluskrá er efni námskeiðsins lýst á eftirfarandi hátt:
Erfðatækni hefur verið í örri þróun síðustu ár og er nú orðið ómissandi tæki í margskonar grundvallarrannsóknum í lífvísindum. Hún hefur einnig verið hagnýtt í læknisfræði, landbúnaði og iðnaði. Mikil átök hafa orðið um hvort rétt sé að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið og nýta afurðir sem unnar hafa verið úr þeim. Settar hafa verið mjög strangar reglur víða um heim sem takmarka nýtingu þessara lífvera. Umræðan í samfélaginu er oft óvægin og mótast oftar en ekki af takmarkaðri þekkingu á málefninu. Í námskeiðinu verður farið yfir hvað felist í erfðatækni og hvernig megi nýta þessa tækni í grunnrannsóknum, læknisfræði, landbúnaði og matvælaiðnaði. Lögð verður áhersla á að fjalla um málið frá öllum hliðum og kynntir verða bæði möguleikar og takmarkanir við beitingu tækninnar, þ.m.t. hugsanlegar hættur fyrir heilsu manna og umhverfið. Námskeiðið er opið öllum sem stunda framhaldsnám við ríkisháskólana fjóra í greinum sem eiga sér snertifleti við nýtingu erfðatækni, t.d. í líffræði, læknisfræði, búvísindum og umhverfis- og auðlindafræði. Fastir kennarar úr samstarfsnetinu munu halda fyrirlestra um efni á sínu sérsviði auk þess sem gestakennarar verða fengnir til þess að fjalla um hagnýtingu erfðatækni í atvinnulífinu og stefnumörkun stjórnvalda á þessu sviði. Nemendum verður ætlað að rýna valdar vísindagreinar og fjalla um þær á gagnrýninn hátt. Þeir munu einnig flytja stuttan fyrirlestur um efni sem valin verða af kennurum.
Þetta væri ekki frá sögu færandi ef staðreyndin væri ekki sú að allir sem koma að kennslunni (að einum undanskildum) eru meðal 37 menninganna sem skrifuðu undir áskorun til alþingis gegn tillögu að þingsáliktunartillögu um að Ísland banni ræktun erfðabreyttra lífvera undir berum himni. Áreiðanlegar heimildir innan háskólans herma að þessi eini aðili hafi verið erlendis þegar undirskriftum var safnað og að hann sé þeim sammála.
Kennarar námskeiðsins eru þessir: Áslaug Helgadóttir, LBHÍ, Jón Hallsteinn Hallsson, LBHÍ, Eiríkur Steingrímsson, HÍ, Magnús Karl Magnússon, HÍ, Ólafur S. Andrésson, HÍ, Arnar Pálsson, HÍ, Zophonías O. Jónsson, HÍ, Kristinn P. Magnússon, HA og Oddur Vilhelmsson, HA.
37 menningarnir sem skrifuðu undir ofannefnda áskorun til alþingis:
- Matvælastofnun (1)
- Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun
- MATÍS (2)
- Anna Kristín Daníelsdóttir, sviðsstjóri, Matís
- Guðmundur Óli Hreggviðsson, fagstjóri, Matís
- LBHÍ (5)
- Ágúst Sigurðsson, rektor og búfjárerfðafræðingur LBHÍ
- Áslaug Helgadóttir, prófessor í jarðrækt og plöntukynbótum, LBHÍ
- Emma Eyþórsdóttir, dósent í búfjárerfðafræði, LBHÍ
- Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent í fóðurfræði, LBHÍ
- Jón Hallsteinn Hallsson, lektor, Auðlindadeild LBHÍ
- HR (2)
- Karl Ægir Karlsson, dósent, Tækni- og verkfræðideild, HR
- HA (2)
- Kristinn P. Magnússon, dósent, Auðlindadeild HA.
- Oddur Vilhelmsson, dósent, Auðlindadeild HA.
- Hólar (1)
- Ólafur I. Sigurgeirsson, lektor, Fiskeldisdeild Hólaskóla.
- Keldur (5)
- Ástríður Pálsdóttir, sérfræðingur, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
- Bergljót Magnadóttir, sérfræðingur, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
- Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir, sérfræðingur, Tilraunastöð HÍ í meinafræði Keldum
- Edda B. Ármannsdóttir, sérfræðingur, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
- Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, sérfræðingur, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
- Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ (5)
- Arnar Pálsson, dósent, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
- Guðmundur Eggertsson, prófessor emerítus, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
- Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
- Ólafur S. Andrésson, prófessor, Líf- og umhverfisvísindadeild, HÍ.
- Snæbjörn Pálsson, dósent, Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ
- Lyfjafræðideild HÍ (1)
- Már Másson, prófessor, Lyfjafræðideild, HÍ.
- Læknadeild HÍ (10)
- Eirikur Steingrímsson, prófessor, Læknadeild, HÍ.
- Guðmundur Þorgeirsson, prófessor og deildarforseti Læknadeildar, HÍ.
- Helga M. Ögmundsdóttir, prófessor, Læknadeild HÍ.
- Jón Jóhannes Jónsson, dósent, Læknadeild HÍ.
- Jórunn E. Eyfjörð, prófessor, Læknadeild HÍ.
- Magnús K. Magnússon prófessor, Læknadeild, HÍ.
- Pétur Henrý Petersen, lektor, Læknadeild HÍ.
- Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ.
- Stefán Þ. Sigurðsson, dósent, Læknadeild, HÍ.
- Þórarinn Guðjónsson, dósent, Læknadeild HÍ.
- Íslensk Erfðagreining (3)
- Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
- Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri erfðarannsókna, Íslenskri erfðagreiningu
- Þórunn Rafnar, framkvæmdastjóri krabbameinsrannsókna, Íslenskri erfðagreiningu
- BioPol (1)
- Bjarni Jónasson, verkefnisstjóri, BioPol sjávarlíftæknisetur
Kallaðir verða inn gestafyrirlesarar – Helga Margét Pálsdóttir (MAST, fjallar um reglugerðir varðandi EB fæðu), Ásgeir Björnsson (UST – fjallar um reglugerðir vegna nýtingar erfðabreyttra lífvera), Guðni Elísson (HÍ, fjallar um deilur vegna erfðatækni), og Þorvarður Árnason (Rannsóknstofnun HÍ á Höfn), sem fjallar um varúðarregluna.
Athyglisvert er að ekki hefur verið tilgreindur fyrirlesari til að fjalla um áhrif erfðanbreyttrar fæðu á heilsu manna og dýra.
Alvarlegur galli á þessu námskeiði er að það virðist vera tilkomið af pólitískum en ekki fræðilegum ástæðum. Athygli vekur að eini plöntulífeðlisfræðingurinn sem hefur hafið upp raust sína gegn ræktun erfðabreyttra lífvera – og það á fræðilegum og yfirveguðum grundvelli þ.e. Kesara Anamthawat Jónsson er ekki hluti af þessi teymi og maður spyr sig hvers vegna?
Ljósmynd: Bygg, Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. febrúar 2012 20:22
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Kristín Vala Ragnarsdóttir kosin varaforseti Balaton hópsins
Kristin Vala Ragnarsdottir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, hefur verið kjörin varaformaður The Balaton Group, sérfræðingahóps um sjálfbærni.
Balaton hópurinn hefur hist árlega síðan 1982 til að ræða efni sem tengjast sjálfbærni, en hópurinn hélt m.a. vinnuviku hér á landi í september 2010 og þar af voru tveir ráðstefnudagar opnar almenningi. Þar velti hópurinn fyrir sér spurningunni – eru til aðrar leiðir en að mæla velgengni þjóða en með vergum hagvexti og ef já hverjar eru þá áskoranirnar, tækifærin og aðferðirnar? Ráðstefnan var unnin innan ramma niðurstaðna skýrslu sem Prófessor Tim Jackson skrifaði árið 2009 fyrir Sjálbærniframkvæmdastjórn Bretlands (UK Sustainability Commission) undir heitinu Velgengi án Hagvaxtar: Umbreytni í Sjálfbært Hagkerfi (Prosperity Without Growth: Transition to a Sustainable Economy). Þar setur Jackson fram 12 skrefa líkan fyrir velgengi þjóða innan ramma vistkerfa jarðarinnar.
Balaton hópurinn var stofnaður af Donellu Meadows og Dennis Meadows sem skrifuðu Takmörk hagvaxtar (Limits to Growth) fyrir Rómarhópinn (Club of Rome) 1972. Þátttakendur á ráðstefnunni eru m.a. frá stofnunum sameinuðu þjóðanna, fyrrverandi efnahagsráðgjafar forseta Bandaríkjanna, Umboðamaður komandi kynslóða í Ungverjalandi, prófessorar og sérfræðingar frá ýmsum frjálsum félagasamtökum.
Náttúran óskar Kristínu Völu til hamingju með varaforsetaembættið.
Sjá nánar um Balaton hópinn hér balatongroup.org.
Ljósmynd: Kristín Vala Ragnarsdóttir, ljósm. Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. janúar 2012 00:12
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Blái marmarinn 2012
Geimferðastofnun Bandaríkjanna birti nýja gervitunglamynd af Jörðinni í gær. Upplausn ljósmyndarinnar er mikil og sýnir jörðina í áður óséðu ljósi.
Það var Suomi NPP gervitunglið sem náði myndinni. Gervitunglinu var skotið á loft seint á síðasta ári. Því er ætlað að fylgjast með og rannsaka veðurfar jarðarinnar.Myndin er kölluð „Blue Marble 2012" og er það vísun í ljósmynd sem geimfarar Apollo 17 geimskutlunnar náðu af jörðinni árið 1972.
Vonast er til að Suomi NPP gervitunglið eigi eftir að endurbæta veðurspár ásamt því að auka skilning vísindamanna á langtíma breytingum á veðurfari Jarðarinnar.
Hægt er að skoða myndin í fullri stærð á heimasíðu NASA.
nánar
Vísir.is
27. janúar 2012 07:36
Uppruni: Vísir.is
Einkunn
Vísindalegar rannsóknir
Á Græna kortinu er hægt að fá upplýsingar um vísindalegar rannsóknir.
Skilgreiningin sem við flokkum eftir er eftirfarandi:
Rannsóknarsetur háskóla, stofnana sem og einkaaðila sem vinna að rannsóknum á sviði umhverfis og náttúru.
Sjá nánar um vísindalegar rannsóknir hér á Græna kortinu undir flokknum „Vísindalegar rannsóknir".
Grafík: Myndtákn Green Map® System flokksins „Vísindalegar rannsóknir“.
nánar
Náttúran er
8. nóvember 2011 09:42
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Laxfiskar og virkjanir
Ýmsir velta fyrir sér hvaða áhrif virkjanir hafa á göngu laxfiska og hvaða árangur mótvægisaðgerðir beri.
Fimmtudaginn 3. nóvember 2011 kl. 11:50 verður haldinn í Sal 2 í Háskólabíó fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja.
Fyrirlesari er Dr. Margaret J. Filardo, sem hefur í tvo áratugi verið leiðandi í rannsóknum á lífsskilyrðum laxastofna í virkjuðum ám. Hún er forstöðumaður Fish Passage Center í Oregonfylki í Bandaríkjunum, þar sem rannsakaðar eru gönguleiðir seiða og fullorðinna fiska og veitt ráðgjöf um gerð fiskvega í ám sem hafa verið virkjaðar til raforkuframleiðslu.
Tilefni fyrirlestrarins er að nú stendur yfir opið umsagnarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra um verndun og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði. Umsagnarferlinu lýkur 11. nóvember 2011 og fer málið í kjölfarið til meðferðar Alþingis. Athyglin beinist m.a. að villtu laxa- og sjóbirtingsstofnunum í Þjórsá og áhrifum virkjana í neðri hluta árinnar á þá.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða, og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.
Allir eru velkomnir.
Grafík: Lax, af Wikipediu
nánar
Háskóli Íslands
2. nóvember 2011 09:05
Uppruni: Háskóli Íslands
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
+ Fleiri ummæli















