Samfélagið: Stjórnsýsla
Ráðstefna um Vistvæn innkaup
Umhverfisráðuneytið og fjármálaráðuneytið boða til ráðstefnu um vistvæn innkaup á Grand Hótel föstudaginn 5. mars 2010. Ráðstefnan er öllum opin. Skráning fer fram á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.
Dagskrá:
8.00 Mæting og morgunverður í Gullteigi á Grand Hótel
8.30 Setning ráðstefnunnar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
8.40 Stefna ríkisins í vistvænum innkaupum. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
9.00 Initiative and action plans on public procurement. Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI, innkaupaþjónusta ríkis og sveitarfélaga í Danmörku.
9.30 Vistvæn innkaup hjá Reykjavíkurborg. Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar
9.40 Vistvæn innkaup út frá sjónarhorni minni sveitarfélaga. Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi
9.50 Pallborðsumræður
- Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
- Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa
- Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi
- Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI í Danmörku
10.15 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna og fyrrverandi umhverfisráðherra.
Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.
Verkefnið Vistvæn innkaup er með heimasíðuna http://vinn.is.
Kynningarfundur fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf
Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf þriðjudaginn 9. febrúar kl. 14:30-16:30 í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundurinn verður svo endurtekinn 16. febrúar á sama stað og tíma.
Ný matvælalöggjöf tekur gildi 1. mars. n.k. Sérkröfur til búfjárafurða taka gildi 1. nóvember 2011. Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en skv. skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr. 143/2009) er matvælafyrirtæki fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eða ekki, og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki.
Dagskrá:
- Af hverju ný matvælalöggjöf?
- Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
- Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?
Fulltrúar frá Matvælastofnun annast kynningu og verður boðið upp á umræðu að henni lokinni. Fundurinn er skipulagður í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og mun Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins stýra fundinum.
Samskonar kynningarfundur fyrir matvælifyrirtæki verður haldinn á Akureyri þann 22. febrúar kl.14:30 – 16.30 og mun sá fundur vera auglýstur síðar.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka@si.is. Taka skal fram á hvaða fund þið hyggist koma.
Sjá upplýsingar um matvælalöggjöfina á heimasíðu Matvælastofnunar
Náttúruvernaráætlun samþykkt
Alþingi samþykkti 2. febrúar 2010 tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009-2013. Með ályktun Alþingis er lagt til að hafist verði handa um friðlýsingu tólf svæða sem ætlað er að stuðla að traustri verndun íslenskrar náttúru og framkvæmd alþjóðlegra samninga um náttúruvernd hér á landi.
Þessari stefnumótun þingsins verður nú hrint í framkvæmd innan Umhverfisstofnunar, í nánu samstarfi við heimamenn og sveitarfélög. Mun stofnunin gera drög að friðlýsingu svæðanna í samráði við landeigendur, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta og í framhaldi af því gera tillögu um friðlýsingu til ráðherra.
Náttúruverndaráætlun 2009-2013 má lesa á vef Alþingis og nánar var sagt frá efni hennar þegar umhverfisráðherra mælti fyrir henni.
Sjá þingsályktunartillöguna um náttúruverndaráætlun 2009-2013 (pdf) sem nú er orðin að lögum.
Innleiðing Árósarsamningsins undirbúin
Vinna er hafin hjá umhverfisráðuneytinu við að semja frumvarp til innleiðingar Árósasamningsins. Samningurinn tryggir aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að semja lagafrumvarp til innleiðingar samningsins, sem stefnt er á að leggja fyrir Alþingi næstkomandi haust. Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi liggi fyrir 1. júní næstkomandi, sem þá muni fara í almenna kynningu, þar sem hægt verður að gera athugasemdir við efni frumvarpsins áður en það verður lagt fram.
Nefndarmenn eru:
- Kristín Rannveig Snorradóttir, formaður, umhverfisráðuneyti.
- Ingvi Már Pálsson, lögfræðingur, tilnefndur af iðnaðarráðuneyti.
- Sigríður Norðmann, lögfræðingur, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.
Niðurstöður umhverfisþings
Ég vona að þessi samantekt, líkt og öll önnur vinna við Umhverfisþing 2009, endurspegli sjálfbæra þróun í reynd. Sjálfbær þróun er ekki kyrrstaða eða ástand, heldur felst hún í sífelldri endurskoðun, virkni og þróun. Þegar kemur að því að móta stefnu ríkisins í sjálfbærni dugar ekki að setja nokkra sérfræðinga í fundarherbergi og setja þeim það verkefni að semja stefnuna. Stefnu ríkisins í sjálfbærri þróun þarf að finna með lýðræðislegri aðferð sem endurspeglar sjálfbærni.
Sú aðferð er í raun einföld. Hún felst í því að skapa aðstæður þar sem allir hópar þjóðfélagsins geta haft rödd, og sem flestir leggja hönd á plóg. Á Umhverfisþingi 2009 var einn liður í að skapa þær aðstæður mikill fjöldi erinda, þar sem hægt var að kynna sér þá ótal möguleika sem fyrir hendi eru. Þessi erindi vöktu mig og aðra fundargesti til umhugsunar. Enn mikilvægara var svokallað „heimskaffi,“ þar sem fundargestir sjálfir skiptust á skoðunum á raunverulegum samráðsvettvangi. Þessir samráðsfundir eru leið sem tryggir virkni og þátttöku allra og eru þar með lýðræðislegir í raun og veru. Ég er ánægð að sjá hversu vel gekk að ná niðurstöðum á heimskaffinu, en samantekt þeirra má lesa hér á síðunni.
Fyrir Umhverfisþingi 2009 lágu drög að stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun, Velferð til framtíðar. Almenningi var boðið að gera athugasemdir við drögin, sem og þátttakendum í þinginu sjálfu, og nú er langt komin vinna við að taka tillit til þeirra athugasemda innan umhverfisráðuneytisins. Ég bíð spennt eftir að geta kynnt þá stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun sem kemur út úr þessu ferli – stefnu sem ekki aðeins fjallar um sjálfbærni heldur hefur orðið til með því móti að tryggja virkni og aðkomu sem flestra, með sjálfbærri þróun.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
Sja upptökur erinda og glærur.
Sjá fréttir af umhverfisþingi.



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla





















