Landið: Gönguleiðir

Náttúruganga

Á Græna kortinu er hægt að fá upplýsingar um náttúrugöngu.

Skilgreiningin sem við flokkum eftir er eftirfarandi:
Félög eða fyrirtæki sem sérhæfa sig í skipulögðum gönguferðum um náttúru Íslands.

Sjá nánar um náttúrugöngu hér á Græna kortinu undir flokknum „Náttúruganga".

Grafík: Myndtákn Green Map® System flokksins „Náttúruganga“.


nánar

Náttúran er
20. ágúst 2011 14:30
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Varið verður 42 milljónum til brýnna framkvæmda á friðlýstum svæðum nú í vor

Frá Skaftafelli

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt tillögu Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um að veita 41,9 m kr. til brýnna framkvæmda nú í vor og sumar á friðlýstum svæðum sem jafnframt eru vinsælir viðkomustaðir ferðamanna.

Á síðastliðnu ári urðu miklar umræður um hnignandi ástand fjölmargra fjölsóttra ferðamannastaða. Umhverfisráðuneytið óskaði þá eftir sérstakri úttekt á þeim svæðum sem Umhverfisstofnun taldi að verst stæðu og þar sem brýnt væri að bregðast við með aðgerðum. Í skýrslu Umhverfisstofnunar er ástandi svæðanna lýst ásamt brýnustu aðgerðum til að viðhalda verndargildi þeirra og tryggja öryggi ferðamanna sem á svæðin koma. Í ljósi stóraukningar í fjölda ferðamanna var ákveðið að ráðast strax í aðgerðir á árinu 2011 til að sinna brýnustu verkefnum á rauðlistuðum svæðum. Fyrir fjárveitingu ríkisstjórnarinnar á þessu ári verður unnið að verkefnum við Gullfoss, Geysi í Haukadal, friðlandið í Dyrhólaey, Friðland að Fjallabaki, náttúruvættið á Hveravöllum og náttúruvættið í Surtarbrandsgili.

Ráðuneytið leggur höfuðáherslu á aðgerðir sem tryggja verndargildi og öryggi, en helstu verkefni sem unnið verður að á næstu mánuðum eru göngustígar, stikun gönguleiða, útsýnispallar, öryggisgirðingar, merkingar, fræðsluskilti, viðvörunarskilti, gróðurbætur og eftirlit. Framkvæmdirnar eru brýnni en ella vegna þess að spár gera ráð fyrir metfjölda ferðamanna á þessu ári, sem eykur álag á viðkomandi svæði og undirstrikar nauðsyn þess að búa vel að öryggi ferðamanna og tryggja góða aðkomu á vinsæl svæði.

Kannanir sýna að mikill meirihluti ferðamanna nefnir náttúru Íslands sem helstu ástæðu fyrir heimsókn sinni til landsins. Til að byggja Ísland upp sem áfangastað ferðamanna þarf að tryggja að náttúra landsins, helsta auðlindin sem ferðaþjónustan byggir á, glati ekki verndargildi sínu og aðdráttarafli. Það þarf að útbúa náttúruverndarsvæðin þannig að þau geti tekið við aukinni umferð ferðamanna og skapað atvinnutækifæri og tekjur á landsbyggðinni.

Ljósmynd: Frá Skaftafelli, ljósm. Árni Tryggvason.


nánar

Umhverfisráðuneytið
3. maí 2011 16:29
Uppruni: Umhverfisráðuneytið

Einkunn

Farfuglar bjóða þér í gönguferð í Valaból í dag

Í tilefni af Grænum apríl bjóða Farfuglar öllum áhugasömum upp á gönguferð í Valaból í Hafnarfirði í dag þ. 28. apríl.

Lagt verður af stað frá bílaplani rétt fyrir ofan Kaldársel kl. 18:00 og reiknað er með að gangan taki um 2 tíma. Göngufólk taki með sér hlýjan og skjólgóðan fatnað en Farfuglar bjóða upp á heitt kakó og kruðerí þegar áð verður við Músarhelli.

Farfuglar reka 12 farfuglaheimili víðs vegar um landið, þar af tvö í Reykjavík. Sjá öll farfuglaheimiin hér á Grænum síðum í flokknum Þjónusta::Ferðaþjónusta::Farfuglaheimil sem og á Græna Íslandskortinu í flokknum Umhverfisvæn ferðaþjónusta.

 


nánar

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
28. apríl 2011 09:08
Uppruni: Farfuglaheimilið í Laugardal / Náttúran.is

Einkunn

Gönguferðir

Að ganga er ein besta og ódýrasta líkamsrækt sem völ er á. Hún er ekki bundin við sérstakan stað né tíma svo þú ert alveg frjáls í að þjálfa þig þegar þú vilt. Hún er líka tilvalin til að fá sér ferskt loft. Ganga styrkir líkamann og getur spornað við ýmsum æðasjúkdómum og bætt andlega líðan. Með góða skó á fótum ertu tilbúin í gönguferðina. Gönguleiðum og stígum í kringum bæi og borgir hefur fjölgað til muna á síðustu árum, athugaðu gönguleiðir í þínu nágrenni.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Náttúran
19. apríl 2010 00:33
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Gengið á Græna treflinum - Heiðmörk

Fimmtudaginn 12. júní er önnur gangan í röð gangna skógræktarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um Græna trefilinn. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með þessari göngu.

Guðríður Helgadóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, leiðir gönguna, en áhersla verður á að skoða gróðurinn í grennd við skóginn og skógarbotninn. Gangan hefst við Borgarstjóraplan, kl. 20:00.

Skógargöngur á Græna treflinum verða öll fimmtudagskvöld í júní og fyrstu vikuna í júlí og hefjast göngurnar kl. 20. Göngurnar eru hluti af fræðslusamstarfi skógræktarfélaganna og Kaupþings.

Þetta eru léttar og þægilegar göngur í fallegu umhverfi. Göngurnar taka alls um tvo tíma og eru allir velkomnir.

nánar

Skógræktarfélag Reykjavíkur
10. júní 2008 10:31
Uppruni: Skógræktarfélag Íslands

Einkunn

12

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: