Á döfinni:

Hafið samband við til að skrá viðburði

Póstlisti


Á póstlista Náttúrunnar eru sendar fréttir og tilboð.
Add to Google

Heilsan: Hreyfing

Gönguferðir

Að ganga er ein besta og ódýrasta líkamsrækt sem völ er á. Hún er ekki bundin við sérstakan stað né tíma svo þú ert alveg frjáls í að þjálfa þig þegar þú vilt. Hún er líka tilvalin til að fá sér ferskt loft. Ganga styrkir líkamann og getur spornað við ýmsum æðasjúkdómum og bætt andlega líðan. Með góða skó á fótum ertu tilbúin í gönguferðina. Gönguleiðum og stígum í kringum bæi og borgir hefur fjölgað til muna á síðustu árum, athugaðu gönguleiðir í þínu nágrenni.

meira
  • Deildu með vinum

Sundlaugar Reykjavíkur heilnæmar og öruggar

Sundlaugar í Reykjavík eru bæði heilnæmar og öruggar. Þetta kemur fram í niðurstöðum reglubundins eftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur með sundlaugum árið 2008, sem nýlega voru kynntar á fundi Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur.

19 stundstaðir eru í Reykjavík, 7 sem reknir eru á vegum ÍTR, 6 skólasundlaugar og 6 aðrar. Á hverjum stað er ein til tvær sundlaugar og oft margar setlaugar. Árið 2008 var auk reglubundins eftirlits, gerð könnun á heilnæmi vatns og öryggismálum í samstarfi við Umhverfisstofnun og önnur heilbrigðiseftirlitssvæði. Þar var leitað svara við ýmsum spurningum um heilnæmi vatnsins, innra eftirlit, þjálfun starfsfólks og skyndihjálparbúnað á staðnum. Þá voru tekin sýni úr öllum laugum. Sýrustig vatns, klórstyrkur og bundinn klór var mældur á staðnum og tekið var vatnssýni fyrir heildargerlafjölda úr öllum laugum. Einnig var leitað í nokkrum lauganna að bakteríunni Pseudomonas Aeurginosa sem getur valdið sýkingum í húð.

Niðurstaðan er að heilnæmi sundlaugavatns í Reykjavík var í ágætu lagi. Öll mæld klórgildi voru innan marka. Hvergi mældist bundinn klór nálægt 0,5 mg/l. Heildargerlafjöldi var innan marka baðvatnsreglugerðar í 95% vatnssýna og pseudomonas bakterían fannst ekki í neinni laug í Reykjavík í þessari könnun. Þá virðast öryggismál vera í góðu lagi og helstu björgunartæki eru alls staðar fyrir hendi.

„Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna,“ segir Ingibjörg H. Elíasdóttir heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík. „Það sem helst má bæta eru varnaðarmerkingar um hættu sem stafað geta af dýfingum,“ segir hún. Laugarverðir eiga að endurnýja hæfnispróf sitt árlega og aðrir starfsmenn sundlauga sem þjóna gestum fara á skyndihjálparnámskeið annað hvert ár. Á einum sundstað átti laugarvörður eftir að endurnýja árlegt hæfnispróf sitt.

Umhverfisstofnun birtir á næstunni skýrslu með niðurstöðum könnunarinnar á landsvísu um gæði laugarvatns og öryggi á stundstöðum.
nánar
  • Deildu með vinum

Íslenski fjallahjólaklúbburinn vex og vex

Eftir sólríkt og skemmtilegt hjólasumar er komið að lokaferð þriðjudagsferða Íslenska fjallahjólaklúbbsins. Frá því um miðjan maí hafa vaskir reiðhjólaunnendur safnast saman við Mjóddina kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum og hjólað saman um borgina. Ferðirnar hafa teygt sig víða; fuglaskoðun í Grafarvoginum, Gróttuviti heimsóttur, kaffihúsaferð á Hressó, hjólað í kringum Rauðavatn, Heiðmerkurhringur, Elliðavatn, í Hafnafjörð og víðar.

Frá fyrstu ferð vorsins var ljóst að hjólamönnum fjölgar ört í borginni. Hópurinn hefur að meðaltali verið 40 - 60% stærri í ferðum sumarsins en á undanförnum árum. Samhliða ferðunum hafa þátttakendur safnað ferðum og í lokaferðinni verður einmitt afhentur mætingabikar sumarsins. Annars vegar farandbikar og hins vegar annar minni til eignar. Þess má geta að ein manneskja hefur eignast farandbikarinn fyrir að vera með bestu mætinguna í þriðjudagskvöldferðirnar í 3 ár; það var hin knáa Sóley Bjarnadóttir sem það gerði fyrir tveimur árum, þá 12 ára gömul.

Ferðin á þriðjudaginn hefst við Mjóddina, þar sem strætó stoppar, kl. 20 og hjólað verður þaðan sem leið liggur í GÁP í Mörkinni. Þar verður lokahátíð þriðjudagsferðanna, verðlaunaafhending og léttar veitingar.
Ferðin er opin öllum hjólamönnum og ætti að vera lokið fyrir kl. 22.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Helgason í s. 8494245 eða Sesselja Traustadóttir í s. 864 2776

nánar
  • Deildu með vinum

Íslenski fjallahjólaklúbburinn vaknar af vetrardvala

Þriðjudagskvöldið 6. maí verður farið í fyrstu hjólaferð Íslenska fjallahjólaklúbbsins um borgarlandið á þessu sumri.

Lagt er af stað frá Mjóddinni, þar sem strætó stoppar, kl. 20:00 og hjólað valdar leiðir um borgina. Ferðirnar eru miðaðar við þátttöku fjölskyldufólks og hjólað til að njóta.
En um leið hefst líka keppnin um mætingarbikarinn, sem er eina hjólreiðakeppnin sem stunduð er innan raða Fjallahjólaklúbbsins.
Til þess að ná þessum eftirsótta bikar, þarf að eiga flestar mætingar í þriðjudagshjólaferðir sumarsins.

Að þessu sinni verður að sjálfsögðu hjólað frá Mjódd og í klúbbhús Íslenska fjallahjólaklúbbsins í Vesturbænum þar sem boðið verður upp á nýbakaðar vöfflur og meðlæti.
Úr Mjóddinni eru ótal skemmtilegar hjólaleiðir vestur í bæ. Hvort heldur hjólað er um Elliðarárdalinn og Sæbraut vestur í bæ, eða farið um Kópavog og Kársnesið eða einfaldlega í gegnum Fossvoginn og eftir Ægissíðustígnum sem stendur til að stækka og breikka og gera að fyrsta alvöru hjólastíg borgarinnar.

Það er vel við hæfi að fyrsta kvöldferðin er 6. maí, daginn fyrir upphaf vinsælustu hjólreiðakeppni allra landsmanna; Hjólað í vinnuna! Þetta er kjörið tækifæri til þess að minna vöðvana á hvernig þeirra vinna með hjólinu.

Hér vefnum fjallahjolaklubburinn.is er að finna nánari útlistun á starfi ferðanefndar ÍFHK í sumar. Von er á góðri þátttöku á þriðjudagskvöldið kl. 20:00 enda er þetta tíminn sem hjólin heilsa götunum eftir langa inniveru í svartasta skammdeginu.
meira
  • Deildu með vinum

Skrifstofan - Íþróttir

GluggiPlantaRyksugaBækurBækurRaftækiRaftækiHeimurinnGeimurinnHúsgögnÍþróttirSkrifborðSímiTölvaLandiðLýsingSkrifstofan

Þrátt fyrir það að stundun íþrótta séu í allflestum tilfellum bæði holl fyrir líkama og sál okkar er ekki þar með sagt að íþróttaiðkun og íþróttaáhugi fólks geti ekki haft gríðarlega neikvæð óbein umhverfisáhrif.
Dæmi um slíkt eru t.a.m. stórir fótboltaleikir þar sem neysla hins almenna fótboltaaðdáenda eru gosdrykkir, bjór og skyndibitamatur af ýmsum tegundum. Þetta eru einkum mikið unnar matar- og drykkjarvörur sem eru mjög orkufrekar í framleiðslu

Tökum dæmi fra úrslitaleik enska bikarsins árið 2004 á árþúsunda-leikvanginum í Cardiff. Hinir 73 þúsund aðdáendur liðanna Manchester United og Millwall sporðrenndu alls 37.624 pylsurúllum, 26.965 samlokum, 17.998 pylsum, 12.780 hamborgurum, 11.502 pokum af kartöfluflögum og 23.909 skömmtum af frönskum.
Þessu var skolað niður með 203.494 lítrum af bjór 21.422 af cider, 12.452 flöskum af víni, 90.481 staupum og 63.141 flöskum af áfengum gosdrykkjum.

Eftir að fagnaðarlátunum í Cardiff lauk lágu á götum Cardiff borgar 37.000 tonn af gleri, 8 tonn af pappa og 11 tonn af matarafgöngum. Ekkert af þessu var endurunnið.

Stærstu umhverfisáhrifin voru þó ferðalögin. Aðdáendurnir ferðuðust að meðaltali 590.5 km hver – 47% með bíl, 34% með lest og afgangurinn með rútum eða stórum fólksbílum.

nánar
  • Deildu með vinum


1 síða 1 2

Náttúrumarkaður

Nýleg orð í belg


1984 fann ég á annað hundrað fjögurra blaða smára hjá Norræna húsinu í Reykjavík. Ég ...
Sigurjón Helgi Kristjánsson 10. 03. 2010 12:11:
grein: Hvítsmári og fjögurra blaða smári
Til hamingju með þessa nýjung. Gaman að sjá hve fjölbreytt síðan er orðin hjá ykkur ...
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir 10. 03. 2010 09:54:
grein: Hver tekur við hverju til endurvinnslu?
Ég kíkti aðeins á rammaáætlunina og sá hvergi verndargildismat. Er einungis verið að kynna þá ...
Sólveig 9. 03. 2010 12:38:
grein: Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Sjá Ákallið hans Ómars um þjóðarsátt: http://www.natturan.is/greinar/191/
Guðrún Tryggvadóttir 27. 02. 2010 11:50:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Það er grein um Sigríði í Brattholti í Sögu, tímariti Sögufélagsins. http://www.sogufelag.is/timarit/saga_41_2_efnisyfirl.htm http://www.sogufelag.is/timarit/saga.htm
Pétur Þorleifsson 27. 02. 2010 10:55:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Mig langar bara til þess að þakka fyrir þessa frábæru vefsíðu, algjör brunnur upplýsinga og ...
Gerður Pálmadóttir 26. 02. 2010 18:46:
grein: Samband við Náttúruna
Það er merkilegt samkvæmt punkti eitt að kærendur eiga að tilgreina hvaða virkjanir eiga að ...
Pétur Þorleifsson 29. 01. 2010 18:21:
grein: Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat