Heilsan: Óhefðbundnar lækningar
Náttúrubarnið Anna Birna Ragnarsdóttir

Við hvað starfar þú Anna Birna eða hvert er viðfangsefni þitt:
Ég er hómópati og rek fyrirtækið htveir hómópatíubækur ehf með Guðnýju Ósk Diðriksdóttur. Á því rúma ári sem við erum búnar að starfrækja htveir höfum við skrifað og gefið út tvær bækur, „Meðganga og fæðing með hómópatíu“, sem kom út fyrir síðustu jól og „Barnið og uppvaxtarárin með hómópatíu“ sem var að koma út núna. Auk þess höldum við úti vefsíðu, www.htveir.is, þar sem við erum búnar að skrifa 67 greinar, um hómópatíu og heilsutengd málefni. Allt sem við höfum gert gerum við sjálfar án styrkja, hvort sem um er að ræða skriftir, útgáfu, dreifingu, markaðssetningu eða bókhaldi og svo mætti reyndar lengi telja. Það má því segja að þetta sé mikið hugsjónarstarf hjá okkur stöllunum.
Hvaða menntun eða reynslu hefur þú að baki?
Ég er menntuð hómópati frá The College of Practical Homeopathy, í Bretlandi, þetta er 4 ára nám eða um 190 einingar. Frá því að ég hóf nám mitt árið 2000 hefur hómópatían átt hug minn og hjarta, mér er mikið í mun að sem flestir þekki og geti notfært sér þessa aldagömlu náttúrumeðferð.
Hvað lætur þig tikka?
Ég á dásamlegan eiginmann og það er ómetanlegt fyrir okkur að komast í sveitina og vera í tengslum við náttúruna, þannig slaka ég á, endurnærist og næ jarðtenginu. Bækur eru mér líka mjög mikilvægar bæði sem afþreying en líka til að fræðast.
Finnst þér að þú getir haft áhrif í samfélaginu?
Já það finnst mér, bæði með bókunum „Meðganga og fæðing með hómópatíu“ & „Barnið og uppvaxtarárin með hómópatíu“, en einnig með því hvernig ég umgengst börnin mín, fjölskyldu, vini og umhverfið mitt.
Hvaða viðfangsefni finnast þér mikilvægust einmitt núna?
Meðvitund hvers og eins um hvað er mikilvægt í umhverfinu, hvernig viljum við lifa og hvernig viljum við hafa umhverfi okkar nær og fjær.
Ræktar þú eigin jurtir eða nýtirðu þér villtar jurtir?
Já svo sannarlega! Við hjónin er með ræktun í bústaðnum okkar hjá Laugarvatni. Þar er ræktað allskyns grænmeti, kryddjurtir og blóm. Við erum líka með berjarunna og förum auðvitað í berjamó á hverju hausti, þau ber duga okkur yfirleitt fram á vor. Ég hef í gegnum tíðina alltaf átt til vallhumal og blóðberg, en smám saman er að bætast við hinar ýmsu tegundir sem nauðsynlegt er að eiga yfir vetrarmánuðina.
Á hvaða stigi finnst þér náttúruvernd á Íslandi vera í dag?
Skammsýn, mér finnst svolítið vanta upp á framtíðarsýn fyrir komandi kynslóðir.
Hvernig myndir þú vilja sjá vef Náttúrunnar þróast?
Mér finnst vefurinn góður eins og hann er.
Áttu þér uppáhalds málshátt eða lífsspeki?
Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig. Það á líka við um náttúruna.
Kærar þakkir Anna Birna.
Ljósmyndir: Efsta myndin er af Önnu Birnu, miðmyndin er af bókinni Barnið og uppvaxtarárin með hómópatíu, neðsta myndin er af bókinni Meðganga og fæðing með hómópatíu. Ljósm. Höskuldur Harri en hann hannaði einnig báðar bækurnar og er hinn margrómaði eiginmaður Önnu Birnu.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Anna Birna Ragnarsdóttir
16. nóvember 2011 12:04
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Eldselementið
Eldselementið umlikur hjarta, smágirni, hjartaverndara (Gollurhús) og „þrjá hitara“, sem aftur hafa áhrif á og gefa kraft til blóðs og æðakerfis. Hjartað gefur jafnframt kraft til tungu þannig að fólk geti tjáð sig og þrír hitarar bera blóð og orku milli hinna þriggja svæða líkamans, fóta, búks og höfuðs. Geðlæg áhrif elds eru gleði og sköpun.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir
26. október 2011 22:49
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Fléttuhunang við kvefi
Innihald:
Fjallagrös 1 hlutur
Hreindýramosi 1 hlutur
Hunang 2 hlutar
Engiferrót nokkrar sneiðar
Til gerðar þarf:
Ílát: Pottur, skál, glerkrukka
Verkfæri: Sleif, sigti, hnífur
Nýttir plöntuhlutar: Heil fjallagrös og hreindýramosi.

Nýtínd þurr fjallagrös og hreindýramosi eru mýkt upp í heitu vatni. Vökvinn kreistur úr og tekinn frá og geymdur.
Hreindýramosinnn og fjallagrösin skorin smátt á skurðarbretti og blandað saman við upphitað hunang sem er hitað í vatnsbaði þar til fljótandi. Nokkrum sneiðum af engiferrót bætt út í blönduna.
Allt saman látið standa í 3 daga.
Er þá hitað upp aftur.
Vökvinn sigtaður frá og settur á krukkur.
Ljósmyndir: Efri myndin er af fjallagrösum og hreindýramosa sem mýkt hafa verið upp í vatni og verða síðan skorin smátt, neðri myndin sýnir þegar fjallagrösin og hreindýramosinn eru sigtuð. Guðrún Tryggvadóttir.
nánar
Christian Osika
14. ágúst 2011 09:00
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Birki- og mjaðurtarolía
Birki- og mjaðurtar - bað og nuddolía, góð fyrir liðamótin
Innihald:
Birkilauf 2/3 hluti
Mjaðurt 1/3 hluti
Ólífuolía 2/3 full krukka
Rósmarín kjarnaolía, nokkrir dropar
Til gerðar þarf:
Ílát: Góðan pott og skál
Verkfæri: Sleif, hníf og skurðarbretti
Nýttir plöntuhlutar: Laufið af birkinu og blómið af mjaðurtinni skorið smátt
Tími söfnunar: Birkið tínt af heilbrigðum plöntum, helst ný lauf* og óskemmd, blómin af mjaðurtinni.
Ílát: Glerílát
Ólífuolían er hituð í vatnsbaði og smáttskorin mjaðurt og birki sett í krukkuna með heitri olíunni, nokkrum dropum að Rósmarín kjarnaolíu bætt í.
Látið standa í 2 vikur fyrir notkun, helst í sólríkum glugga.
Sigtið og setjið í glerílát (flösku) með góðu loki.
Gaman er að merkja flöskuna fallega með nafni og uppskriftinni eða innihaldslýsingu, dagsetningu og binda birki- og mjaðurtargrein á flöskustútinn og gefa þeim sem þér þykir vænt um.
*Ef tínt er að vori verður að notast við þurrkaða mjaðurt frá fyrra ári mjaðurtin blómstrar ekki fyrr en upp úr miðjum júlí.
Ljósmyndir: Eftri; mjaðurt, neri; birki. ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
nánar
Christian Osika
31. júlí 2011 10:07
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Lúpínuseyði Ævars
Sigríður Ævarsdóttir, dóttir Ævars Jóhannessonar og konu hans Kristbjargar Þórarinsdóttur, hóf nýlega framleiðslu og markaðssetningu á Lúpínuseyði Ævars eftir uppskrift frá föður sínum sem sauð lúpínuseyði um árabil fyrir sjúklinga sem leituðu til hans í von um bata. Ævar hætti að sjóða lúpínuseyði fyrir þremur árum síðan og söknuðu þá margir drykkjarins göruga sem hjálpað hafði svo mörgum. Það er því mikið ánægjuefni að dóttir þeirra hafi nú fundið leið til að koma seyðinu, í þurrkuðu formi, til þeirra sem þess óska.
Auk þess að safna jurtunum, sjá um þurrkun, mölun, geymslu og pökkun, hefur Sigríður einnig hannað umbúðir og komið vörunni á markað. Lúpínuseyði Ævars er fyrsta varan sem Sigríður setur á markað undir formerkjum lúpínunnar, en í faravatninu er þróun á fleiri vörum.
Sigríður er menntaður hómópati frá College of Practical Homoeopathy frá London og hefur einnig lokið námi í hómópatíu fyrir hesta frá Institut Kappel Wüppertal í Þýskalandi. Hún hefur skrifað fjölda greina um ýmis heilsutengd málefni í tímaritið Heilsuhringinn auk þess að hafa verið virkur þátttakandi í starfssemi þess félagsskapar, bæði sem formaður og með þátttöku í ritnefnd.
Sjá greinar bæði eftir Sigríði og föður hennar á vefnum Heilsuhringurinn.is.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
16. maí 2011 12:39
Uppruni: Lúpínuseyði Ævars / Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
+ Fleiri ummæli















