Vottun: ISO 14001
Vöruleit Náttúrunnar
Vörurleitin á Náttúrumarkaði gefur þér kost á að þrengja leitina til að finna vörur sem uppfylla þær kröfur sem þú gerir til framleiðanda, merkingar eða viðurkenndrar vottunar. Sjá hér til hægri undir Vöruleit á Náttúrumarkaði. Vöruleitin nýtist vel til vistvænna innkaupa opinberra aðila jafnt sem fjölskyldunnar.
Allar vörur sem skráðar eru á Náttúrumarkað koma upp í Vöruleit, hvort sem þær eru til sölu eða einungis skráðar til kynningar. Hver sem er getur óskað eftir skráningu á vöruframboði sínu á Náttúrumarkað og þannig tekið þátt í því að bjóða kaupendum upp á að bera saman breitt úrval af vörum út frá vistvænum sjónarmiðum. Sjá nánar um verð á skráningum hér að neðan.

Auk þess tengjast vörurnar ítarefni um innihaldsefni, umhverfisviðmið, endurvinnsluleiðir auk þess að tengjast fréttum um viðkomandi vöru, framleiðanda og aðra tengda aðila.
F - kubbur fyrir vörur á Náttúrumarkaði - vöruskráningu fylgir auglýsingabirting í slembivali
Verð á 12 mánaða skráningu vöru á Náttúrumarkað:
1 - 3 vörur - skráning á vöru (til sölu) 4.900*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 9.800*
4 - 10 vörur - skráning á vöru (til sölu) 3.920*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.840*
11 vörur eða fl. - skráning á vöru (til sölu) 3.330*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.600*
*Öll verð í íslenskum krónum, án vsk. 50% afsláttur er af framlengingu skráningar eftir fyrsta árið.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
7. janúar 2012 18:39
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
ISO 14001
ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðallinn er til að hjálpa fyrirtækjum til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sínum, uppfylla gildandi umhverfisreglugerðir, starfsleyfisákvæði og þar fram eftir götunum.
ISO 14001 leggur áherslu á það hvernig varan er framleidd en ekki vöruna sjálfa. Vottun umhverfisstjórnunarkerfisins er framkvæmd af hlutlausum þriðja aðila.
Sjá hér á Grænum síðum þá aðila sem hafa ISO 14001 vottun á Íslandi.
nánar
Náttúran er
5. janúar 2012 13:01
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Hvað eru umhverfisviðmið?
Umhverfisviðmið eða markmið eru í eðli sínu ekkert frábrugðin fjárhagslegum markmiðum. Hlutverk beggja er að mæla árangur af starfssemi fyrirtækisins á mismunandi sviðum, þó svo að auðveldlega sé hægt að fullyrða að fjárhags- og umhverfismarkmið séu hvert öðru háð. Það er þó einn grundvallarmunur á fjárhaglegum og umhverfislegum markmiðum. Hin fjárhagslegu hafa þróast í fjölda áratuga eða árhundruði meðan umhverfislegu markmiðin eru tiltölulega ný af nálinni og fyrirtæki byrjuðu ekki að setja umhverfisviðmið í einhverjum mæli fyrr en eftir 1996 þegar ISO 14001 staðallinn var fyrst samþykkur. Þessi grundvallarmunur á umhverfis- og fjárhagslegum markmiðum hefur hins vegar mikla praktíska þýðingu.
Bókhaldsforrit fyrirtækja miða að því að fylgjast á auðveldan máta með fjárhagslegum lykiltölum. Kerfin eru byggð með það í huga að geta á auðveldan og fljótlegan hátt fengið út öll helstu fjárhagsleg viðmið sem hægt er þar sem upplýsingar skipta öllu í hörðum heimi samkeppninnar. Umhverfisupplýsingar eru ekki innbyggðar í upplýsingakerfi fyrirtækja eins og fjárhagslegar upplýsingar. Að skilgreina umhverfismarkmið er í sjálfu sér ekki erfitt. Hið flókna er að skilgreina hvar og hvernig auðveldast er að safna saman upplýsingum úr upplýsingakerfinu.
Þar sem umhverfisupplýsingar eru oft af skornum skammti hefur fólk því tilhneigingu til að mæla það sem hægt er að mæla í stað þess að mæla það sem er mikilvægt. Grunnur að öllum viðmiðum er að þekkja núverandi stöðu (grunnstöðuna) áður en viðmiðin eru sett. Án þess að þekkja grunnstöðuna er afskaplega erfitt að vita hvort markmiðum hafi verið náð.
Að vita ekki grunnstöðuna er líklega algengustu mistök sem fyrirtæki gera við markmiðasetningu. Markmiðin verða því oft ekkert annað en fallegur ásetningur án þess að hægt sé að segja til um hvort þeim hafi verið náð eða ekki. Grundvallaratriðið í allri markmiðasetningu er því að skilgreina grunnstöðu áður en markmið eru sett.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Finnur Sveinsson
22. september 2011 16:06
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Umhverfismerki - leiðbeiningar
Tilgangur umhverfismerkinga er „að hjálpa neytendum að velja vörur sem hafa minni áhrif á umhverfi og heilsu en aðrar sambærilegar vörur“. Umhverfismerking einstakrar vöru eða þjónustu er staðfesting á að framleiðandinn hefur uppfyllt fyrirfram skilgreind skilyrði við framleiðslu vörunnar, sem dæmi er gerð krafa um hráefni, umbúðir og áhrif vörunnar á líftíma hennar. Þetta er metið af óháðum, úttektaraðila (ekki fyrirtækinu sjálfu eða viðskiptavini þess).
Hér er mikilvægt að gera greinarmun á vottuðu umhverfismerki og umhverfismerkjum framleiðanda. Hér verður einungis talað um vottuð þriðja aðila merki þar sem þau eru talin trúverðugust.
Einnig skal varast að blanda saman umhverfisvottun fyrirtækja og vottuðum umhverfismerkjum. Umhverfisvottun fyrirtækja (ISO 14001) staðfestir að í fyrirtækinu séu ákveðnir verkferlar sem taka tillit til umhverfismála í starfsemi fyrirtækisins. Umhverfisvottun fyrirtækja segir ekkert til um umhverfisáhrif varanna sem fyrirtækið framleiðir eða selur. Sem dæmi má nefna að málningarframleiðandi eða söluaðili getur haft ISO 14001 vottun án þess að það segi nokkuð um umhverfisáhrif málningarinnar. Að segja að vara sem umhverfisvæn af því að framleiðandinn er með vottað fyrirtæki er sama og að segja að bensín sé umhverfisvænt af því að viðkomandi olíufélag er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001.
Umhverfismerki taka hins vegar til vörunnar eða þjónustunnar en segja ekkert um umhverfisstarf fyrirtækisins að öðru leyti. Umhverfismerki og umhverfisstjórnunarkerfi geta skarast þegar merkið nær yfir þjónustu, erfitt getur verið að gera greinarmun á sjálfri þjónustunni og fyrirtækinu sem veitir hana. Það er til dæmis ómögulegt að merkja hótelgistingu án þess að setja umhverfisskilyrði sem snerta rekstur sjálfs hótelsins. Kröfurnar snerta því fyrirtækið sem veitir þjónustuna til að tryggja að þjónustan sé umhverfisvæn.
Umhverfismerki
Óháður þriðji aðili setur ákveðnar kröfur um árangur eða umhverfiseiginleika vöru sem verið er að merkja. Varan eða þjónustan uppfyllir skilyrðin og fær merkingu.
Umhverfisvottun fyrirtækja:
Fyrirtækið ákveður sjálft hverjir séu helstu umhverfisþættir í starfsemi sinni. Óháður aðili gerir úttekt hvort fyrirtækið hafi ákveðna verkferla til að vinna að umhverfismálum. Enginn úttekt er gerð á vörum fyrirtækisins.
Umhverfismálin eru oft flókin, þau fjalla um flókna efnafræði, gróðurhúsaáhrif, áhrif á vistkerfi og svo framvegis. Umhverfismerking auðveldar framleiðandanum að miðla til neytenda framlagi sínu til umhverfismála, neytandinn sparar tíma og fyrirhöfn þess að þurfa að kanna áreiðanleika upplýsinga. Svanurinn og Evrópublómið eru merki sem neytendur geta treyst og ná yfir breitt úrval vöruflokka. Kröfur fyrir vottun vara eru þar að auki í reglulegri endurskoðun. Um lífrænt ræktað matvörur og hráefni gilda merkingarnar Tún og EU-merkið. Þetta eru dæmi um óháð og ábyrg umhverfismerki, en þau eru fleiri. Mikilvægt er að þekkja til merkinganna og vita að hverju gengið er.
Að þróa skilyrði fyrir umhverfismerkingu er æði kostnaðarsamt. Umhverfismerkin eru fjármögnuð að mestu leyti með gjaldtöku af seldum vörum. Til dæmis er kerfi Svansins á þá leið að 0,4 % af heildsöluverði vöru rennur til umsýslu og markaðsstarfs Svansins upp að ákveðnu hámarki þó sem er 200.000 krónur á Íslandi. Svanurinn er merki Norrænu ráðherranefndarinnar og er að hluta fjármagnaður þaðan. Fjármögnun annarra umhverfismerkja er með sams konar hætti, í gegnum sölu á vörunni eða þjónustunni.
Önnur óskilgreind merki
þessi grein er lengri, lesa meira...
Finnur Sveinsson
8. september 2011 19:36
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Umhverfisstýrt fyrirtæki
Á Græna kortinu er hægt að fá upplýsingar um hvaða fyrirtæki hafa ISO 14001 vottun.
Skilgreiningin sem við flokkum eftir er eftirfarandi:
Fyrirtæki sem hafa ISO 14001 vottun.
Grafík: Myndtákn Green Map® System flokksins „Umhverfisstýrt fyrirtæki“.
nánar
Náttúran er
19. ágúst 2011 10:14
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
+ Fleiri ummæli















