Landið: Viðburðir
Fræðaþing landbúnaðarins
Fræðaþing landbúnaðarins 2010 verður haldið dagana 18. - 19. febrúar.
Fræðaþingið er samvinnuverkefni 9 stofnana sem tengjast landbúnaði með einum eða öðrum hætti.
Sjá dagskrá Fræðaþings landbúnaðarins 2010 hér að neðan:
Vatnavinir kynna tólf vestfirska baðstaði
Vatnavinir eru ímyndarverkefni á landsvísu en ákveðið var að hefja verkefnið á Vestfjörðum og myndaður var klasi um það síðast liðið vor. Hópurinn kallar sig Vatnavini Vestfjarða og samanstendur af landeigendum, ferðaþjónum, arkitektum og öðrum áhugamönnum sem sameinast í því að þróa vestfirskt aðdráttarafl tengt vatni. Vatnavinir Vestfjarða ætla að flagga vestfirskum náttúruperlum og leyfa þannig ferðamönnum að upplifa þær og menningu svæðisins í gegnum náttúrulaugar og vellíðunarþjónustu sem hópurinn mun þróa næstu árin.
Vestfirðir einkennast af fjölda heitra náttúrulauga og hafa umsjónarmenn þeirra sameinast um að nýta þær á sjálfbæran hátt, með það að markmiði að Vestfirðir verði til fyrirmyndar á landsvísu hvað varðar uppbyggingu á heilsutengdri ferðaþjónustu.
Þema hópsins er heitt og kalt vatn. Sjór, vatn og jarðvarmi hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem njóta þess að slaka á í heitum laugum og ferðast um í leit að nýrri og ógleymanlegri upplifun. Markmið verkefnisins er að þróa náttúruvæna ferðaþjónustu og gera náttúruperlur okkar Vestfirðinga sýnilegri. Í verkefninu er áhersla lögð á að framkvæmdir í kringum heilsulindir, baðstaði og náttúrulaugar séu vandaðar og vel skipulagðar. Reynt verður að ljúka nauðsynlegustu framkvæmdum fyrir næsta sumar á útvöldum stöðum, sem allar falla að langtíma framtíðarsýn heilsutengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Verkefnið er fjórskipt eftir svæðum. Svæðin eru sunnanverðir Vestfirðir, Strandir, Ísafjarðardjúp og Reykhólasveit. Mikilvægt er að hlúa að séreinkennum hvers svæðis fyrir sig. Í markaðssetningu verður áhersla lögð á sérstöðu hvers svæðis og stuðlað að því að fá ferðamenn til að heimsækja öll svæðin. Um er að ræða fyrstu skrefin til frekari uppbyggingar á næstu árum með áherslu á fjölgun ferðamanna á þeim baðstöðum sem þegar eru til en hafa fram að þessu lítið verið kynntir innanlands og utan.
Vatnavinir Vestfjarða ætla ekki aðeins að hvetja fólk til að nýta náttúrulaugarnar á Vestfjörðum heldur ætlar hópurinn að þróa hágæða heilsuferðaþjónustu með framtíðarsýn um uppbyggingu stærri heilsulinda á 1-2 stöðum og verður grunnur lagður að þeirri þróunarvinnu með verkefninu. Um er að ræða langtímaverkefni sem mun krefjast þolinmæði, fjármagns og viljafestu margra til að verða að veruleika.
Safnahelgi á Suðurlandi 2009 - Matur og menning úr héraði
Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á fjölbreytta menningardagskrá helgina 5. – 8. nóvember 2009. Yfirskrift dagskrárinnar verður Safnahelgi á Suðurlandi með undirtitilinum Matur og menning úr héraði því auk hins sögulega og menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu.
Það eru Samtök safna á Suðurlandi og Matarkista Suðurlands sem standa að dagskránni með hátt í eitt hundrað aðilum. Verkefnið nýtur stuðnings Menningarráðs Suðurlands.
Hugmyndin að baki Safnahelgi á Suðurlandi er að þjappa þeim fjölmörgu aðilum sem vinna við sunnlenska menningu saman um eina sameiginlega viðburðahelgi og bjóða íbúum héraðsins og gestum að njóta þess fjölbreytta menningarstarfs sem er í boði. Á veitingastöðum verður boðið upp á það besta í sunnlenskri matarhefð. Boðið er upp á dagskrá frá fimmtudegi til sunnudags, en staðirnir eru þó með mismunandi opnunartíma. Safnahelgin verður formlega opnuð í tengslum við málþing sem haldið verður í tilefni 60 ára afmælis Byggðasafnsins í Skógum fimmtudaginn 5. nóvember.
Meðal fjölmargra dagskráratriða má nefna sýningar, tónleika, fyrirlestra, upplestra og leiðsagnir. Svo verður víða hægt að smakka á gömlum og nýjum réttum eins og ástarpungum, heitu súkkulaði, lunda, fýl, sviðum, humarsúpu, pönnukökum, sunnlensku grænmeti og kartöfluréttum. Söfn og veitingastaðir verða opin upp á gátt og starfsfólk þeirra tekur fagnandi á móti gestum og gangandi.
Sjá dagskrá Safnahelgar Suðurlands í pdf-bækling hér.
Athugið að til að finna söfn og staðsetningar þeirra getur þú slegið inn nafnið hér í leitarvélina efst á síðunni til að finna einstaka aðila eða farið beint á Græna kortið til að sjá öll söfn og menningarsetur á landinu.
„Græna Íslandskortið, Ísland og heimurinn í grænu ljósi“,sýning i Listasafni Árnesinga er framlag Náttúran.is til safnahelgarinnar. Sjá nánar hér að neðan:
Viltu verða orkubóndi?
Viltu verða orkubóndi og framleiða þína eigin orku? Allir geta orðið orkubændur!
Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur og bændur sem hafa hug á að beisla orkuna heima fyrir. Í landinu okkar er ógrynni af endurnýtanlegri orku sem fellur til og hægt er að nýta. Á námskeiðinu verður farið yfir verkfræðileg viðfangsefni á mannamáli og fjallað um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða annars konar orku. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun og færustu verkfræðistofum landsins á sviði orku. Í kjölfar námskeiðsins fá þátttakendur aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.
Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Sveitarfélagsins Árborgar, Mannvits, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins og Verkís.
Suðurland
Námskeiðið verður haldið að Menningarverstöðinni Hólmaröst, Hafnargötu 9, 825 Stokkseyri dagana 6. og 7. október frá kl 10:00 - 16:30 báða dagana. Námskeiðsgjald er 3.000 krónur. Innifalið í námskeiðsgjaldi er hádegisverður og kaffi.
Dagskráin 6. október:
10:00 Skráning
10:15 Skipulag námskeiðsins
10:20 Endurnýjanlegar orkulindir og aðgengi þeirra á Ísland. Þorsteinn Ingi Sigfússon
11:00 Orkulindir sem eru lengra undan í tíma. Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
12:00 Hádegisverður
12:30 Virkjun vatnsfalla. Sérfræðingar verkfræðistofanna
13:30 Virkjun jarðhita. Sérfræðingar verkfræðistofanna
14:30 Gerð eigin eldsneytis. Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
15:15 Reglugerðir og umhverfismál. Sérfræðingur Orkustofnunar
15:45 Tillögum og hugmyndum fundarmanna safnað saman. Undirbúningsvinna fyrir seinni dag
16:30 Lok fyrri dags
Dagskráin 7. október:
Réttarfréttir 2009
Að fara í réttir var fastur liður í lífi flestra Íslendinga, fyrir ekki svo löngu síðan. Við réttir hittast sveitungar og fagna því að fé sé komið af fjalli og stutt í nýslátrað. Oft er kátt í réttunum og gaman fyrir börn og fullorðna að upplifa óðagotið og lætin.
„Oft er miðað við að réttað sé föstudag eða fimmtudag í 21. viku sumars. Sumstaðar er þó miðað við ákveðinn mánaðardag“*
Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur Bændasamtaka Íslands, hefur tekið saman lista um fjár- og stóðréttir haustið 2009. Almennt má segja að réttir séu á svipuðum tíma og í fyrra.
*Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson.



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla





















