Umhverfið: Umhverfisvæn hönnun
Ísbjörninn Polli

Nýlega gaf Tammerraamat útgáfan út barnabók Sigurðar Brynjólfssonar (SÖB) „Jääkaru Polli“ en bókin fjallar um hnattræna hlýnun. Bókin kom út í Eistlandi nú á dögunum. SÖB stefnir að því að fá bókina gefna út á íslensku en hún mun þá bera nafnið „Ísbjörninn Polli“.
Hugmyndin að bókinni er „hnattræn hlýnun” og að tímabært er að börnum sé gerð grein fyrir vandamálinu segir Sigurður um bók sína. Þetta er hvort eð er þeirra framtíðarvandamál segir hann ennfremur. Bókin sýnir vandamálið ekki sem hryllingssögu heldur líkara dularfullu og draumkenndu ævintýri.
Ísbjörninn Polli og snjókristallinn Krissi eru aðal persónur bókarinnar. Polli sem á heima í norður íshafinu, vaknar á skrítnum ísjaka, allur ís er bráðnaður, horfinn. Með honum á jakanum er Krissi og saman ferðast þeir um heiminn, á fljúgandi töfra ísjakanum sem Krissi stjórnar.
Á þessu ferðalagi heimsækja þeir staði á jörðinni þar sem áður stóðu ýmis merkileg mannana verk en eru nú hálf á kafi í vatni og Krissi segir Polla frá þeim og sögu þeirra.
Þeir koma að lokum aftur heim í íshafið og Polli vaknar, þetta var þá allt saman draumur og allt er einsog það var áður...en verður það alltaf svoleiðis?
Það verður spennandi að sjá bókina í hillum íslenskra bókaverslana, sem verður vonandi fyrr en seinna en SÖB leitar nú að útgefanda til að gefa bókina út hér á landi.
Grafík: Forsíða og bak bókarinnar um ísbjörninn Polla á eistnesku.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. september 2011 12:59
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Nau - Sjálfbær fatnaður
Nau (borið fram eins og Ná eða Now í ensku) er fataframleiðandi staðsettur í Portland í Bandaríkjunum. Nau framleiðir sjálfbæran útivistarfatnað. Notast er við lífræn og endurunnin efni í framleiðslu fatnaðarins. Einnig er mikið notast við ull. Þrátt fyrir umfangsmikla starfsemi samanstendur Nau af færri en 20 starfsmönnum. Hugmyndin á bak við Nau er að endurhanna tískuna eins og hún er í dag og gera breytingar innan þessa stóra iðnaðar. Eitt lítið skref í átt að betri heimi.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Móna Róbertsdóttir Becker
30. ágúst 2011 19:32
Uppruni: Nau
Einkunn
World Green Building Council
World Green Building Council er óháð ráð sem er stjórnað af aðilum uúr byggingariðnaðinum og hefur það að meginmarkmiði að flýta fyrir framþróun ií vistvænni hönnun í byggingariðnaði ií heiminum. Hlutverk ráðsins er að veita samtökum um vistvænar byggingar aðstoð og upplýsingar. Auk þess veitir ráðið þjóðum leiðbeiningar við að stofna sambærileg samtök. WGBC var stofnað árið 2002 af samtökum 8 landa. Árið 2009 samanstendur ráðið af samtökum fraá 14 löndum víða um heim, auk þess sem 7 þjóðir hafa verið samþykktar og eru að vinna að inngöngu í ráðið.
Á síðastliðnu ári var Vistbyggðarráð stofnað hér á landi, þar sem leiðbeiningar WGBC hafa verið notaðar við að koma félaginu á fót. Þrjátíu og tvö fyrirtæki og stofnanir eru aðilar að stofnun ráðsins. Sjá nánar á vef Vistbyggðarráðs www.vbr.is.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
11. júní 2011 17:33
Uppruni: FSR - Framkvæmdasýsla ríkisins / Náttúran.is
Einkunn
Treflaverksmiðjan - Vík Prjónsdóttir á HönnunarMars
Eitt af aðalsmerkjum Víkur Prjónsdóttur er rekjanleiki og gagnsæi framleiðslu Víkurprjóns í Vík í Mýrdal. Á HönnunarMars mun Vík Prjónsdóttir opna treflaverksmiðju að Laugavegi 6, opið frá kl. 10:00-18:00, þar sem gestir geta fylgst með framleiðslunni og keypt nýlagaða trefla. Bæði hönnuðirnir og starfsmenn framleiðslunnar í Vík munu sjá um að framleiða treflana. Eins og í öllum verksmiðjum stöðvast framleiðslan ekki nema í kaffihléum og mun því vera stöðugur púls, hiti og sviti í þessari litlu verksmiðju.
Móttaka fyrir boðsgesti verður haldin föstudaginn 25. mars á milli 17 og 19.
nánar
Hönnunarmiðstöð
24. mars 2011 10:01
Uppruni: Hönnunarmiðstöð
Einkunn
Björg í bú í Norræna húsinu - HönnunarMars
Björg í bú er hönnunarfyrirtæki sem vinnur að matarhönnun og almennri hönnun. Vöruhönnuðir Björg í bú, Helga Björg Jónasardóttir, Edda Gylfadóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir hafa undanfarið verið að vinna að matarhönnunarverkefninu Örflögur.
Örflögur eru hollar, fitulausar kartöfluflögur. bakaðar og þurrkaðar kryddaðar með töfrum sjávar, hrein náttúruafurð. Askjan sem flögurnar eru í breytist í skál þegar hún er opnuð og geymir þar fróðleik um kartöfluna og uppruna hennar.
Verkefnið er unnið í samvinnu við Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur og Matís.
Verkefnið var tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna Forseta Íslands 2010 og er styrkt af Tækniþróunarsjóði, Atvinnumálum kvenna og Átaki til atvinnusköpunar.
nánar
Norræna húsið
24. mars 2011 09:32
Uppruni: Björg í bú / Norræna húsið
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
+ Fleiri ummæli















