Orka: Rafmagn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Sjónvarpið og orkan
Sjónvarpið er hinn mesti tímaþjófur á heimilinu. Það eyðir líka einna mestri raforku.
Nýju flatskjáirnir eyða t.d. gífurlegri orku, miklu meiri en forverar þeirra túpuskjáirnir. Flestir eru þó sammála um að LCD skjáir séu skárri en Plasma skjáir hvað þetta varðar.
Orkunotkun tækja er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu.
Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. júlí 2010 00:33
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2008. Styrkirnir eru veittir til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun.
Veittir eru 18 styrkir að upphæð 22,8 milljónir króna. Alls bárust 52 umsóknir um samtals 126 m.kr. og voru í þeim hópi ýmis áhugaverð og mikilsverð verkefni sem ekki var unnt að styrkja að þessu sinni.
Rannsóknar- og fræðslustyrkir eru veittir árlega úr Orkusjóði samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 87/2003, um Orkustofnun, Orkuráð og Orkusjóð, til „sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi“ og til „verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni“. Í auglýsingu var nú líkt og undanfarin ár lögð áhersla á verkefni sem snertu hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað, innlenda orkugjafa, vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis. Um hvern styrk er gerður samningur þar sem kveðið er á um verk- og kostnaðaráætlun, áfanga við greiðslu styrkfjárhæðarinnar, framvinduskýrslur og skilagögn. Miðað er við að styrkir úr Orkusjóði geti numið allt að helmingi kostnaðar við verkefnið sem styrkinn hlýtur eða þann hluta þess sem styrktur er.
Stærsti styrkurinn nú fer til verkefnis um eldsneytisframleiðslu úr örverum, og annar litlu minni til lífmassaverkefnis. Að öðru leyti má segja að samgöngur – rafbílar og hjólreiðar – og sjávarútvegur skipi öndvegi við styrkúthlutunina, enda einna mest þörf á orkuskiptum í þessum greinum. Tveir styrkir tengjast landbúnaði og aðrir tveir rekstri smávirkjana.
Orkuráð starfar í tengslum við Orkustofnun og er meginhlutverk þess að sjá um rekstur Orkusjóðs. Sjóðurinn veitir áhættulán til jarðhitaverkefna og styrki til rannsókna og fræðsluverkefna um endurnýjanlega orku, orkunýtingu og orkusparnað. Iðnaðarráðherra skipar í ráðið til fjögurra ára í senn og starfa þar frá 2007 þau Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.
Verkefnin 18 sem fá styrk úr Orkusjóði að þessu sinni eru:
meira
Iðnaðarráðuneytið
28. júní 2010 10:22
Uppruni: Iðnaðarráðuneytið
Einkunn
Nýr öflugur samstarfsvettvangur á sviði jarðhitanýtingar
Forystumenn átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hér á landi skjalfestu í dag þann ásetning sinn að starfa saman að jarðvarmaverkefnum erlendis. Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er eitt stærsta jarðhitafyrirtæki heims, leiðir samstarfið og aðild að því eiga einnig þrjár stærstu verkfræðistofur landsins – Efla, Mannvit og Verkís – Jarðboranir, Íslenskar orkurannsóknir og arkitektastofurnar T.ark Teiknistofa og Landslag. Markmið samstarfsins er að opna fyrirtækjunum nýjar leiðir til að koma þekkingu sinni á markað því eftirspurn eftir reynslu á öllum sviðum jarðhitanýtingar fer hratt vaxandi um víða veröld.
Samstarfinu hér á landi er komið á í framhaldi af samstarfsyfirlýsingu OR og japanska stórfyrirtækisins Mitsubishi Heavy Industries (MHI), sem undirrituð var í Tókýó 15. apríl sl. Í samræmi við hana er OR að skapa breiðan vettvang íslenskrar sérþekkingar í jarðhitanýtingu. Sá vettvangur hefur nú tekið á sig mynd og mun frekari þróun hans velta á þeim verkefnum sem aðilarnir kjósa að koma með inn í samstarfið. Í samstarfsyfirlýsingu OR og MHI og yfirlýsingunni sem undirrituð var í dag er reiknað með að frumkvæði að nýjum verkefnum geti komið frá hvaða aðila samstarfsins sem er, sem þá eigi bakland og stuðning í öðrum aðilum samstarfsins við frekari þróun tækifæranna. Í viljayfirlýsingunni felst ekki skuldbinding aðila um slíka þátttöku heldur er skapaður farvegur fyrir formlegt samstarf sem tekin verður afstaða til í hverju tilfelli fyrir sig.
Aðilar viljayfirlýsingarinnar, sem undirrituð var í höfuðstöðvum OR í dag, eru fyrst og fremst að horfa til sölu á sérþekkingu sinni á sviði jarðvarmanýtingar. Hún liggur á mismunandi sviðum; að finna hugsanleg nýtingarsvæði, rannsókn þeirra, mat á umhverfisáhrifum, uppbyggingu virkjana, reksturs þeirra og sölu á afurðum þeirra. Ekki er gert ráð fyrir að fjármögnun hugsanlegra samstarfsverkefna verði í höndum þessara aðila.
Forráðamenn OR áttu í síðasta mánuði fundi með ráðamönnum japanskra banka og þróunarsjóða auk fulltrúa japanskra stjórnvalda um hugsanlega aðkomu að fjármögnun jarðhitaverkefna m.a. í þróunarríkjum. Fram kom á fundunum að íslenskur þekkingarklasi, sem hefði yfir að ráða fremstu sérfræðingum á öllum sviðum jarðvarmanýtingar ásamt japanskri tækniþekkingu, væri eftirsóttur samstarfsaðili.
meira
Orkuveita Reykjavíkur
25. maí 2010 12:26
Uppruni: Orkuveita Reykjavíkur
Einkunn
Orka - Rafmagnstæki
Rafmagnstækjum fjölgar sífellt á heimilum landsins. Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða "Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðu-notkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.
meira
Náttúran
18. apríl 2010 23:31
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Jólaljósin og virkjunarþörfin
Orkunotkun okkar nær hámarki um jólin. Hámark orkunotkunar er merkilegt fyrirbæri því að það ræður í raun stærð virkjana. Þessi afltoppur ákvarðar í raun nauðsynlega stærð virkjana. Það er ekki hægt að geyma rafmagn og því gildir að því hærra sem við teygjum afltoppinn því stærri virkjun þurfum við og þá skiptir litlu máli þó að meðalnotkun dragist saman.
Um jólin þegar að jólaseríur eru kveiktar á næstum hverju heimili, á hverjum vinnustað, í hverjum búðarglugg o.s.fr. er ekki úr vegi að hafa í huga að LED seríur nota brotabrot á við hefbundnar perur og endast margfalt lengur. 500 ljóstvistar eyða jafnmiklu og ein 40 W pera. Þannig er hægt að fá meiri skreytingu fyrir minni orku.
Byggt á upplýsingum frá Sigurði Inga Friðleifssyni framkvæmdastjóra Orkuseturs.
Grafík: Jólasería, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
nánar
Sigurður Ingi Friðleifsson
27. nóvember 2009 17:24
Uppruni: Náttúran.is / Orkusetur
Einkunn
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















