Á döfinni:

Hafið samband við til að skrá viðburði

Póstlisti


Á póstlista Náttúrunnar eru sendar fréttir og tilboð.
Add to Google

Dagatal: Birtingarmynd

Gömlu íslensku mánaðarheitin og gregoríanska tímatalið

Hin gömlu íslensku mánaðanöfn eru þessi:

  1. þorri hefst föstudag í 13. viku vetrar (19. – 26. janúar)
  2. góa hefst sunnudag í 18. viku vetrar (18. – 25. febrúar)
  3. einmánuður hefst þriðjudag í 22. viku vetrar (20. – 26. mars)
  4. harpa hefst sumardaginn fyrsta, fimmtudag í 1. viku sumars (19. – 25. apríl)
  5. skerpla hefst laugardag í 5. viku sumars (19. – 25. maí)
  6. sólmánuður hefst mánudag í 9. viku sumars (18. – 24. júní)
  7. heyannir hefjast á sunnudegi 23. – 30. júlí
  8. tvímánuður hefst þriðjudag í 18. viku sumars (22. – 29. ágúst)
  9. haustmánuður hefst fimmtudag í 23. viku sumars (20. – 26. september)
  10. gormánuður hefst fyrsta vetrardag, laugardag í 1. viku vetrar (21. – 28. október)
  11. ýlir hefst mánudag í 5. viku vetrar (20. – 27. nóvember)
  12. mörsugur hefst miðvikudag í 9. viku vetrar (20. – 27. desember)

Á skífunni hér að ofan sést hvernig gömlu mánaðarnöfnin skarast við gregoríanska tímatalið sem við notumst við í dag.

Samkvæmt gömlum heimildum voru enn eldri mánaðanöfn, þau er notuð voru til forna enn meira lýsandi fyrir þau verk sem bændur og búaiið unnu á tilteknum tímum og lýsir vel nálægðinni við náttúruna og nauðsyn þess að vinna ákveðin verk á réttum tíma. Fornu mánaðarnöfnin eru eftirfarandi:

  1. gaukmánuður/sáðtíð u.þ.b. 12. apríl – 11. maí
  2. eggtíð/stekktíð u.þ.b. 12. maí – 11. júní
  3. sólmánuður/selmánuður u.þ.b. 12. júní – 11. júlí
  4. miðsumar/heyannir u.þ.b. 12. júlí – 11. ágúst
  5. tvímánuður/heyannir u.þ.b. 12. ágúst – 11. september
  6. kornskurðarmánuður/haustmánuður u.þ.b. 12. september – 11. október
  7. górmánuður u.þ.b. 12. október – 11. nóvember
  8. ýlir/frermánuður u.þ.b. 12. nóvember – 11. desember
  9. jólmánuður/mörsugur/hrútmánuður u.þ.b. 12. desember – 11. janúar
  10. þorri u.þ.b. 12. janúar – 11. febrúar
  11. gói u.þ.b. 12. febrúar – 11. mars
  12. einmánuður u.þ.b. 12. mars – 11. apríl

Nákvæm dagsetning er mismunandi eftir árum.

Grafík: Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.

nánar
  • Deildu með vinum

Náttúrumarkaður

Nýleg orð í belg


1984 fann ég á annað hundrað fjögurra blaða smára hjá Norræna húsinu í Reykjavík. Ég ...
Sigurjón Helgi Kristjánsson 10. 03. 2010 12:11:
grein: Hvítsmári og fjögurra blaða smári
Til hamingju með þessa nýjung. Gaman að sjá hve fjölbreytt síðan er orðin hjá ykkur ...
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir 10. 03. 2010 09:54:
grein: Hver tekur við hverju til endurvinnslu?
Ég kíkti aðeins á rammaáætlunina og sá hvergi verndargildismat. Er einungis verið að kynna þá ...
Sólveig 9. 03. 2010 12:38:
grein: Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Sjá Ákallið hans Ómars um þjóðarsátt: http://www.natturan.is/greinar/191/
Guðrún Tryggvadóttir 27. 02. 2010 11:50:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Það er grein um Sigríði í Brattholti í Sögu, tímariti Sögufélagsins. http://www.sogufelag.is/timarit/saga_41_2_efnisyfirl.htm http://www.sogufelag.is/timarit/saga.htm
Pétur Þorleifsson 27. 02. 2010 10:55:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Mig langar bara til þess að þakka fyrir þessa frábæru vefsíðu, algjör brunnur upplýsinga og ...
Gerður Pálmadóttir 26. 02. 2010 18:46:
grein: Samband við Náttúruna
Það er merkilegt samkvæmt punkti eitt að kærendur eiga að tilgreina hvaða virkjanir eiga að ...
Pétur Þorleifsson 29. 01. 2010 18:21:
grein: Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat