Á döfinni:

Hafið samband við til að skrá viðburði

Póstlisti


Á póstlista Náttúrunnar eru sendar fréttir og tilboð.
Add to Google

Dagatal: Atburðadagatal

Maðurinn, umhverfið og umhverfissálfræðin

Páll Jakob Línda, doktorsnemi í umhverfissálarfræði í háskólanum í Sidney heldur fyrirlestur í Gerðubergi miðvikudaginn 17. mars frá kl. 19:00-21:30. Fyrirlesturinn verður haldinn í Gerðubergi.

Í lítilli könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum kom í ljós að Austurvöllur hafði meira aðdráttarafl en Hlemmur í huga langsamlegra flesta sem spurðir voru. Fyrir þá sem þekkja til þessara tveggja staða koma niðurstöðurnar sjálfsagt lítíð á óvart. En af hverju? Hvað er það sem gerir Austurvöll svo eftirsóknarverðan í samanburði við Hlemm? Eru það húsin?  Litirnir? Rýmið, umferðin eða mannlífið?

Það eru einmitt spurningar á borð við þessar sem umhverfissálfræði, ung og rísandi grein innan sálfræðinnar, fæst við. Hér er verið að ræða um grein sem beinir sjónum sínum að samspili fólks og hins efnislega umhverfis í víðum skilningi.

Í fyrirlestrinum í Gerðubergi mun Páll Jakob Líndal doktorsnemi í umhverfissálfræði við University of Sydney í Ástralíu, fjalla um umhverfissálfræði á breiðum grunni og hvernig má hagnýta þá þekkingu sem skapast hefur til að skapa mannvænna og betra umhverfi.

Á síðastliðinum fjórum áratugum hefur geysilegur fjöldi rannsókna farið fram á sviði umhverfissálfræði og er innan hennar finna fjölda kenninga og hagnýttra aðferða, sem í stórum dráttum miðast að því að bæta skilning á samspili fólks og umhverfis og að hagnýta þekkinguna til sköpunar á mannúðlegu umhverfi. Vart þarf að undirstrika mikilvægi þessa því án þekkingar á mannlegu atferli, þörfum fólks og löngunum, er nánast ógerlegt að vita með vissu hvaða áherslur ber að leggja, við hönnun umhverfis.

Aðgangur á fyrirlesturinn er kr. 4.200.- en kr. 3.500 fyrir félagsmenn í samtökunum Umhverfi og vellíðan. Skráning á vef Sumarhússins og garðsins.

Mynd: Magga Stína og fleira gott fólk í einni af mörgum kröfugöngum Íslandsvina gegn Kárahnjúkavirkjun árið 2007 en göngurnar enduðu jafnan á Austurvelli. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

nánar
  • Deildu með vinum

Blásið til HönnunarMars

DesignMarch 2010

Dagana 18. – 21. mars 2010 stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars. Markmiðið er að halda áfram því góða starfi sem farið var af stað með, þar sem grasrótin í hönnunarsamfélagi landsins stendur fyrir stærsta hluta dagskrárinnar.

Kynning á glæsilegri dagskrá HönnunarMars 2010 fer fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur nk. fimmtudag 11. mars kl. 20:00.

HönnunarMars er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum og hönnun þeirra hjá almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Íslenskir hönnuðir hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést í þeirri miklu grósku sem er í íslenskri hönnun í dag.

Nú þegar hefur fjöldi erlendra blaðamanna boðað komu sína á HönnunarMars 2010. Erlendir fyrirlesarar, sem ættu að verða hönnunarsamfélaginu og öðrum innblástur, munu taka til máls í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar auk þess sem Norrænir kaupendur og framleiðendur hönnunar taka þátt í kaupstefnu sem Hönnunarmiðstöð stendur fyrir í samstarfi við Norræna húsið.

Sjá alla viðburði á HönnunarMars 2010.

nánar
  • Deildu með vinum

Úr Fréttabréfi Svansins

Cygnus -  Svanurinn Norræna umhverfismerkiðEfling Svansins

Svanurinn náði góðum árangri á árinu 2009. Mikill áhugi er meðal íslenskra fyrirtækja fyrir Svansvottun í kreppunni. Ein af ástæðum þessa aukna áhuga fyrir vottun er vistvæn innkaupastefna ríkisins sem var innleidd í vor. Stefnan hefur að leiðarljósi að minnka umhverfisáhrif opinberra innkaupa og bæta samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja sem þurfa að bjóða umhverfisvænni valkosti til að mæta kröfum ríkisins.

Alls bárust 16 umsóknir um Svansvottun til Umhverfisstofnunar árið 2009. Fjöldi íslenskra Svansleyfa í byrjun árs 2010 var fimm: Hjá Guðjón Ó prentsmiðjan, Prentsmiðjan Oddi, Sólarræsting, ISS ræstingarsvið auk línusápu, penslasápu og iðnaðarhreinsi frá Undra. Ætla má að heildarfjöldi erlendra Svansmerktra vörutegunda á landinu sé um 150. Augljóst er að úrvalið gæti verið miklu betra, þar sem alls er búið að votta fleiri en 6000 vörutegundir á Norðurlöndunum.

Gott samstarf var með atvinnulífinu á mörgum sviðum á liðnu ári. Einkum má nefna prentiðnaðinn og ræstingafyrirtæki sem sýndu mikinn áhuga fyrir Svansvottun. Meðal annars var haldinn samstarfsfundur með leyfishöfum og umsækjendum um kynningarmál Svansins, vinnufundur fyrir prentsmiðjur og kynningarfundur fyrir hótel á árinu. Greinilegt er að miklir möguleikar liggja í Svansvottun fyrir íslenska framleiðslu og þjónustu.

Svanurinn var víða kynntur árið 2009. Meðal annars má nefna Umhverfisþing, Staðardagskrár-ráðstefnuna, Græna daga Háskólans auk Svansmálstofunnar í febrúar. Gefinn var út sérstakur kynningarbæklingur um Svaninn ásamt ísskápssegli sem sýndi helstu umhverfismerkin. Einnig var Facebook síða Svansins opnuð í lok. Hafin var vinna við gerð kynningarefnis fyrir verslanir, m.a. hillumerkingar, standa o.fl.

Svanurinnn 20 ára - kynningarátak í maí

Svanurinn varð 20 ára þann 6. nóvember 2009, en ákvörðun um stofnun merkisins var tekin af Norrænu ráðherranefndinni þann dag árið 1989. Svanurinn hefur náð ótrúlegum árangri á tuttugu árum og er leiðandi umhverfismerki á Norðurlöndum og víðar.

Í tilefni 20 ára afmælisins undirbýr Umhverfisstofnun kynningarátak í byrjun maí til að efla umhverfismerkta vöru og þjónustu á Íslandi. Við leitum nú að samstarfsaðilum meðal smásöluverslana, heildsala, innflutningsaðila, leyfishafa og umsækjenda Svansins til að taka þátt í átakinu. Svanurinn verður áberandi í fjölmiðlum meðan átakið stendur yfir, en við viljum einnig tryggja að umhverfismerktar vörur séu samtímis sýnilegar í verslunum og víðar. Fyrirhugaðir eru margvíslegir viðburðir svo sem grænir dagar í verslunum, leikir, sýningar o.fl. – allt eftir því hver niðurstaðan úr samstarfinu verður .

Undirbúning átaksins hefst með hugarflugsfundi og umræðum um hvernig hægt er að ná hámarksárangri með umhverfismerktum vörum og þjónustu. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 11. mars á Grand Hótel kl. 13-16, skráning á annemaria@umhverfisstofnun.is

NBlómið, umhverfismerki ESBýttt logo umhverfismerki Evrópusambandsins, Blómið

Evrópusambandsið kynnti nýlega nýtt útlit á umhverfismerki sambandsins, Blóminu. Auk þess eru fyrirhugaðar mikar breytingar á merkinu, m.a. hvað varðar innleiðingu nýrra viðmiða, fjármögnun merkisins og kynning. Hægt er að fylgjast með fréttum um Evrópublómið á vefsvæði merkisins.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta 66 mismunandi vöru- og þjónustuflokka, þar á meðal þvottaefni, pappír, tölvur, hótel, veitingastaði, ræstiþjónustu, vistvænt eldsneyti o.fl. o.fl. Umhverfisstofnun hefur umsjón með Svaninum á Íslandi. Nánari upplýsingar um Svaninn: www.svanurinn.is, www.nordic-ecolabel.org.

nánar
  • Deildu með vinum

Hávaða- og loftmengun á nýársnótt

Hávaða- og loftmengun fylgir gjarnan flugeldunum, skottertum og blysum. Búist er við stilltu veðri um þessi áramót og því líklegt að svifryksmengun í Reykjavík liggi í loftinu fram eftir nóttu.

„Loftmengunin fer eftir veðurskilyrðum á nýársnótt,“ segir Anna Rósa Böðvarsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og að búast megi við töluverðri mengun ef veðurspáin gengur eftir. Styrkur svifryks (PM10) hefur oft verið yfir mörkum á nýársnótt. Svifryk hefur farið 19. sinnum yfir heilsuverndarmörk á árinu 2009. Heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri, astma eða lungnasjúkdóma þurfa að gæta sín um áramótin vegna loftmengunar. Farstöð loftmengunar í Reykjavík verður staðsett að þessu sinni á horni Stakkahlíðar og Miklubrautar og munu upplýsingar úr henni væntanlega gefa góða mynd af loftmengun í íbúðahverfi á nýársnótt.

Búast má við að um það bil 550 tonn af flugeldum standi landsmönnum til boða á flugeldasölum að þessu sinni. 425 tonn af nýjum flugeldum voru flutt inn á árinu samkvæmt upplýsingum frá Ólafi G. Emilssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni á höfuðborgarsvæðinu. Gera má ráð fyrir að eldri birgðir vegi að minnsta kosti 125 tonn.

Feikilegt magn af rusli hlýst af flugeldum. Kristinn Ólafsson framkvæmdastjóri Landsbjargar segir að púður sé 10% af heildarþyngd flugelda, restin sé aðallega pappi. Þessum pappa og öðrum skotleifum þarf fólk að skila sjálft á endurvinnslustöðvar. Flugelda má ekki setja í tunnur við heimili fólks.

nánar
  • Deildu með vinum

Jólamarkaður í Kjósinni

Laugardaginn 5. desember verður jólamarkaður frá kl. 12:00-17:00 í Félagsgarði í Kjós. Á boðstólum verður ýmiskonar handverk og matvælaframleiðendur úr Kjósinni verða með margskonar góðgæti til sölu. Hægt er að byrja daginn á því að ná sér í alíslenskt jólatré á skógræktarsvæðinu við Fossá og fá sér svo kakó og vöfflu hjá kvenfélaginu í Félagsgarði auk þess að skoða það sem þar er í boði.

Jólakort til styrktar Lyngási
Sögumiðlun hefur framleitt jólakort sem verða til sölu á jólamarkaðnum. Allur ágóði af sölu þeirra rennur til Lyngáss, dagvistar fyrir fötluð börn og ungmenni, sem er hluti af Styrktarfélaginu Ás. Myndin á jólakortinu er búin til úr pappír, eggjabökkum, álfilmu af smjördollu og gömlu klæði.  Að auki verður Sögumiðlun með ýmsar bækur, geisladiska og fleira með þjóðlegu ívafi á boðstólum.

Um Lyngás:
Á Lyngási dvelja fötluðustu börnin hverju sinni. Á tímum sem þessum er mikilvægt að gleyma ekki þessum hóp sem þarf á öflugum málsvörum að halda. Það góða starf sem þarna fer fram skiptir sköpum í lífi þessara einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Við viljum leggja okkar að mörkum og um leið þakka fyrir þá frábæru þjónustu sem við fengum er sonur okkar dvaldi þarna í rúmt ár. Eins árs var hann varla farinn að geta setið uppréttur en ári síðar labbaði hann út af Lyngási og er nú í almennum leikskóla.
Pakki með 8 jólakortum og umslögum kostar 1000 krónur. Pantanir berist á gyda@sogumidlun.is.

Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á jólamarkaðinn en vilja engu að síður leggja þessu góða málefni lið geta pantað kort í gegnum tölvupóst gyda@sogumidlun.is og bætist þá við sendingarkostnaður.

nánar
  • Deildu með vinum


1 síða 1 46
flýtival: 5 10 15 20 25 30 35 40 45

Náttúrumarkaður

Nýleg orð í belg


1984 fann ég á annað hundrað fjögurra blaða smára hjá Norræna húsinu í Reykjavík. Ég ...
Sigurjón Helgi Kristjánsson 10. 03. 2010 12:11:
grein: Hvítsmári og fjögurra blaða smári
Til hamingju með þessa nýjung. Gaman að sjá hve fjölbreytt síðan er orðin hjá ykkur ...
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir 10. 03. 2010 09:54:
grein: Hver tekur við hverju til endurvinnslu?
Ég kíkti aðeins á rammaáætlunina og sá hvergi verndargildismat. Er einungis verið að kynna þá ...
Sólveig 9. 03. 2010 12:38:
grein: Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Sjá Ákallið hans Ómars um þjóðarsátt: http://www.natturan.is/greinar/191/
Guðrún Tryggvadóttir 27. 02. 2010 11:50:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Það er grein um Sigríði í Brattholti í Sögu, tímariti Sögufélagsins. http://www.sogufelag.is/timarit/saga_41_2_efnisyfirl.htm http://www.sogufelag.is/timarit/saga.htm
Pétur Þorleifsson 27. 02. 2010 10:55:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Mig langar bara til þess að þakka fyrir þessa frábæru vefsíðu, algjör brunnur upplýsinga og ...
Gerður Pálmadóttir 26. 02. 2010 18:46:
grein: Samband við Náttúruna
Það er merkilegt samkvæmt punkti eitt að kærendur eiga að tilgreina hvaða virkjanir eiga að ...
Pétur Þorleifsson 29. 01. 2010 18:21:
grein: Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat