Á döfinni:

Hafið samband við til að skrá viðburði

Póstlisti


Á póstlista Náttúrunnar eru sendar fréttir og tilboð.
Add to Google

Heilsan: Andlega hliðin

Lífsvefurinn - nám fyrir konur

Enn er hægt að komast að á námskeiðin í Lífsvefnum sem hefjast á Akureyri þ. 3. febrúar og í Reykjavík þ. 5. febrúar. Í bígerð er líka námskeið í Skagafirði ef þátttaka næst.
Byrjað verður með 20 klukkustunda grunnnámskeiði sem hægt er að fylgja eftir með 40 klukkustunda framhaldsnámi.

Lífsvefurinn – sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur

Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi.  Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur.

Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.
Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið;  læra leiðir til skapandi samskipta;  styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína;  og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.

Lífsvefurinn var upphaflega (1991) ofinn af þeim Valgerði H. Bjarnadóttur og Karólínu Stefánsdóttur, sem báðar eru félagsráðgjafar með mikla reynslu af vinnu með konum.  Lagt var af stað með 20 klst námskeið sem enn er haldið reglulega á ýmsum vettvangi. Námsefnið hefur síðan vaxið og þróast eins og eðlilegt er og nú er einnig boðið upp á heildstætt  60 klst. nám yfir lengri tíma. Haustið 2009 hafa tveir kvennahópar verið í þessu lengra námi og vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að leggja af stað með þriðja hópinn norðan heiða og bjóða einnig upp á 60 klst námið á höfuðborgarsvæðinu. Þá verður byrjað með 20 klst grunnnámskeið og síðan gefst konum tækifæri til að bæta við 40 klst framhaldi.

Grunnurinn í Lífsvefnum er heildarhugsun og hringurinn er nýttur sem grunnform. Byggt er á eigin kvenlægri þekkingu og reynslu, skapandi samtali mæðra þessa námsefnis, auk kenninga og hugmynda annarra kvenna og karla með ólíka menntun og sjónarhorn. Við nýtum okkur visku formæðranna sem enn lifir meðal frumbyggja þessa heims, auk þess sem hún lifir í fornum sögnum, goðsögum og ævintýrum. Þessi viska hefur oftar en ekki verið staðfest á síðari árum af nútímavísindarannsóknum.

Áhersla er lögð á að kynna þátttakendum skapandi lífssýn og ekki síst nýja sýn á sjálfar sig og tengsl sín við rætur, núverandi umhverfi og framtíð. Í gegnum ýmsa spegla úr draumum og menningarsögu, goðsögnum, þjóðsögum og ævintýrum, auk blákalds raunveruleikans, opnast gluggar sem veita skilning á stöðu kvenna og hverrar einstakrar konu og útsýni til nýrra möguleika. Þessi þekking verður að uppistöðu sem konurnar nýta til að vefa ný munstur í sinn lífsvef, skapa nýja sögu, um leið og þær læra að nýta efnið í lífi og starfi með öðrum konum og körlum.

*Skráning á vanadis@vanadis.is og nánari upplýsingar um verð á vefnum vanadis.is. og í síma 895 3319.

nánar
  • Deildu með vinum

Um sjö ára tímabilin í ævi mannsins - Inngangur

Við ætlum í þeim tólf athugunum sem hér fara á eftir að líta á þroska mannsins á lífsbrautinni. Mismunandi stigum er lýst, í sjö ára tímabilum og mikilvægar hliðar á þroska égsins dregnar fram. Áhugi sífellt fleiri hefur vaknað á eigin ævisögu og æ fleiri upplifa þörf fyrir aukna sjálfsþekkingu og sjálfsinnsæi. Hver er ég? Hvernig virka ég eiginlega? Hvað er ég að fást við og er það sem ég geri það sem ég vil í raun og veru? Hvað merkir það að vera manneskja?

Síðastliðin 100 ár höfum við lifað á nýju, björtu tímabili. Björtu, vegna þess að frá árinu 1899 hafa hverjum manni boðist alveg ný tækifæri til sálræns og andlegs þroska.
Fyrir rúmum 5000 árum síðan, í upphafi Kali Yuga, hins myrka skeiðs, var hliðunum milli hins andlega og efnislega heims lokað með þeim afleiðingum að mennirnir urðu æ fastara bundnir hinu ytra, skynjanlega. Dauðinn varð endalok tilverunnar og meir og meir óttablandin ráðgáta. Og þróunin inn í efnishyggjuna náði hámarki sínu við lok 19. aldarinnar. Tæknin þróaðist sífellt meir, maðurinn varð að lokum að efnislegum líkama, einskonar vél. Ennþá, meir en 100 árum síðar, lifir enn afar sterk efnishyggja, mest í náttúruvísindum læknisfræðinnar, með örlagaríkri einhæfni í sýninni á manninn og skilningi á sjúkdómum.

En nýja ljósið sést einnig. Ég ætla að taka fram tvö sjónarmið. Með brautryðjandastarfi rannsókna sálfræðinga eins og Freud og Jung, og einnig á síðari árum t.d. Rogers og Maslow, verður til alveg ný þekking á hinu innra í manninum. Mismunandi form sálarfræði, sálvísinda verða til og þarmeð vitneskja um hvað gerist inni í manninum, hvatir hans og þrár, ótti og langanir, allar hinar mismunandi tilfinningar og innri mótív.

Gegnum brautryðjandi rannsóknir Rudolfs Steiner og fleiri þróast viskan um manninn (mannspekin), með hagnýtri sálarþekkingu, sem gerir raunveruleg tengsl við nýjan andlegan veruleika möguleg. Hliðin að slíkri þróun er að finna í égi mannsins: þegar ég læri að athuga og þroska áfram hvernig ég sjálfur hugsa og framkvæmi.

meira
  • Deildu með vinum

Fyrstu sjö æviárin

Eðlilega upplifum við hverja fæðingu sem nýja byrjun. Og öll höfum við hafið lífsbraut okkar sem lítið barn. En er það ekki grípandi þetta augnatillit sem getur mætt okkur, þegar lítið barn horfir beint í augu okkar? Svo mikil alvara, slíkur þroski og íhygli er mætir okkur. Ég upplifi oft á slíku augnabliki sterka andlega nærveru, já eiginlega égkraft. Og þá er fyrir mér staðfest, að einstaklingseðli mannsins, það verður ekki fyrst til með fæðingunni til þess að þroskast síðan smám saman, nei, það er með frá byrjun. Þegar manneskja fæðist, þá kemur hún einhversstaðar frá, úr andlega heiminum. Einstaklingseðli mannsins stígur þá niður úr heimi, sem er gjörólíkur hinum efnislega hversdagsheimi. Í andlega heiminum er allt eining, allt eftirtekt, þýðing og skilningur. Þú ert það sem þú upplifir, þú ert algjörlega inni í því sem þú mætir, umgengst með. Í andlega heiminum er hið sanna ég mannsins og allar mætingar við aðrar verur eru hinar innilegustu beinu égupplifanir.

Ég reyni að lýsa þessu vegna þess að slíkir eiginleikar og kraftar eru ennþá virk í litla barninu. Barnið litla hefur rétt yfirgefið þetta andlega svið, en sem áhrif afla er það enn að finna umhverfis það. Þessi andlegi égkraftur líkt og geislar inn í litla barnið og gerir að barnið leitar fyrst og fremst með athygli sinni til annarra égvera, á mjög ákafan en einnig afar mismunandi hátt til að geta fundið það mikilvæga. Og hamingjusamt bros, svarar brosi okkar, þegar við full gleði mætum þessari ætlan. Þessi andlegi égkraftur veitir síðan eftirtekt hvernig við hreyfum okkur, hvernig við stöndum og göngum. Athygli þýðir ávallt, að maður vill verða hluti þess sem vekur athyglina, maður tengist því, reynir að verða eins. Barnið líkir eftir, það hermir segjum við, en eiginlega gerir það áfram eins og það gerði í andlega heiminum, þar sem maður er það sem maður veitir athygli. Þannig lærir barnið málið, með því að ,,bráðna inn“ í það sem við segjum, láta það verka í sér, láta hljóðin móta talfærin, vöðvana í barkakýlinu, sem geta síðan virkað eins og þeir gera hjá fullorðnum. Og þegar barnið lærir málið og síðan hugtökin, lærir að hugsa, þá gerist það ekki þannig að maður verði fyrst að þekkja bókstafina, til að tengja þá síðan saman í orð og setningar. Nei, því er öfugt farið. Eiginlega ætti maður að reyna að skilja að litla barnið skilur allt, eins og það þekkir allt, til þess að fara síðan að aðgreina meira og meira. Fyrst andlega meiningin í aðstæðunum, síðan einstök setning, til að skilja að lokum einstök orð og einstaka reynslu. Úr hinu alltumlykjandi til hins meira sérhæfða.

meira
  • Deildu með vinum

Námskeið og ráðgjöf haustið 2009

Nú fer í hönd tími námskeiða, sjálfsskoðunar og uppbyggingar. Vanadís býður upp á námskeið og ráðgjöf af ýmsu tagi, sjálfsstyrkingu kvenna, drauma karla og kvenna, innlit í forna menningu o.fl.

Lífsvefurinn – sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur
Námskeiðið er 20 klst (6 skipti) og er haldið á þriðjudögum 29. sept til 27.október kl. 18:00-21:00, auk laugardagsins 31. október kl.11:00–16:00.* Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt. Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar. Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til betri samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.

Draumar – auður svefnsins
Fimmtudagskvöld 8.október kl.18:00–22:00 (4 klst)*. Stutt kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum, en munum það hins vegar ekki alltaf. Kynntar verða einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.

Draumar – auður svefnsins
Námskeiðið er 12 klukkustundir (4 skipti) og er haldið á þriðjudögum í nóvember kl. 18:00-21:00*. Námskeiðið fjallar um hlutverk og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma ogannarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Okkur dreymir öll, íhvertsinn sem við sofum, en munum það hins vegar ekki alltaf.
Á námskeiðinu verður unnið í hópum og pörum, og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og skoða drauma. Rýnt verður í táknmál draumanna og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og –feðrum, til frumbyggja Ástralíu og arftaka Jung. Þátttakendur verða virkir í að þróa námskeiðið og velja úr ýmsum þeim aðferðum sem þekktar eru til að kanna þetta ótakmarkaða og ævintýralega land svefnsins.

Örnámskeið
Öðru hverju í haust mun Vanadís bjóða upp á örnámskeið (eitt kvöld, eftirmiddag, hádegi eða morgun)*, smásýnishorn af lengri námskeiðum. Námskeiðin verða auglýst á póstlista Vanadísar og heimasíðunni www.vanadis.is. Fyrsta örnámskeiðið, Helgióður, verður föstudaginn 2. október kl. 17:00-19:00 og fjallar um erótísk ástarljóð súmersku gyðjunnar Inönnu.

meira
  • Deildu með vinum

Dalai Lama á Íslandi

Hans heilagleiki 14. Dalai Lama, Tenzin Gyatso, handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta, mun dvelja á Íslandi dagana 1.-3. júní. Þetta er í fyrsta sinn sem Dalai Lama heimsækir Ísland en hann hefur heimsótt fjölda landa undanfarin 50 ár, ýmist sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila.

Meðan á dvöl hans stendur mun Dalai Lama halda fyrirlestur þar sem hann fjallar um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju ásamt því að svara fyrirspurnum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Laugardalshöll þann 2. júní kl. 15:00.

Dalai Lama er þekktur um allan heim fyrir að hafa aldrei hvikað frá þeirri stefnu að leita friðsamlegra lausna í málefnum Tíbets. Hann hefur verið óþreytandi baráttumaður og málsvari þjóðar sinnar frá því að hann flúði landið sitt árið 1959. Upp frá því hefur hann haft aðsetur í Indlandi og stýrt þaðan ríkisstjórn sinni í útlegð.

Þessi merki friðarleiðtogi er nú 73 ára gamall og gefst því landsmönnum einstakt tækifæri til að hlýða á þennan merka mann sem vakið hefur athygli og aðdáun um heim allan, á meðan hann er enn við góða heilsu.

Félagið Dalai Lama á Íslandi stendur fyrir heimsókninni og hefur séð um allan undirbúning hennar.

Miðar fás á midi.is.

ATH að fyrirlesturinn fer fram á ensku.

nánar
  • Deildu með vinum


1 síða 1 3

Náttúrumarkaður

Nýleg orð í belg


1984 fann ég á annað hundrað fjögurra blaða smára hjá Norræna húsinu í Reykjavík. Ég ...
Sigurjón Helgi Kristjánsson 10. 03. 2010 12:11:
grein: Hvítsmári og fjögurra blaða smári
Til hamingju með þessa nýjung. Gaman að sjá hve fjölbreytt síðan er orðin hjá ykkur ...
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir 10. 03. 2010 09:54:
grein: Hver tekur við hverju til endurvinnslu?
Ég kíkti aðeins á rammaáætlunina og sá hvergi verndargildismat. Er einungis verið að kynna þá ...
Sólveig 9. 03. 2010 12:38:
grein: Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Sjá Ákallið hans Ómars um þjóðarsátt: http://www.natturan.is/greinar/191/
Guðrún Tryggvadóttir 27. 02. 2010 11:50:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Það er grein um Sigríði í Brattholti í Sögu, tímariti Sögufélagsins. http://www.sogufelag.is/timarit/saga_41_2_efnisyfirl.htm http://www.sogufelag.is/timarit/saga.htm
Pétur Þorleifsson 27. 02. 2010 10:55:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Mig langar bara til þess að þakka fyrir þessa frábæru vefsíðu, algjör brunnur upplýsinga og ...
Gerður Pálmadóttir 26. 02. 2010 18:46:
grein: Samband við Náttúruna
Það er merkilegt samkvæmt punkti eitt að kærendur eiga að tilgreina hvaða virkjanir eiga að ...
Pétur Þorleifsson 29. 01. 2010 18:21:
grein: Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat