Heilsan: Viðmið og kort
Vistvæn innkaupaviðmið

Til þess að auðvelda innkaup á vörum og þjónustu sem eru síður skaðleg umhverfi og heilsu hefur Náttúran.is tekið saman 11 viðmið sem spanna veigamestu þættina. Viðmiðin eru einföld og hjálpa til að nálgast markmiðið, það er að velja bestu vöruna út frá sjónarmiði heilsu, umhverfis og jafnvel félagslegum aðstæðum sem í daglegu tali eru nefnd sjálfbær þróun.
Viðmiðin eru: Orka, eldsneyti, vatnsnotkun, ofnæmi, tilbúin efni, þungmálmar, öryggisblað, umhverfismerkingar, siðgæðisvottun, vinnuumhverfi og endurvinnsla.
Astma- og ofnæmissamtök Norðurlanda
Merki Astma- og ofnæmisstamtaka Norðurlanda.
Landssamtök astma- og ofnæmissjúklinga á Norðurlöndum veita ofnæmisprófuðum og samþykktum vörum í viðkomandi landi leyfi til að bera merki Astma- og ofnæmissamtakanna til þess að auðvelda astma- og ofnæmissjúklingum að finna vörur sem prófaðar hafa verið á viðurkenndan hátt og ekki eru taldar valda ofnæmi.



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla



















