Í fararbroddi: Nýsköpun
Anna Rósa grasalæknir með vörur á markað
![]()

Anna Rósa grasalæknir hefur nýverið sett á markað* vörur unnar úr lífrænum lækningajurtum undir sínu eigin merki „Anna Rósa grasalæknir“.
Íslensku lækningajurtirnar tínir Anna Rósa sjálf á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði og erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar. Vörulínan samanstendur af fjórtán vörutegundum sem skiptast í þrjá flokka; krem, smyrsl og tinktúrur. Anna Rósa býr til öll hvít krem frá grunni en þau innihalda öll lífrænar íslenskar og erlendar lækningajurtir. Kremin innihalda einnig hátt hlutfall af lífrænu kakó- og sheasmjöri sem eru einstaklega nærandi og rakagefandi fyrir húðina. Kremin innihalda ekki paraben rotvarnarefni, né lanólín eða kemísk ilmefni.
Smyrsl hefur Anna Rósa notað um árabil með góðum árangri í ráðgjöf með sjúklinga. Smyrslin innihalda eingöngu E-vítamín sem rotvarnarefni og eru án lanólíns eð kemískra ilmefna. Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Anna Rósa hefur um árabil búið til sínar eigin tinktúrur úr íslenskum og erlendum lækningajurtum.
Tinktúrurnar hefur hún sérblandað handa hverjum og einum. Á þeirri reynslu byggir hún uppskriftirnar af tinktúrunum sem er að langmestu leyti unnar úr ferskum íslenskum lækningajurtum.
Sjá lista yfir vörurnar frá Önnu Rósu hér að neðan:
Nýtt merki Móður Jarðar
Móðir Jörð, lífrænt vottað framleiðslufyrirtæki Eymundar Magnússon í Vallanesi á Héraði, hefur nú tekið upp nýtt merki.
Merkið er hannað af Igor hjá Designgroup Italia í Mílano.
Tilgangurinn með nýja merkinu er að senda einfaldari og skýrari skilaboð um nálægð Móður Jarðar við móður jörð, ef svo má að orði komast.
Það mun taka nokkurn tíma að skipta út umbúðum á öllum vörum svo til að byrja með verða báðar útgáfurnar í gangi.
Sjá nánar um Móður Jörð á vef fyrirtækisins www.vallanes.net. Heilsa sér um drefingu á vörum Móður Jarðar.
Sjá Móður Jörð hér á Grænum síðum en nokkrar vörutegundir Móður Jarðar eru til sölu hér á Náttúrumarkaði. Birkiolía, Blágresisolía, Lífolía, og lífrænt byggmjöl.
Smáskammtar frá Jörth
Jörth er nýtt fyrirtæki í eigu Birnu Ásbjörnsdóttur en hún er menntaður smáskammtalæknir (hómópati) frá The College of Practical Homeopathy, London. Hún hefur einnig menntað sig í næringarþerapíu (Nutritional therapy) og einstaklingsráðgjöf (Counseling).
Jörth ehf. er staðsett að Sólheimum í Grímsnesi og framleiðir og selur náttúruvörur ásamt því að veita ráðgjöf hvað varðar hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Fyrirtækið vinnur út frá strangri stefnu um umhverfisvæni bæði á framleiðslustiginu sem og í vali á innihaldsefnum og umbúðum.
Vörurnar - Smáskammtar:
Allar jurtir eru villtar eða lífrænt ræktaðar og flestar eru þær tíndar hér á landi. Ef um sérstakar jurtir eða önnur náttúruefni er að ræða eru þau innflutt frá birgjum sem eru á svipaðri línu.
Íslensku jurtirnar eru tíndar á ákveðnum tímum í tengslum við himintunglin en kallast sú tínsluaðferð „lífefld eða biodynamisk” (Sjá skýringar á wikipedia.org/wiki/Biodynamics).
Þannig er kraftur jurtanna mestur og lækningamátturinn talinn meiri.
Samsetning Smáskammta frá Jörth er einstök og ekkert í líkingu við þær sem til eru á markaði í dag. Kenningar á bak við Smáskammtana koma úr nokkrum áttum en má nefna Smáskammtafræðin (Homeopathy), Mannspeki (Anthroposophy) og Næringarþerapíu (Nutritional Therapy).
Dregur úr olíueyðslu
Árni Bergmann Pétursson, forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, hlaut í gær Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009. Viðurkenninguna fékk hann fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Notkun búnaðarins, sem er framleiddur hjá HBT, um borð í fiskiskipum hefur leitt til allt að tíu prósenta olíusparnaðar með tilheyrandi minnkun útblásturs. Það staðfesta mælingar úr skipum Þorbjarnar hf. í Grindavík, þar sem þessi búnaður hefur verið settur upp.
Afhending Umhverfisverðlauna LÍÚ er orðin fastur þáttur í störfum aðalfundar samtakanna. Verðlaunin voru nú afhent í ellefta sinn. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í gær.
Nýsköpun í ferðaþjónustu í Reykjavík
Reykjavíkurborg veitti í sumar styrki til nýsköpunar í ferðaþjónustu í fyrsta sinn. Efnt var til hugmyndasamkeppni af þessu tilefni og bárust á sjöunda tug hugmynda til Höfuðborgarstofu. Skipaður var starfshópur til að fara yfir hugmyndirnar en í honum sátu fulltrúar frá menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu, Nýsköpunarmiðstöð, Útflutningsráði og Samtökum ferðaþjónustunnar.
Sjö verkefni hlutu styrki, samanlagt 7 m.kr.
- Vatnavinir hlutu styrk til að þróa áfram hugmyndir um fjölbreyttari baðmenningu í Reykjavík. Vatnavinir vilja leggja áherslu á náttúruupplifun innan borgarmarkanna og þannig auka fjölbreytnina og styrkja ímynd Reykjavíkur ennfrekar sem ´Heilsuborg´.
- Þórdís Ágústsdóttir hlaut styrk til að vinna að Ljósmyndasýningu í Reykjavík sem haldin verður í fyrsta sinn árið 2011.
- Fyrirtækið Náttúran.is hlaut styrk til að hanna og þróa grænt Reykjavíkurvefkort sem dregur grænu kostina í borginni sérstaklega fram.
- Inga Jessen hlaut styrk til að hanna og viðhalda vefsíðunni Freecitytravel.com – heimasíða þar sem ferðamenn geta nálgast fjölbreyttar upplýsingar um ókeypis afþreyingu í Reykjavík á einum stað.
- Sigurður Hall hlaut styrk til að koma upp og viðhalda íslenskri gourmet matarsíðu byggðri á og tengdri Food and Fun hátíðinni. Markmiðið er að kynna Reykjavík sem heimsklassa matarborg – borg sem vert er að heimsækja vegna veitingastaðanna og matarins.
- Valgeir Guðjónsson hlaut styrk til að setja á svið sýninguna Iceland in reverse: A musical journey from present Iceland to the past. Þetta er sýning með leik og söng um sögu Íslands ætluð ferðamönnum. Sjá einnig Reykjavikihospitality.com.
Hönnunarmiðstöð Íslands hlaut styrk til að efna til samkeppni um Reykjavíkurminjagrip. Keppnin er öllum opin og felst í því að hanna nýjan og einkennandi minjagrip fyrir Reykjavík. Verðlaunatillagan skal endurspegla vörumerki Reykjavíkur sem ferðamannaborgar, Reykjavík - Pure Energy. Vörumerkið vísar til þeirrar hreinu orku sem sem Reykjavík býr yfir í fleiri en einni merkingu: í náttúrunni, vatninu, menningunni og sköpunarkraftinum. Takist vel til má ætla að gripurinn gæti orðið einkennandi fyrir Reykjavík og seldur víða í borginni. Besta hönnunarhugmyndin hlýtur 600.000 kr. verðlaun.
Sjá nánar um verðalaunin hér.
Mynd: Áslaug Friðriksdóttir formaður menningar og ferðamálaráðs ásamt þremur aðstandendum vatnavina þeirri Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur, Maríu Sjöfn Dupuis Davíðsdóttur og Olgu Guðrúnu Sigfúsdóttur við afheningarathöfnina í Ráðhúsinu.



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla





















