Á döfinni:

Hafið samband við til að skrá viðburði

Póstlisti


Á póstlista Náttúrunnar eru sendar fréttir og tilboð.
Add to Google

Í fararbroddi: Fremst á sviði

Fyrsta Svansmerkta bæklingnum frá Odda nú dreift í Evrópu

Kynningarbæklingur Ferðaþjónustu bænda, „The Ideal Holiday 2010“, er fyrsti prentgripurinn  sem  framleiddur er hjá Odda sem ber Svansmerkið, norræna umhverfismerkið. Bæklingurinn er prentaður í 25.000 eintökum og er hann kominn í dreifingu í Evrópu og víðar.  „Fyrir okkur, sem fyrirtæki í ferðaþjónustu skiptir umhverfisvottun á því prentverki sem við sendum frá okkur miklu máli.  Þegar við vissum að Prentsmiðjan Oddi væri að fá Svansvottun í lok árs 2009 ákváðum við að seinka útgáfu kynningarbæklingsins um nokkrar vikur til að geta Svansmerkt bæklinginn.  Við viljum að ímynd landsins byggist á hreinleika og náttúru og þess vegna þurfum við sem stöndum að kynningu Íslands að vera til fyrirmyndar. Sýnileiki markvissrar umhverfisvinnu skiptir því miklu máli þegar kemur að því að sýna viljann í verki“  segir Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri hjá skrifstofu Ferðaþjónustu bænda sem er vottuð af Green Globe, alþjóðlegum umhverfisvottunarsamtökum í ferðaþjónustu.

Sjá Prentsmiðjuna Odda hér á Grænum síðum, og á Grænu korti í flokknum Grænt fyrirtæki en sá flokkur sýnir öll fyrirtæki á Íslandi sem hafa annað hvort Svaninn eða Green Globe.

Mynd: Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda og Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri og ritstjóri bæklingsins taka við fyrsta umhverfisvottaða eintakinu hjá Stefáni Hjaltalín sölustjóra hjá Odda.

nánar
  • Deildu með vinum

Alkemistinn fær vottun á lífræna framleiðslu snyrti- og heilsuvara

Vottunarstofan Tún ehf hefur staðfest að fyrirtækið Alkemistinn uppfylli kröfur um lífrænar aðferðir við framleiðslu á snyrti- og heilsuvörum og á tejurtum. Vottorð þessa efnis var afhent á Gamlársdag 2009. Alkemistinn er fyrsta fyrirtækið sem hlýtur vottun til lífrænnar framleiðslu í sveitarfélaginu Reykjanesbæ. Hefur slík starfsemi þar með skotið rótum í ríflega þriðja hverju sveitarfélagi landsins.

Með vottun Túns er staðfest að Alkemistinn noti einungis viðurkennd hráefni við framleiðslu á hinum vottuðu vörum, að aðferðir við úrvinnslu og blöndun samræmist reglum um lífræna framleiðslu, og að gæðastjórnun, skráningar og merkingar uppfylli settar kröfur. Alkemistinn er ungt sprotafyrirtæki sem eigandi þess og framkvæmdastjóri, Daniel Coaten, hefur komið haganlega fyrir í hluta byggingar sem áður hýsti vopnageymslu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.

Fyrirtækið er því gott dæmi um þá endurmyndun og nýsköpun sem orðið hefur á gamla varnarsvæðinu á Suðurnesjum. Alkemistinn hagnýtir vottuð lífræn hráefni til fjölbreyttrar framleiðslu á ýmsum snyrti- og heilsuvörum. Meðal þeirra má nefna jurtaþykkni og jurtaseyði byggð á útdrætti með olíum og vatni, varasalva, ilm- og húðvörur. Þá framleiðir Alkemistinn einnig lífrænar jurtablöndur til tegerðar. Nú þegar framleiðir fyrirtækið 40 vottaðar lífrænar vörutegundir.

Athugið að nánari upplýsingar um aðila með lífræna vottun er að finna hér á vefnum:
Sjá aðila sem hafa lífræna vottun frá Vottunarstofunni Tún hér á Græna Íslandskortinu og einstaka aðila undir „Vottanir og viðmið“ hér á Grænum síðum og undir „Vörur“ á Grænum síðum er auk þess hægt að finna aðila eftir tegund framleiðslu þeirra.

nánar
  • Deildu með vinum

Te & kaffi - ryður brautina fyrir Fair Trade vottun hérlendis

Fyrirtækið Te & Kaffi hefur fyst íslenskra fyrirtækja tekist að fá Fair Trade vottun (siðgæðisvottun, einnig þýtt sem réttlætismerking) á vöru hér á landi.

Kaffihrábaunir sem upprunanlega eru ræktaðar á grundvelli Fair Trade má ekki selja unnar (brenndar, malaðar og pakkaðar) sem slíkar án þess að framleiðsluyrirtækið sjálft fái leyfi FLO Fairtrade Labelling Organization til að merkja vöru sína sem Fair Trade vöru. Náttúran.is bað  Te & Kaffi um að lýsa hvað það þurfti að gera til að fá siðgæðisvottun á vöruna þannig að aðrir geti fræðst og lært af reynslunni sem skapar ákveðið fordæmi fyrir íslenska aðila sem hugsanlega hafa áhuga á að feta í fótspor Te & kaffis. Kristbjörg Marteinsdóttir hjá Te & Kaffi tók reyslusöguna saman í eftirfarandi texta:

„Við hófumst handa við að kanna þann möguleika að fá að framleiða og selja Fairtrade vottað kaffi þegar einn viðskiptavinur fyrirtækisins, Háma í Háskóla Íslands, vildi bjóða upp á kaffi sem hefur þessa vottun. Í fyrstu fengum við synjun þar sem ekki væri nein umboðsskrifstofa á Íslandi fyrir Fairtrade. Innan Hjálparstofnunar Kirkjunnar var Lydia Geirsdóttir verkefnastjóri að kynna Fairtrade verkefnið fyrir Íslendingum og íslenskum fyrirtækjum og þekkti vel til fyrir hvað Fairtrade stendur. Við vorum í nánu samstarfi við hana til að byrja með og reyna að fynna lausn á því hvað við gætum gert í stöðunni.  

Í ágúst 2007 ákvað skráningastofa Fairtrade, Flo- Cert, í Bonn í Þýskalandi að opna fyrir umsóknir fyrir lönd sem ekki væru með umboðsskrifstofu í sínu heimalandi. Þetta varð til þess að fyrirtækið einhenti sér í að sækja um. Umsóknarferlið tók alls 6 mánuði með tilheyrandi fyrirspurnum, samskiptum, samningum og mikilli pappírsvinnu. Bæði þurfti samþykki fyrir merkingum á umbúðum við Fairtrade Labelling Organizations International og síðan sjálf samningagerðin við Flo Cert, þar sem Te & Kaffi þurfti að samþykkja og undirgangast ýmis skilyrði sem samtökin hafa sett framleiðendum til að tryggja gagnsæi og samræmi í meðferð, framleiðslu og sölu Fairtrade vottaðara kaffihrábauna.

Í Janúar 2008 fékk Te & Kaffi vottunarnúmer sem staðfestir að fyrirtækið má nú kaupa Fartrade vottaðar kaffihrábaunir vinna þær og selja með Fairtrade merkingu, en þess má geta að seljendur hrábauna mega einungis selja þeim Fairtrade hrábaunir sem hafa slíkt vottunarnúmer.

meira
  • Deildu með vinum

Eigandi IKEA langgrænasti ofurmilljarðamæringur á Norðurlöndum

Orð dagsins 3. mars 2009.

Ingvar Kamprad, eigandi IKEA, er langgrænasti ofurmilljarðamæringur Norðurlandanna skv. nýbirtum árlegum lista Sunday Times (Sunday Times Green Rich List). Hann verður þó að sætta sig við þriðja sætið á heimsvísu, á eftir Warren Buffet og Bill Gates. Samtals er Ingvar talinn hafa fjárfest í endurnýjanlegri orku fyrir um 22 milljarða sterlingspunda (rúmlega 3.500 milljarða ísl. kr.). Það er yfirlýst stefna IKEA að árið 2012 noti öll vöruhús fyrirtækisins, hvar sem er í heiminum, eingöngu rafmagn og hita af endurnýjanlegum uppruna. Auk þess á heildarorkunotkunin þá að hafa minnkað um 25%. Í samanburði Sunday Times fær Ingvar einnig stig fyrir áherslu IKEA á tvinnbílavæðingu eigin bílaflota og fyrir að útvega starfsmönnum reiðhjól og sparperur. Svo virðist sem ríkustu menn heimsins fjárfesti nú í auknum mæli í umhverfistækni.
Lesið frétt Byggvärlden í dag 

nánar
  • Deildu með vinum

Nokia enn með bestu umhverfisframmistöðuna

Orð dagsins 24. nóvember.

Nokia heldur forystu sinni í keppni Greenpeace um bestu umhverfisframmistöðu tölvu-, sjónvarps- og farsímaframleiðenda, en skýrsla um umhverfismál rafeindageirans, „Guide to Greener Electronics“, kom út í 10. sinn í dag. Reyndar hefur einkunn Nokia lækkað úr 7,0 í 6,9 frá því að skýrslan kom síðast út fyrir þremur mánuðum, en engu að síður er einkunn fyrirtækisins enn um einum heilum hærri en þeirra næstbestu, þ.e. Toshiba, Sony-Ericsson og Samsung. Nintendo situr hins vegar sem fastast á botninum. Að mati Greenpeace hafa orðið miklar framfarir í umhverfismálum rafeindageirans. Þannig séu PVC og brómeruð eldvarnarefni smátt og smátt á útleið. Hins vegar skorti framleiðendur metnað í loftslagsmálum.
Lesið fréttatilkynningu Greenpeace í dag
og rifjið upp „Orð dagsins“ 23. september 2008

nánar
  • Deildu með vinum


1 síða 1 2

Náttúrumarkaður

Nýleg orð í belg


1984 fann ég á annað hundrað fjögurra blaða smára hjá Norræna húsinu í Reykjavík. Ég ...
Sigurjón Helgi Kristjánsson 10. 03. 2010 12:11:
grein: Hvítsmári og fjögurra blaða smári
Til hamingju með þessa nýjung. Gaman að sjá hve fjölbreytt síðan er orðin hjá ykkur ...
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir 10. 03. 2010 09:54:
grein: Hver tekur við hverju til endurvinnslu?
Ég kíkti aðeins á rammaáætlunina og sá hvergi verndargildismat. Er einungis verið að kynna þá ...
Sólveig 9. 03. 2010 12:38:
grein: Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Sjá Ákallið hans Ómars um þjóðarsátt: http://www.natturan.is/greinar/191/
Guðrún Tryggvadóttir 27. 02. 2010 11:50:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Það er grein um Sigríði í Brattholti í Sögu, tímariti Sögufélagsins. http://www.sogufelag.is/timarit/saga_41_2_efnisyfirl.htm http://www.sogufelag.is/timarit/saga.htm
Pétur Þorleifsson 27. 02. 2010 10:55:
grein: Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar Tómasdóttur veitt í fyrsta sinn
Mig langar bara til þess að þakka fyrir þessa frábæru vefsíðu, algjör brunnur upplýsinga og ...
Gerður Pálmadóttir 26. 02. 2010 18:46:
grein: Samband við Náttúruna
Það er merkilegt samkvæmt punkti eitt að kærendur eiga að tilgreina hvaða virkjanir eiga að ...
Pétur Þorleifsson 29. 01. 2010 18:21:
grein: Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat