Umhverfið: Vistvæn innkaupaviðmið
Vinnuumhverfi - viðmið
Vinnuumhverfi er hugtak sem tekur yfir bæði vinnustaði og vörur og þá vinnu sem á eða mun eiga sér stað með vöruna. Notkunarleiðbeiningar á umbúðum eiga því að tryggja það að varan sé „notuð“ á öruggan hátt.
Það sem notkunarleiðbeiningar eiga að ná yfir er að leiðbeina um það hvernig varan sé notuð án þess að vera heilsuspillandi. Varan má ekki vera skaðlegt heilsu manna og það er framleiðandans og síðan söluaðilans að tryggja það að skilaboð um rétta notkun komi skýrt fram til kaupandans.
Skaðvaldar geta t.d. verið: hávaði, loftmengun, röng efnanotkun, útgufun og rangar vinnustellingar:
Hávaði - Verður til hávaðamengun við notkun vörunnar, mælt í dB(A)?
Loftmengun - Varast þarf að eiturefni (mörg efni geta verið óskaðleg í réttum hlutföllum en eiturefni í röngum hlutföllum) leysist úr læðingi og komist í andrúmsloftið.
Röng efnanotkun - Krefst notkun vörunnar sérstakrar efnanotkunar? Ef já, hvaða efna? Eru efnin varasmöm fyrir heilsu manna? Leiðbeiningar vegna viðhalds og rekstur viðkomandi vöru þarf að vera fyrir hendi. Það getur til dæmis verið til lítils að kaupa umhverfisvæna vöru ef rekstur hennar krefst mikillar óumhverfisvænnar efnanotkunar!
Útgufun - Efni leka fyrr eða síðar út í andrúmsloftið. Því er framleiðanda skylt að skilgreina nákvæmlega hvaða efni eru í vörunni. Hæg uppgufun getur haft áhrif til lengri tíma þótt efni í lofti mælist ekki yfir mörkum í stuttri mælingu.
Staða umhverfismála hefur á mörgum sviðum batnað með betri þekkingu og tækni, til dæmis hreinsibúnaður í iðnaði. En ný þekking hefur einnig leitt til nýrra uppgötvana. Mengun sem á sér stað í dag er á margan hátt flóknari en hún var áður fyrr, uppsprettur mengunar eru fleiri og dreifðari og neytendamynstur hefur breyst gífurlega. Uppspretta efnalosunar út í andrúmsloftið er meðal annars frá neysluvörum okkar í dag, á meðan vörurnar eru í notkun.
Brómeruð eldhemjandi efni og þalöt eru meðal þeirra algengu efna sem finnast í heimilistækjum og fötum allt í kringum okkur en hafa mengandi áhrif á heilsu og umhverfi. Brómeruð eldhemjandi efni hafa lengi verið notuð og eins og nafnið gefur til kynna, til að gera plastvörur og áklæði hitaþolnari/eldýolnari. Þennan algenga efnaflokk er líklegast að finna í tölvunni þinni og áklæðinu á stólnum. Í dag hefur neytandinn val, hægt er að fá bæði áklæði og tölvubúnað sem inniheldur engin brómeruð eldhemjandi efni. Mörg tilbúin efni eru eitruð og ber að varast en ekki síst hafa hin fjölmörgu efni sem virðast skaðlaus í fyrstu neikvæð áhrif til langs tíma. Mjög erfitt getur verið að sýna fram á áhrif slíkra efna. Því gildir hér að fara varlega.
Rangar vinnustellingar - Gildir t.d. um stillingu húsgagna og tækja. Eru til nákvæmar leiðbeiningar um vöruna, vinnustellingar og mögulegar stillingar? T.d. á vinnustólum, borðum, skjám, lyklaborðum, stjórnborðum og vinnuvélasætum.
Líffræðilega erum við ennþá frummenn, hönnuð til þess að vera á stöðugri hreyfingu úti í náttúrunni. Steinn eða þúfa hefur líklegast verið fyrsta vinnuborðið. Í dag er þessu öðruvísi farið, líkaminn sem hannaður er til hreyfingar situr langtímum saman í sömu stellingunum. Þetta hefur leitt til þess að æ fleiri þjást af álagi vegna slæmrar vinnuaðstöðu og vinnuumhverfis. Algeng eru axlar- og hálsmein en þó er ,,músaröxl” að verða stærsta vandamálið. Við innkaup ætti að taka tillit til vinnuhagræðis, það er að segja að notkun vörunnar getur haft áhrif á heilsu. TCO merking tekur bæði til umhverfisins og vinnuhagræðis vörunnar. TCO merking nær meðal annars yfir tölvuskjái, lyklaborð og skrifstofustóla.
Grafík: Tákn sem notað er eingöngu hér á vefnum þegar fjallað er um vinnuumhverfi almennt ©Náttúran.is.
nánar
Finnur Sveinsson
8. febrúar 2012 16:00
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Vistvæn innkaupaviðmið fyrir bílþvott
Flestar sjálfvirkar eða hálfsjálfvirkar bílaþvottastöðvar byggja á háþrýstiþvotti og burstaþvotti. Einnig er oft undirvagn bílanna þveginn og eykur það vatnsnotkunina. Stundum eru sérstakir dekkjaburstar einnig til staðar.
Þvottur á hverjum bíl tekur yfirleitt 6-8 mínútur og eru þvegnir um 20.000 bílar á ári í meðalstórri bílaþvottastöð fyrir fólksbíla. Ekki er enn til algjörlega umhverfisvæn bílaþvottastöð á Íslandi og er þar viðskiptatækifæri fyrir einhvern sem vill marka sér sérstöðu á markaðnum.
Notkun á háþrýstiþvotti dregur úr vatnsnotkun. Samt sem áður þarf 250 til 400 lítra af vatni til að þvo einn bíl. Efni sem notuð eru eru freyðisjampó og fituleysir, auk ýmissa annarra sérhæfðra efna.
Umhverfisáhrif frá venjulegri bílaþvottastöð eru mikil einkum á veturna. Frá þvottastöðunum koma skaðlegir málmar eins og blý, króm, nikkel, kadmíum og sínk. Einnig losa bílaþvottastöðar talsvert magn af olíuefnum og þurfa að vera með mjög góða olíuskilju. Mikið af lífrænum efnum er einnig í afrennsli bílaþvottastöðva og tengist magnið tensíðum sem eru í hreinsiefnunum. Ftalatið DEHP sem hefur neikvæð áhrif á heilsu getur verið í afrennsli og einnig háarómatískar olíur sem taldar eru hugsanlega skaðlegar.
Að lokum má nefna að afrennsli frá bílaþvottastöðvum getur verið með mjög hátt sýrustig eða mjög lágt sýrustig, og miklar sveiflur geta verið á sýrustigi. Allt gerir þetta það að verkum að mjög erfitt er að hreinsa afrennsli frá bílaþvottastöðvum og bílaþvottastöðvar geta reyndar valdið tjóni á hreinsikerfum sem fyrir eru.
Í umhverfisvænum bílaþvottastöðum erlendis fer þó fram viss hreinsun á affallsvatninu áður en því er veitt inn í almenna fráveitukerfið. Afrennsli frá bílaþvottastöðvum er yfirleitt skaðlegt lífríkinu nema hreinsibúnaður umfram olíuskilju sé fyrir hendi.
Það er því til mikils að vinna að fara á umhverfisvænar bílaþvottastöðvar þar sem notuð eru fituleysar sem byggðir eru úr náttúrulegum efnum, og þar sem þess er gætt að nota ætíð bestu efni sem fáanleg eru á markaðnum á hverjum tíma. Bestu bílaþvottastöðvar í heiminum eru þær sem hreinsa vatnið svo vel að þær geta endurnýtt það, þannig að ekkert fer út í fráveitukerfið.
Sjá viðmið fyrir hina ýmsu vöruflokka hér í flokknum „Vistvæn innkaupaviðmið“ sem er að finna undir flipanum „Viðmið“ hér til hægri á síðunni.
Grafík: Íkon fyrir bílþvott, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
nánar
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir / Náttúran
2. febrúar 2012 08:22
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Hættuleg efni / Tilbúin efni - viðmið
Vörur sem fólk kaupir og notar daglega innihalda efni sem eiga að auka endingu varanna, gera þær mýkri, minnka brunahættu osfrv. Kaupmynstur okkar endurspeglast á heimilum okkar á máta sem fæstir gera sér grein fyrir. Það er til dæmis hægt að greina yfir 150 mismunandi efni í „rykrottum“ á hverju meðalheimili. Mörg þeirra koma frá efnum sem Evrópusambandið hefur metið sem skaðleg, þ.e sem eru eitruð, fitusækin og brotna seint niður í líkamanum. Hið mikla magn efna á heimilum okkar er aðalástæða þess að magn efnanna eykst meira í mannfólkinu en í náttúrunni. Efnanotkun heimilanna ein stærsta uppspretta tilbúinna efna í náttúrunni.
Með nýrri löggjöf í Evrópusambandinu árið 1981, þurfti að skrá, ekki meta, öll efni sem voru framleidd og seld innan sambandsins. Sótt var um skráningu fyrir 100.106 efni. Talið er að í dag séu allt að 70.000 efni í notkun í löndum Evrópusambandsins og þar af um 30.000 sem eru framleidd í meira magni en eitt tonn per fyrirtæki og ár. Þar af hafa um 5% farið í gegnum einhverskonar hættumat. Þekking okkar á áhrifum efna á umhverfi og heilsu er því enn af mjög skornum skammti.
Fólk heldur að efni sem eru notuð í dag, t.d í sjampó, fötum, byggingarefni, leikföngum og öðru séu prófuð og viðurkennd af heilbrigðisyfirvöldum. Nær er að segja að þau séu ekki bönnuð því að það er ekki til nein lagasetning sem leggur það á herðar framleiðenda að athuga skaðsemi efna áður en þau eru notuð í vörum eða á annan máta markaðssett.
Það er hins vegar opinberra aðila að rannsaka efnin til að sanna að þau séu skaðleg heilsu fólks og umhverfinu. Þá fyrst er hægt að banna efnin. Sönnunarbyrðin er því hjá hinu opinbera en ekki þeim sem markaðssetja efnin. Náttúran.is telur eðlilegt að neytendur séu upplýstir um áhrif hinna ýmsu efna sem vörur geta innihaldið. Því er farið fram á að seljendur skrái og gefi upp hvaða flokkun og varúðar- og hættusetningar, samkvæmt lögum og reglugerðum, eigi við um viðkomandi vöru. Hér er því einungis verið að fara fram á að viðkomandi seljandi gefi upp lögboðnar upplýsingar sem hann þarf að gefa upp á öðrum stöðum, eins og til dæmis á öryggisblöðum og merkingum vara.
Upplýsingar um flokkun ásamt hættu- og varúðarsetningum er að finna í reglugerð 236/1990 [um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda sem innihalda slík efni] ásamt síðari breytingum. Hér er rétt að benda á að í vissum tilfellum, alls ekki öllum, þurfa framleiðendur að gefa upp þessar upplýsingar í öryggisblöðum.
Dæmi:
Efni sem eru talin skaðleg eru t.d. eldtefjandi efni með brómi sem eru í rafmagnstækjum, rafmagnssnúrum, vefnaðarvörum, gluggatjöldum, áklæðum og húsgögnum. Þau eru talin vera skaðleg umhverfinu og hugsanlega geta haft áhrif á frjósemi og heilsu fólks.
Mýkingarefni, svokölluð þalöt, sem eru notuð í lím, málningu, lakk, snyrtivörur, ilmvötn, plast í gólfefnum og vissum leikföngum. Þau eru talin vera skaðleg umhverfinu og hugsanlega geta haft áhrif á frjósemi og heilsu fólks.
Lífræn efnasambönd með tini sem er m.a að finna bátamálningu, vefnaðarvöru, fötum, leðurvörum og gólfmottum. Auk þess að vera skaðleg umhverfinu eru þau talin vera ertandi fyrir húð og augu.
Yfirborðsvirk efni í t.d sápu og þvottaefnum sem eru skaðleg umhverfinu en geta einnig haft áhrif á exem og aðra húðsjúkdóma.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Finnur Sveinsson
30. janúar 2012 13:18
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Umhverfismerkt - viðmið
Vörur sem merktar eru umhverfismerkingum hafa uppfyllt kröfur um gæði og takmörkun umhverfisáhrifa. Svanurinn, Evrópublómið o.fl. eru trygging neytenda fyrir gæðavöru, sem skaðar umhverfi og heilsu minna en aðrar sambærilegar vörur.
Tilgangur umhverfismerkinga er „að hjálpa neytendum að velja vörur sem hafa minni áhrif á umhverfi og heilsu en aðrar sambærilegar vörur“. Umhverfismerking einstakrar vöru eða þjónustu er staðfesting á að framleiðandinn hefur uppfyllt fyrirfram skilgreind skilyrði við framleiðslu vörunnar, sem dæmi er gerð krafa um hráefni, umbúðir og áhrif vörunnar á líftíma hennar. Þetta er metið af óháðum, úttektaraðila (ekki fyrirtækinu sjálfu eða viðskiptavini þess).
Hér er mikilvægt að gera greinarmun á vottuðu umhverfismerki og umhverfismerkjum framleiðanda. Hér verður einungis talað um vottuð þriðja aðila merki þar sem þau eru talin trúverðugust.
Einnig skal varast að blanda saman umhverfisvottun fyrirtækja og vottuðum umhverfismerkjum. Umhverfisvottun fyrirtækja (ISO 14001) staðfestir að í fyrirtækinu séu ákveðnir verkferlar sem taka tillit til umhverfismála í starfsemi fyrirtækisins. Umhverfisvottun fyrirtækja segir ekkert til um umhverfisáhrif varanna sem fyrirtækið framleiðir eða selur. Sem dæmi má nefna að málningarframleiðandi eða söluaðili getur haft ISO 14001 vottun án þess að það segi nokkuð um umhverfisáhrif málningarinnar. Að segja að vara sem umhverfisvæn af því að framleiðandinn er með vottað fyrirtæki er sama og að segja að bensín sé umhverfisvænt af því að viðkomandi olíufélag er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001.
Umhverfismerki taka hins vegar til vörunnar eða þjónustunnar en segja ekkert um umhverfisstarf fyrirtækisins að öðru leyti. Umhverfismerki og umhverfisstjórnunarkerfi geta skarast þegar merkið nær yfir þjónustu, erfitt getur verið að gera greinarmun á sjálfri þjónustunni og fyrirtækinu sem veitir hana. Það er til dæmis ómögulegt að merkja hótelgistingu án þess að setja umhverfisskilyrði sem snerta rekstur sjálfs hótelsins. Kröfurnar snerta því fyrirtækið sem veitir þjónustuna til að tryggja að þjónustan sé umhverfisvæn.
Umhverfismerki
Óháður þriðji aðili setur ákveðnar kröfur um árangur eða umhverfiseiginleika vöru sem verið er að merkja. Varan eða þjónustan uppfyllir skilyrðin og fær merkingu.
Umhverfisvottun fyrirtækja:
Fyrirtækið ákveður sjálft hverjir séu helstu umhverfisþættir í starfsemi sinni. Óháður aðili gerir úttekt hvort fyrirtækið hafi ákveðna verkferla til að vinna að umhverfismálum. Enginn úttekt er gerð á vörum fyrirtækisins.
Umhverfismálin eru oft flókin, þau fjalla um flókna efnafræði, gróðurhúsaáhrif, áhrif á vistkerfi og svo framvegis. Umhverfismerking auðveldar framleiðandanum að miðla til neytenda framlagi sínu til umhverfismála, neytandinn sparar tíma og fyrirhöfn þess að þurfa að kanna áreiðanleika upplýsinga. Svanurinn og Evrópublómið eru merki sem neytendur geta treyst og ná yfir breitt úrval vöruflokka. Kröfur fyrir vottun vara eru þar að auki í reglulegri endurskoðun. Um lífrænt ræktað matvörur og hráefni gilda merkingarnar Tún og EU-merkið. Þetta eru dæmi um óháð og ábyrg umhverfismerki, en þau eru fleiri. Mikilvægt er að þekkja til merkinganna og vita að hverju gengið er.
Að þróa skilyrði fyrir umhverfismerkingu er æði kostnaðarsamt. Umhverfismerkin eru fjármögnuð að mestu leyti með gjaldtöku af seldum vörum. Til dæmis er kerfi Svansins á þá leið að 0,4 % af heildsöluverði vöru rennur til umsýslu og markaðsstarfs Svansins upp að ákveðnu hámarki þó sem er 200.000 krónur á Íslandi. Svanurinn er merki Norrænu ráðherranefndarinnar og er að hluta fjármagnaður þaðan. Fjármögnun annarra umhverfismerkja er með sams konar hætti, í gegnum sölu á vörunni eða þjónustunni.
Önnur óskilgreind merki
Vörumerkingar verða æ algengari. Fjöldinn allur af merkjum birtast okkur sem gefa til kynna mismunandi hluti. Þessi fjöldi getur gert neytendum erfitt fyrir að lesa í skilaboðin og hafa yfirlit yfir þýðingu þeirra.
Merkjum sem vísa til umhverfissins má gróflega skipta í þrennt: Í fyrsta lagi eru það viðurkennd, merki vottuð af þriðja aðila, í öðru lagi umhverfismerki sem framleiðendur sjálfir merkja vörur sínar með og í þriðja lagi merki sem hafa ekkert með umhverfisstarfs fyrirtækisins að gera og geta verið villandi.
Tvo síðastnefndu flokkana getur verið erfitt að aðgreina. Eigin merki framleiðenda eru ekki jafn trúverðug og traust og fyrrgreind merki sem eru metin af óháðum aðila. Ýmis merki geta verið villandi – þau segja ekkert til um það hvort og hvernig varan hafi áhrif á umhverfið.
Nákvæmar upplýsingar um hvaða aðilar á Íslandi eru með umhverfisvottun og vottuð umhverfisstjórnunarkerfi er að finna hér á Grænum síðum. Þú velur þann flokk sem við á eða slærð inn leitarorð í leitarreitina. Hver og ein vara á Náttúrumarkaði er einnig tengd upplýsingum um vottanir, séu þær fyrir hendi.
Sjá greinar um öll umhverfismerkin í undirflokknum Umhverfi::Umhverfismerki en þau tengjast einnig gagnagrunni okkar og birtast einnig með vörum og aðilum alls staðar sem þau eiga við.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Finnur Sveinsson
17. janúar 2012 13:30
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Tökum höndum saman og stundum vistvæn innkaup!
Vistvæn innkaup snúast um að velja þá vöru sem er síður skaðleg umhverfinu og heilsu manna samanborið við aðrar vörur sem uppfylla sömu þörf og samtímis bera sama eða lægri líftímakostnað.
Til þess að auðvelda innkaup á vörum og þjónustu sem eru síður skaðleg umhverfi og heilsu hefur Náttúran.is tekið saman 11 viðmið sem spanna veigamestu þættina. Viðmiðin eru einföld og hjálpa til að nálgast markmiðið, það er að velja bestu vöruna út frá sjónarmiði heilsu, umhverfis og jafnvel félagslegum aðstæðum sem í daglegu tali eru nefnd sjálfbær þróun.
Hér í láréttu röðinni sérð þú táknmyndir fyrir viðmiðin og í lóðrettu röðinni táknmyndir ýmissa vörutegunda. Ef þú opnar flipann „Viðmið“ hér til hægri á síðunni og smellir á þessi tákn getur þú lesið þig til um hvert viðmið og vörutegund fyrir sig auk þess sem að auðvelt er að sjá hvaða viðmið eiga við hverja vörutegund þar sem viðeigandi viðmið eru sýnileg í láréttu línunni út frá vörunni.
Viðmiðin eru: Orka, eldsneyti, vatnsnotkun, ofnæmi, hættuleg efni / tilbúin efni, þungmálmar, öryggisblað, umhverfismerkingar, sanngirnisvottun, vinnuumhverfi og endurvinnsla.
Eitt eða fleiri af þessum viðmiðum eiga að meira eða minna leiti við um hverja einustu vöru. Um leið og við gerum okkur grein fyrir því eftir hverju þarf að leita til að velja vistvænstu vöruna verða vistvæn innkaup leikur einn.
En eins og með allt annað þá skapar æfingin meistarann. Jörðin okkar þolir ekki lengur þá rányrkju og vanvirðingu sem henni er sýnd í dag.
Tökum höndum saman og stundum vistvæn innkaup!
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
10. janúar 2012 10:16
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
+ Fleiri ummæli















