Vottun: Umhverfisvottun
Loftslagsvænir ástarbolir Náttúrunnar

Náttúran.is kynnir nýja línu af dömu- og herra stuttermabolum framleiddum til að upphefja náttúruna og græn gildi. „Nature.is love“ bolirnir eru af gerðinni EarthPositive® sem er verðlaunuð lífræn og loftslagsvæn framleiðsla* með myndum af Náttúru-konu og Náttúru-karli í íslenskri náttúru.
Bolirnir eru framleiddir í þremur stærðum og tveimur litum, rauðum og grænum, bæði fyrir herra og dömur. Bolirnir fást hér á vefnum og í ITA versluninni í Geysishúsinu, Aðalstræti 2 í Reykjavík. Sjá grænan herrabol, rauðan herrabol, grænan dömubol og rauðan dömubol. Sjá aðrar stærðir í Gjafa og pakkadeildinni.
Hvað er EarthPositive?
EarthPositive®er byltingarkennd græn fatalína þar sem kolefnisfótspor framleiðslunnar er í algeru lágmarki.
Hvorki meira né minna en sjö vottanir staðfesta háleit markmið og vel heppnaða útfærslu „minna umhverfisskaðlegrar framleiðslu“ en þekkst hefur hingað til í vefnaðariðnaðinum. 100% lífræn- og siðgæðisvottuð framleiðsla, en ekki síst, framleitt eingöngu með sjálfbærri vind- og sólarorku. Framleiðslunni er dreift af kolefnisjöfnuðum vöruhúsum og skrifstofum í London sem nota eingöngu endurnýjanlega græna raforku. EarthPositive® flytur aðeins með skipum landa á milli og notar ekki flugfrakt því þó að skipaflutningar geti ekki talist umhvefisvænir verða mun neikvæðari umhverfisáhrif af völdum flugvéla. Allt er því gert til að framleiðsla, dreifing og öll viðskipti með vöruna valdi sem minnstum umhverfisskaða.
EarthPositive® fatalínan kynnir Carbon Trust vottun en hún staðfestir þá kolefnislosun sem framleiðslan veldur, í þessu tilviki á bómullarfatnaði. Carbon Trust loftslagsvottunin er ein sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Vottuð heildar kolefnislosun framleiðslu og dreifingu á einum EarthPositive® bol:
Dömubolur 576g, herrabolur 671g.
*Vinningshafi „Best Organic Textile Product“ The Soil Associations Natural and Organic Awards 2009.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
7. ágúst 2010 09:19
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Loftslagsvænir ástarpokar Náttúrunnar

Náttúran.is kynnir nýja taupoka sem framleiddir hafa verið til að minnka plastpokanotkun og upphefja náttúruna og græn gildi. „Nature.is love“ taupokarnir eru af gerðinni EarthPositive® sem er verðlaunuð lífræn og loftslagsvæn framleiðsla* með mynd af Náttúru-konu í íslenskri náttúru.
Pokarnir eru af tveimur gerðum og litum, annars vegar óbleiktur innkaupa- taupoki og hins vegar þykkari grænn taupoki, Taupokarnir fást hér á vefnum og í ITA versluninni í Geysishúsinu, Aðalstræti 2 í Reykjavík. Sjá óbleikta innkaupa taupokann og græna taupokann.
Hvað er EarthPositive?
EarthPositive®er byltingarkennd græn vefnaðarvörulína þar sem kolefnisfótspor framleiðslunnar er í algeru lágmarki.
Hvorki meira né minna en sjö vottanir staðfesta háleit markmið og vel heppnaða útfærslu „minna umhverfisskaðlegrar framleiðslu“ en þekkst hefur hingað til í vefnaðariðnaðinum. 100% lífræn- og siðgæðisvottuð framleiðsla, en ekki síst, framleitt eingöngu með sjálfbærri vind- og sólarorku. Framleiðslunni er dreift af kolefnisjöfnuðum vöruhúsum og skrifstofum í London sem nota eingöngu endurnýjanlega græna raforku. EarthPositive® flytur aðeins með skipum landa á milli og notar ekki flugfrakt því þó að skipaflutningar geti ekki talist umhvefisvænir verða mun neikvæðari umhverfisáhrif af völdum flugvéla. Allt er því gert til að framleiðsla, dreifing og öll viðskipti með vöruna valdi sem minnstum umhverfisskaða.
EarthPositive® vefnaðarvörulínan kynnir Carbon Trust vottun en hún staðfestir þá kolefnislosun sem framleiðslan veldur, í þessu tilviki á bómullarfatnaði. Carbon Trust loftslagsvottunin er ein sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Vottað er að kolefnislosun framleiðslu og dreifingu á einum EarthPositive® bol:
Dömubolur 576g, herrabolur 671g.
*Vinningshafi „Best Organic Textile Product“ The Soil Associations Natural and Organic Awards 2009.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. ágúst 2010 21:44
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Ræstingarþjónustan Hreint er komið með Svansvottun
Hreint ehf hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins fyrir ræstingarþjónustu. Strangar kröfur Svansins tryggja að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa starfseminnar.
Aðstoðarmaður umhverfisráðherra veitti leyfið föstudaginn 25. júní, klukkan 11:00 á aðalskrifstofu fyrirtækisins að Auðbrekku 8 í Kópavogi. „Það er okkur hjá Umhverfisráðuneytinu gleðiefni að sjá að stöðugt fleiri íslensk fyrirtæki bætast í fríðan flokk Svansvottaðra fyrirtækja. Með því að uppfylla kröfur Svansins tryggja fyrirtækin að vörur þeirra og þjónusta lágmarki neikvæð áhrif á umhverfið. Þetta er auðvitað sérstaklega mikilvægt í geira eins og ræstingum þar sem notkun sterkra og skaðlegra efna eru oft hluti starfseminnar. Það má því segja að Svansvottun Hreint færi okkur enn einu skrefinu nær hreinni og heilnæmari heimi og því ber sannarlega að fagna.“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Sjá fyrirtækin níu sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.
Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita. Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.
Um Hreint
Hreint ehf. er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað 12. desember 1983 og er eitt elsta og stærsta ræstingaþjónustufyrirtæki landsins. Fyrirtækið sérhæfir sig í að þjóna fyrirtækjum og stofnunum með reglulegri ræstingu og tengdri þjónustu. Starfssvæði þess er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Akranes, Hveragerði og Selfoss. Hreint er meðal 300 stærstu fyrirtækja landsins en á síðustu 8 árum hefur fyrirtækið vaxið 8 sinnum að veltu og er nú annað stærsta fyrirtækið á þessu sviði hérlendis. Starfsmenn eru um 130 en þar af starfa 115 við ræstingar. Framkvæmdastjóri Hreint Ari Þórðarson segir: „Í öllu okkar starfi leggjum við áherslu á gildin okkar sem eru; frumkvæði, samvinna, traust og fyrirmynd. Frá formlegri vottun Svansins hefst nýr kafli í sögu og þróun Hreint enda um tímamót að ræða. Sem fyrirtæki teljum við að Svanurinn er sé mjög mikilvægt skref til frekari gæðaaukningar á mörgu í starfseminni, aukinni umhverfisvernd, vexti og aukinni arðsemi rekstrarins.”
Kröfur Svansins fyrir ræstiþjónustur:
- Strangar kröfur um efnanotkun. Að minnsta kosti 50% hreinsiefna verða að vera umhverfismerkt, bann við notkun efna sem eru skaðleg umhverfinu og heilsu fólks. Heildarnotkun efna er lágmörkuð með réttri skömmtun.
· Mengun vegna flutninga fyrirtækisins er lágmörkuð með kröfu um nýlegan bílaflota sem uppfyllir kröfur um útblástur.
· Lögð er áhersla á að lágmarka notkun plastpoka, flokka úrgang og velja umhverfismerktar vörur í innkaupum.
· Gæði ræstingar eru tryggð með reglulegri þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að fylgjast með gæðum þjónustunnar.
nánar
Umhverfisstofnun
6. júlí 2010 18:22
Uppruni: Náttúran.is / Umhverfisstofnun
Einkunn
Ylströndin í Nauthólsvík flaggar Bláfánanum sjöunda árið í röð
Ylströndin í Nauthólsvík fékk í gær endurnýjað leyfi til að flagga Bláfánanum en Ylströndin fékk fánann fyrst árið 2003 en endurnýja þarf umsóknina árlega.
Bláfáninn (Blue flag) er umhverfismerki sem er virkt í 41 landi og er eitt af verkefnum FEE (The Foundation for Environmental Education). Sjá vef Blue Flag Programme. Yfir 3450 baðstrendur og smábátahafnir flagga Bláfánanum víða um heim. Hér á landi hafa sex staðir hlotið þessa viðurkenningu, þ.e. Arnarstapahöfn, Hafnarhólmi á Borgarfirði eystri, Stykkishólmshöfn, höfnin á Suðureyri og baðstrendurnar Bláa lónið og Ylströndin í Nauthólsvík.
Bláfánaverkefnið er helgað menntun til sjálfbærrar þróunar og hefur viðurkenningin mikið gildi fyrir svæði sem leggja áherslu á ferðaþjónustu. Á stöðum þar sem Bláfáninn blaktir við húni geta gestir gengið út frá því sem vísu að hreinlæti, öryggismál, gæði vatns og umhverfisfræðsla séu til fyrirmyndar.

Landvernd er umboðsaðili Bláfánans hér á landi. Sjá nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð um Bláfánann á vef Landverndar.
Sjá alla Bláfánaleyfishafa á Íslandi hér á Grænum síðum.
Efri mynd: Sigrún Pálsdóttir verkefnisstjóri Bláfánans og Björgólfur Thorsteinsson formaður Landverndar afthentu Árna Jónssyni starfsmanni ÍTR fánann í blíðviðrinu í gær. Neðri mynd: Nokkrar stelpur sem nutu góða veðursins í Nauthólsvík í gær hjálpuðu til við að draga fánann að húni. Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
27. maí 2010 17:19
Uppruni: Landvernd
Einkunn
Kaffitár fær Svansleyfi, fyrst íslenskra kaffihúsa
Kaffihús Kaffitárs hlutu vottun norræna umhverfismerkisins Svansins föstudaginn 14. maí til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að starfsemi Kaffitárs er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti leyfið.
„Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki hér á landi sjá hag sinn í því að geta boðið upp á vottaða vöru og þjónustu. Það er ljóst að vistvæn innkaupastefna ríkisins hefur tilætluð áhrif sem lýsir sér í auknum áhuga á Svansvottun. Kaffitár er fyrsta kaffihúsið hér á landi sem fær Svansvottun á þjónustu sína en fyrirtækið hefur lengi lagt áherslu á umhverfismál og sanngjörn viðskipti (fair trade)“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
„Í kaffiheiminum er sífelld meiri áhersla lögð á umhverfisstarf í allri virðiskeðjunni frá baun í bolla. Okkar reynsla af umhverfisstarfi síðustu tvö ár er að það er fjárhagslegur ávinningur í að vinna samkvæmt virkri umhverfisstefnu. Það var því eðlilegt framhald fyrir okkur að vinna í að fá umhverfisstarfið vottað og skemmtilegt að það gat orðið með innleiðingu Svansins í kaffihúsum okkar. Gildi þjálfunar og símenntunar fyrir starfsfólki er einnig verðmætur þáttur í umhverfisstarfinu og hefur tekist einstaklega vel að virkja samstarfsmenn í nýju verklagi vegna Svansins. Allir hafa verið mjög jákvæðir og virkir, sem er lykilatriði í að innleiðingin gangi upp. Segja má að það sé samfélagsleg ábyrgð okkar að sýna vistvernd í verki og fá gesti kaffihúsa okkar virka með í það samstarf“ segir Stella Marta Jónsdóttir framkvæmdastjóri Kaffitárs.
Um Kaffitár
Kaffitár tók til starfa sem kaffibrennsla árið 1990 og fyrsta kaffihúsið var opnað árið 1995. Í dag eru kaffihúsin orðin átta talsins en Kaffitár hefur sinnt frumkvöðlastarfi við að kynna kaffimenningu fyrir Íslendingum. Svansvottun Kaffitárs tekur til starfssemi kaffihúsanna.
Kaffitár hefur unnið markvisst að því að fá viðskiptavini í lið með sér og lögð er mikil áhersla á að útskýra fyrir viðskiptavinum hvernig unnið er að umhverfismálum. Kaffihúsin hafa í sumum tilvikum gengið skrefinu lengra og bryddað upp á nýjungum sem stuðla að lágmörkun umhverfisáhrifa. Má þar nefna að veittur er afsláttur fyrir þá viðskiptavini sem koma með ferðabolla með sér þegar þeir kaupa sér kaffi sem ekki skal neyta á staðnum en það dregur stórlega úr notkun einnota mála.
Kröfur Svansins fyrir kaffihús og veitingastaði eru mjög strangar og þarf kaffihúsið að vera með gott heildaryfirlit yfir umhverfisáhrif starfseminnar:
- Strangar kröfur eru gerðar til hráefna og matvæla en ákveðinn hluti hráefna þarf að vera lífrænt ræktaður og upplýsa verður neytendur um uppruna matvæla.
- Einnota pappamál og borðbúnað má einungis nota við afgreiðslu á kaffidrykkjum og meðlæti sem ekki er neytt á kaffihúsunum.
- Lögð er áhersla á að velja sem mest af umhverfismerktar vörum og þjónustu í innkaupum.
- Flokkun úrgangs skal að vera góð og tryggja ber að allur hættulegur úrgangur fái rétta meðhöndlun.
- Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að stýra umhverfisstarfinu.
Sjá þau fyrirtæki sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.
Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita. Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.
nánar
Umhverfisstofnun
18. maí 2010 23:40
Uppruni: Náttúran.is / Umhverfisstofnun
Einkunn
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















