Náttúran: Líffræði

Hvað er á ferðinni? - Ný óværa í garðinum

Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur og rannsóknastjóri hjá Landgræðslu ríkisins verður með fyrirlestur á Garðyrkjufélags Íslands, fimmtudaginn 24. nóvember  í fundarsal Arionbanka, Borgartúni 19 og hefst fyrirlesturinn kl. 20:00.

Meindýrum á trjágróðri hefur fjölgað verulega hér á landi að undanförnu og eins hefur tjón af tegundum sem fyrir voru í landinu aukist.

Margt bendir til þess að hlýnandi loftslagi fylgi fjölgun skordýra, en svipaða sögu eru að segja frá öðrum löndum.  Í fyrirlestrinum verður fjallað um  hvers sé að vænta í framtíðinni og til hvaða aðgerða sé unnt að grípa til að sporna við þessari þróun.

Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir félaga í Garðyrkjufélagi Íslands og maka þeirra, en kr. 1,000,- fyrir utanfélagsmenn. 
Allir velkomnir!


nánar

Valborg Einarsdóttir
17. nóvember 2011 19:57
Uppruni: Garðyrkjufélag Íslands

Einkunn

Ný sýning opnuð í Mývatnsstofu og verndaráætlun undirrituð

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði formlega nýja sýningu í Mývatnsstofu, gestastofu verndarsvæðis Mývatns og Laxár, í húsnæði Umhverfisstofnunar í Reykjahlíð á laugardag. Þar gefst gestum tækifæri til að kynna sér hið sérstaka náttúrufar svæðisins þar sem jarðeldar og vatn hafa skapað umhverfi einstakra og fagurra hraunmyndana ásamt auðugu og fjölbreyttu lífríki.

Um 120 manns komu í gestastofuna á opnunardaginn en sýningin byggir á eldri sýningu frá 1993 sem var fyrst sett upp í núverandi húsnæði árið 2006. Með nýju sýningunni er fræðsluefninu og upplýsingunum í fyrsta sinn búin umgjörð sem hentar því húsnæði sem gert er ráð fyrir að sýningin muni verða í hér eftir.

Kúluskítur og landrek

Auk fjölda fuglategunda felst sérstaða Mývatns ekki síst í kúluskítnum í vatninu en þetta vaxtarform grænþörungsins vatnaskúfs var friðlýst árið 2006. Sérstaða svæðisins á sviði jarðvísinda er engu minni en í Kröflueldum fékkst ómetanleg þekking á eðli eldgosa á Íslandi og urðu menn þar vitni að landreki. Fá svæði í heiminum geta stært sig af sambærilegum hlutum.

Árni Einarsson, líffræðingur og forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn sá um gerð fræðsluefnisins og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, hönnuður sá um framsetningu sýningarinnar.

Verndaráætlun undirrituð

Við sama tækifæri undirritaði Svandís Svavarsdóttir verndaráætlun fyrir verndarsvæði Mývatns og Laxár. Meginmarkmið hennar er að draga fram verndargildi svæðisins og marka stefnu um verndun þess með tilliti til þeirra markmiða sem sett hafa verið í lögum um verndarsvæðið.

Verndaráætlunin verður aðgengileg á heimasíðu Umhverfisstofnunar.


nánar

Umhverfisráðuneytið
20. maí 2011 10:07
Uppruni: Umhverfisráðuneytið

Einkunn

Heimasíða um alaskalúpínu og skógarkerfil opnuð

Ung lúpína

Ný heimasíða, agengar.land.is var opnuð í dag þar sem dregnar eru saman upplýsingar er varða eiginleika og útbreiðslu ágengu plöntutegundanna skógarkerfils og lúpínu með leiðbeiningum um mögulegar aðgerðir til upprætingar þeirra.

Á undanförnum árum hefur verið nokkur umræða um áhrif ágengra framandi tegunda á lífríki Íslands. Alaskalúpína og skógarkerfill eru framandi plöntutegundir sem voru fluttar til landsins, m.a. til að græða land upp og sem garðaprýði, en teljast nú vera ágengar.

Aðgerðir samræmdar

Haustið 2009 fól umhverfisráðherra Landgræðslustjóra og forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands að gera áætlun um aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu alaskalúpínu og skógarkerfils. Sett var á stofn nefnd skipuð starfsmönnum beggja stofnana. Nefndin skilaði af sér skýrslu í apríl 2010: Alaskalúpína og skógarkerfill á Íslandi - Útbreiðsla, varnir og nýting. Þar eru settar fram upplýsingar um útbreiðslu og einkenni tegundanna og tillögur um hvernig draga mætti úr frekari dreifingu þeirra. Nefndin lagði meðal annars til að sett yrði á laggirnar aðgerðastjórn sem tæki að sér að samræma aðgerðir við kortlagningu á útbreiðslu og  varnir og upprætingu á alaskalúpínu og skógarkerfli.

Að fengnum þessum tillögum skipaði umhverfisráðherra stýrihóp sumarið 2010. Meginhlutverk hópsins er að móta og samræma aðgerðir við kortlagningu á útbreiðslu alaskalúpínu og skógarkerfils, að taka saman upplýsingar um tegundirnar sem nýtast almenningi og öðrum vörslumönnum lands og að setja fram með tillögur um varnir og upprætingu. Ákveðið var að áhersla yrði fyrst um sinn á friðlýst svæði og miðhálendið.
Leitað til almennings

Á heimasíðunni agengar.land.is má finna frekari upplýsingar um starf hópsins, áhrif ágengra tegunda á náttúru landsins og um mögulegar aðgerðir til að upprætingar. Eins er þar að finna frásagnir af aðgerðum á svæðum þar sem hafin er vinna við að uppræta plönturnar. Það er ljóst að til þess að stemma stigu við útbreiðslu framangreindra tegunda, þar sem þær teljast vera vágestur, þarf átak margra aðila. Því er leitað til almennings og vörslumanna lands um samvinnu við að hefta frekari dreifingu. Á heimasíðunni eru gefnar leiðbeiningar um aðgerðir en einnig er kallað eftir upplýsingum, um þær aðgerðir sem beitt er, frá aðilum sem vinna að því að hefta dreifingu eða útrýma tegundunum. Ennfremur gefst almenningi tækifæri á að senda inn upplýsingar um vaxtarstaði alaskalúpínu og skógarkerfils. Með upplýsingum sem þessum má á markvissari hátt fá yfirlit yfir útbreiðslu tegundanna en einnig marka stefnu um mögulegar aðgerðir.

Alaskalúpína og skógarkerfill á Íslandi. Útbreiðsla, varnir og nýting.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Umhverfisráðuneytið
16. maí 2011 11:27
Uppruni: Umhverfisráðuneytið

Einkunn

Fráleitt að björgunaráætlun vanti

Ísbjörn á ísjaka

Það er fráleitt að ekki skuli vera til björgunaráætlun fyrir hvítabirni hér á landi og endurspeglar ekkert annað en viljaleysi stjórnvalda, segir Húni Heiðar Hallsson, heimskautalögfræðingur. Hann segir stjórnvöld hafa fengið þrjár viðvaranir með komum hvítabjarna á síðustu tveimur árum þegar fjórða dýrið kom í gær og ekkert hafi verið gert. Dráp birnunnar í gær hafi verið bæði ólöglegt og óþarft.

Húni Heiðar skrifaði meistararitgerð um lagalega stöðu ísbjarna á Íslandi. Hann segir hvítabirni vera friðaða á Íslandi. Eina ástæðan sem réttlæti það í lögum að hvítabjörn sé felldur sé að yfirvofandi hætta sé á að hann kunni að valda skaða á búfé eða mönnum. „Það er eina ástæðan sem gefin er í lögum til þess að það megi fella þá. Ef það er ekki gert þá þurfi ráðherra tímabundið að fella niður friðun á hvítabjörnum, sem ég veit ekki hvort hafi verið gert í þessu tilfelli.“

Húni segir það einnig hafa verið ólöglegt að fella birnina á Skaga um árið en dráp þess sem kom í Þistilfjörðinn hafi verið réttlætanlegt. „Verkið í Þistilfirði var algjörlega bráðnauðsynlegt til að koma í veg fyrir að menn eða búfé bæru tjón af.“

Hann segir skammarlegt að björgunaráætlun sé ekki til. Það endurspegli fátt annað en viljaleysi stjórnvalda sem hafi haft nægan tíma frá því að síðasta atvik kom upp. „Ef hægt er að skjóta ísbjörn á 30-50 metra færi þá er hægt að deyfa hann á sama færi.“.


nánar

Ríkisútvarpið
3. maí 2011 09:44
Uppruni: Ríkisútvarpið ohf

Einkunn

Dynamics of the Ocean Environment

A conference on simulations and measurements of the ocean environment, sponsored by the University of Iceland and the Icelandic Marine Research Institute, will by held Sunday April 17 from 9:30 to 17:45 at the University of Iceland, in hringsalur HT-101 in Háskólatorg. Hringsalur HT-101 is below the restaurant Háma, in Háskólatorg (University Plaza) at the University of Iceland.

Program

8:00 Coffee
9:30 The opening of the conference, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Dean of Science and Engineering, University of Iceland, Reykjavík
9:45 Introduction, Björn Birnir, University of California Santa Barara, Center for Complex and Nonlinear Science and University of Iceland, Reykjavík

The following researchers will present talks:

10:15 Geir Huse, the Norwegian Marine Science Institute, Bergen, Interactions between planktivorous fish in the Norwegian Sea
11:00 Héðinn Valdimarsson, the Icelandic Marine Research Institute, Reykjavík, The hydrographic conditions in the Iceland Sea (with Steingrímur Jónsson)
12:00 Lunch in Háma
13:00 Guðrún Marteinsdóttir, the University of Iceland, Reykjavík, Cod research at the University of Iceland, an overview
14:00 José A. Carrillo, University of Barcelona, To be announced.
15:00 Coffee Break
15:15 Ólafur K. Pálsson, the Icelandic Marine Research Institute, Reykjavík, The Ecosystem of the Iceland Sea. Main patterns in structure and function (with Ástþór Gíslason1, Björn Gunnarsson1, Hafsteinn Guðfinnsson1, Héðinn Valdimarsson1, Hildur Pétursdóttir1, Ingibjörg Jónsdóttir2, Konráð Þórisson1, Sólveig Ólafsdóttir1, Sveinn Sveinbjörnsson1, Þorsteinn Sigurðsson1,1Marine Research Institute,2University of Iceland)
16:15 Baldvin Einarsson, the University of Iceland, Reykjavík, Models of Migrations of Prey Fish (capelin, herring, blue whiting, makrel, etc.)
17:15 Discussion
Everyone interested in the application of mathematics in the sciences and engineering, the simulations of the ocean environment and fishery science are invited to attend the conference. The conference is free.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Háskóli Íslands
16. apríl 2011 22:44
Uppruni: Háskóli Íslands

Einkunn

12345

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl   ágú   sep   okt   nóv   des  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: