Náttúrumarkaður: Íslenskar vörur
Náttúrumarkaðurinn
Vefverslun með hugsjón
Eitt af meginmarkmiðum Náttúrunnar er að veita neytendum samræmdar upplýsingar um umhverfisvænar og heilbrigðar vörur á óháðu markaðstorgi, þannig að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun byggða á samanburði óvéfengjanlegra upplýsinga um vottanir, uppruna og tilurð vörunnar, hreinleika, samsetningu og förgun innihalds og umbúða.
Náttúran starfrækir netverslun sem býður söluaðilum tvo möguleika til að tengja vörur viðmiðum og innihaldslýsingum:
Annars vegar með því að skrá vörur (sjá verð hér að neðan) til kynningar eingöngu og hins vegar með því að skrá og selja vörurnar. Vörurnar tengjast þannig ítarefni um efni og innihald, umhverfisviðmiðum og förgunarleiðbeiningar svo fátt eitt sé nefnt.
Náttúrumarkaðurinn veitir fulla þjónustu, bæði litlum og stórum söluaðilum. Þannig sitja stærri og minni aðilar við sama borð, líkt og á stórum „náttúrumarkaði“. Neytendur geta rölt um og borið saman vörur úr öllum áttum og verið þess fullvissir að einn aðili sé ekki tekinn fram yfir annan á neinn hátt.
F - kubbur fyrir vörur á Náttúrumarkaði - vöruskráningu fylgir auglýsingabirting í slembivali
Verð á 12 mánaða skráningu vöru á Náttúrumarkað:
1 - 3 vörur - skráning á vöru (til sölu) 4.900*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 9.800*
4 - 10 vörur - skráning á vöru (til sölu) 3.920*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.840*
11 vörur eða fl. - skráning á vöru (til sölu) 3.330*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.600*
*Öll verð í íslenskum krónum, án vsk. 50% afsláttur er af framlengingu skráningar eftir fyrsta árið.
Hvað er svona umhverfisvænt við að versla á Náttúrumarkaði?
Sjá hvernig verslað er á Náttúrumarkaðinum.
Sendu fyrirspurn eða óskir um skráningu á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
8. janúar 2012 12:57
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Hvað er svona umhverfisvænt við að versla á Náttúrumarkaði?

Hér á Náttúrumarkaði, vefverslun Náttúran.is, er úrval af lífrænum, náttúrulegum og umhverfisvottuðum vörum á boðstólum. Til þess að geta veitt neytendum upplýsingar um umhverfisvænar og heilbrigðar vörur tengist hver vara ítarlegum upplýsingum um innihald, vottanir og endurvinnslumöguleika. Hugmyndin er að þegar að vafrað er um verslunina læri maður hvað merkin þýða með því að renna yfir þau. Þetta á við um umhverfismerkin, lífrænu vottunarmerkin og siðgæðis- og endurvinnslumerkin. Í dag eru yfir þrjúhundruð vörur í tuttuguogníu deildum á markaðinum og úrvalið eykst stöðugt. Stefnt er að því að geta boðið upp á vörur úr öllum vöruflokkum.
Annað sem að Náttúrumarkaðurinn á netinu getur haft fram yfir venjulegar verslanir er að í bögglinum koma margar vörutegundir heim að dyrum, í safnsendingu. Kolefnislosun og önnur umhverfisáhrif af flutningum eru því í algeru lágmarki þar sem Íslandspóstur á hvort eð er flesta daga leið heim til þín með annan póst. Að keyra á heimilisbílnum frá einni búð til annarar mengar meira og kostar þig bæði tíma og peninga.
Að versla á Náttúrumarkaðinum getur því bæði verið mun ódýrara og umhverfisvænna þegar allt kemur til alls. Veldu deild hér til hægri á síðunni. Ef þú ert að leita að ákveðinni vöru eða vilt þrengja leitina og finna ákveðið vörumerki eða vottun opnar þú Vöruleit flipann á Náttúrumarkaði.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
8. janúar 2012 11:14
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Vöruleit Náttúrunnar
Vörurleitin á Náttúrumarkaði gefur þér kost á að þrengja leitina til að finna vörur sem uppfylla þær kröfur sem þú gerir til framleiðanda, merkingar eða viðurkenndrar vottunar. Sjá hér til hægri undir Vöruleit á Náttúrumarkaði. Vöruleitin nýtist vel til vistvænna innkaupa opinberra aðila jafnt sem fjölskyldunnar.
Allar vörur sem skráðar eru á Náttúrumarkað koma upp í Vöruleit, hvort sem þær eru til sölu eða einungis skráðar til kynningar. Hver sem er getur óskað eftir skráningu á vöruframboði sínu á Náttúrumarkað og þannig tekið þátt í því að bjóða kaupendum upp á að bera saman breitt úrval af vörum út frá vistvænum sjónarmiðum. Sjá nánar um verð á skráningum hér að neðan.

Auk þess tengjast vörurnar ítarefni um innihaldsefni, umhverfisviðmið, endurvinnsluleiðir auk þess að tengjast fréttum um viðkomandi vöru, framleiðanda og aðra tengda aðila.
F - kubbur fyrir vörur á Náttúrumarkaði - vöruskráningu fylgir auglýsingabirting í slembivali
Verð á 12 mánaða skráningu vöru á Náttúrumarkað:
1 - 3 vörur - skráning á vöru (til sölu) 4.900*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 9.800*
4 - 10 vörur - skráning á vöru (til sölu) 3.920*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.840*
11 vörur eða fl. - skráning á vöru (til sölu) 3.330*. Á vöru til kynningar (ekki til sölu) 6.600*
*Öll verð í íslenskum krónum, án vsk. 50% afsláttur er af framlengingu skráningar eftir fyrsta árið.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
7. janúar 2012 18:39
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Íslenska búðin á Náttúrumarkaði
Að koma á framfæri íslenskum vörum úr hreinum náttúruafurðum er eitt mikilvægasta hlutverk Náttúrunnar. Að velja íslenska list og hönnun, hugvit og þjónustu eða framleiðslu úr íslensku hráefni styrkir ekki aðeins stoðir íslensks atvinnulífs heldur getur það verið mun umhverfisvænna en að velja erlenda framleiðslu. Ástæðan er sú að mikil kolefnislosun á sér stað við alla flutninga, þá ekki síst ef varan þarf að ferðast heimshorna á milli til að rata til neytenda. Hér í íslensku búðinni eru á boðstólum vörur sem á einhvern hátt eru unnar með tilliti til umhverfis og heilsu, eru umhverfisvottaðar, lífrænt vottaðar eða eru íslensk hönnun og eða framleiðsla.
Öllum er velkomið að selja vörur sínar í gegnum Náttúrumarkaðinn. Hafið samband á nature@nature.is. Skoðið íslensku búðina á Náttúrumarkaðinum.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
26. ágúst 2011 19:58
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Litlu álfaspáspilin
Litlu álfaspáspilin komu út um Jónsmessuna árið 2009. Þessi einstöku spil eru gerð af Ragnhildi Jónsdóttur myndlistarmanni og spámiðli en Raghnhildur byggir spilin á sambandi sínu við álfheima og íslenska náttúru en Ragnhildur er í þann mund að opna LItla álfahúsið, nýtt álfasetur í Hellisgerði í Hafnarfirði.
Í inngangi í litla bæklingnum sem fylgir stokknum með Litlu álfaspáspilunum segir:
„Á Íslandi hefur trú á álfa og hulduverur fylgt okkur frá upphafi landnáms. Landnámsmenn hafa tekið þessa trú með sér frá Írlandi og Noregi eða skulum við segja höfðu næmnina og viljann sem þarf til að upplifa þetta líf í Náttúrunni. Margir eru tengdir þessum verum enn í dag en þora varla að tjá sig um það eða taka því sem léttri ímyndun.
Það er frjálst val þitt hvort þú lítur á þessar sögur sem ævintýri eða hvort þú tekur þeim sem sannleika. En hugsaðu um það næst þegar þú horfir á hraunklett eða holtagrjót, ...býr kannski heil fjölskylda þarna?
Ég ólst upp í nágrenni Hellisgerðis í Hafnarfirði. Sá garður er þéttbyggður hinum ýmsu hulduverum. Þessar verur voru hluti af æsku minni, hluti af leikfélögunum.“
Í bæklingnum eru leiðbeiningar um hvernig spilin eru notuð og útskýringatexti fyrir hvert spil, bæði á íslensku og ensku. Hægt er að spyrja spilin spurninga eins og; Hvaðan kem ég? Hvað tek ég með mér áfram? Hver er staða mín? Hvað gerist næst? O.s.fr. en litlu álfaspáspilin eiga að hjálpa okkur að finna svörin við þessum spurningum innra með okkur.
Spilin fjalla um táknmyndir eins og:
Trjáveru, Dverg í hól, Álft, Vatnadís, Stein í veginum, Hreiðurgerð, Hellisgerði, Huldukonuna Púldu, Blómagarð, Hulduverur, Kríu, Vind, Landslag, Fjársjóðskistu, Fræðarann í Hvalfirði, Kisur, Íslenskan fjárhund, Fugl í sjálfsköpuðum vanda, Svartálfa, Dverginn og blómið, Fjallatívi, Krumma, Þingvelli, Uglu, Hvönn, Verndarengil o.fl.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
12. júní 2011 13:39
Uppruni: Ragnhildur Jónsdóttir
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
+ Fleiri ummæli















