Fréttir

Náttúruspil - 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið

nokkur náttúruspilNáttúran.is hefur gefið út 52 náttúruspil með góðum ráðum sem tengjast árstíðunum. Efnið kemur úr ýmsum ábyggilegum áttum. Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir hönnuðu spilin, eins og reyndar alla grafíska umgjörð vefsins. Að textum vann einnig valinkunnur hópur starfsmanna auk áhugamanna og sérfræðinga á sviði náttúru, lista og umhverfisfræða. Spilin samanstanda af vistænum húsráðum, uppskriftum, fornri visku og ýmiskonar góðum ráðum.

Náttúruspilin 52 eru hugsuð sem einskonar „húsráð í handraðanum“. Þau eiga að minna okkur á hvernig hægt er að bæta umgengni okkar við náttúruna og hvernig náttúran getur hjálpað okkur að lifa betra lífi. Hægt er að leggja stokkinn opinn, láta spiliin snúa upp og skipta um spil á viku fresti, njóta myndanna og leyfa þeim að gefa okkur hugmyndir af því hvernig við lifum í sátt við umhverfið.

Hægt er að kaupa ráðin góðu hér á Náttúrumarkaði og fá send beint heim. Ef  þú ert á póstlista Náttúrunnar (skráning hér á flipanum fyrir RSS, Faceobook, Twitter og Póstlista hér lengst til vinstri á vafranum) getur þú beðið um að fá stokk sendan ókeypis gegn því að borga 70 kr. fyrir umbúðir og 120 kr. sendingarkostnað eða samtala 190 kr. Náttúruspilin er einnig hægt að fá í stærra upplagi fyrir vinnustaði og skóla. Hafið samband við nature@nature.is eða í síma 483 1500.

Náttúruspilin eru einnig til í netútgáfu. Öllum er frjálst að virkja netúgáfuna á heimasíðu sinni endurgjaldslaust. Sjá nánar um Náttúruspilin í netútgáfu. Panta stokk hér.

Náttúruspilin eru Svansmerktur prentgripur, prentuð á umhverfisvænan pappír með umhverfisvænu prentbleki í prentsmiðju GuðjónsÓ. Hjá GuðjónÓ var fyrsta umhverfisvæna prentsmiðjan á Íslandi og hefur Norræna umhverfismerkið Svaninn því til staðfestingar. Sjá vef prentsmiðjunnar.





Einkunn

Flokkar:

Orð í belg

Anna - fimmtudagur 7. apríl, 2011 klukkan 15:57:00

Hvar get ég nálgast þessi skemmtilegu náttúrukort?

Guðrún Tryggvadóttir - fimmtudagur 7. apríl, 2011 klukkan 16:19:53

Sæl.
Nú í „grænum apríl“ munum við dreifa miklu magni af lausum kortum um allan bæ og allt land en ef þú vilt heilan stokk þá getur þú farið inn á Náttúrumarkaðinn og pantað beint þaðan http://www.natturan.is/verslun/208/. Ef þú þarft marga stokka þá skrifaðu okkur línu enda færðu þá magnafslátt.
Með bestu kveðjum, Guðrún Tryggvadóttir

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Fræðsla: Umhverfisfræðsla [171]

Umhverfið: Vistvæn húsráð [119]

Grænar síður:

Umhverfisfræðsla [203]

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

Fréttir frá: