Fréttir

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Umhverfisvæn ferðamennska
Best er að reyna að takmarka hluti sem þið takið með. Ráðlegt er að notast aðeins við fjölnota umbúðir fyrir matvæli og hluti. Ef að vaska þarf upp eða þvo föt úti í náttúrunni er best að notast við umhverfismerkt þvottaefni og uppþvottalög. Reynið að þvo ekki mikið upp úr ám eða lækjum, oft er hægt er að notast við vaska á tjaldstæðum.
Mikilvægt er að sýna náttúrunni virðingu, í því felst að skilja ekki eftir rusl og drasl á jörðinni, best er að taka það heldur með ykkur í bílinn og henda því svo í næsta ruslagám. Einnig er mikilvæg að skilja náttúruna við sig eins og maður kom að henni. Í ferðalaginu er mikilvægt að reyna að nota bílinn sem minnst, hægt er að fara í gönguferðir eða jafnvel taka reiðhjól með í ferðalagið.
Ef að fara á í gönguferðir er best að hafa í huga að ganga eftir merktum gönguleiðum, annað getur verið slæmt fyrir jarðveginn, þú gætir lent inná einkalóð eða lent í ógöngum eða hættu. Sama á við um bíla. Mikilvægt er að keyra aldrei utanvega, það er vanvirðing við náttúruna, hjólför geta rist jarðveginn djúpt og eyðilagt gróður.
Ef þú ferðast á suðlægar slóðir hafðu eftirfarandi í huga þegar þú kemur á áfangastað:
- Slökkva skal á ljósi og loftkælingu þegar þú ferð út úr hótelherberginu.
- Sparaðu vatnið.
- Þú þarft ekki að láta skipta um rúmföt á hverjum degi. Láttu hótelið vita af óskum þínum í því efni.
- Ef þú ferðast innan landsins, reyndu að ganga og hjóla sem mest. Víðast hvar er hægt að fá reiðhjól leigð. Einnig getur þú tekið strætó og lestir eru almennt umhverfisvænni en bílar.
- Nýttu þér hópferðir sem að ferðaskrifstofur bjóða upp á.
- Flokkaðu úrgang á hótelinu að svo miklu leyti sem það er hægt.
- Keyptu minjagripi sem eru keyptir á staðnum en ekki kaupa vörur sem er bannað að flytja úr landi eða vörur sem búnar eru til úr dýrum eða jurtum í útrýmingarhættu.
- Ekki kaupa fílabein, mahoný eða nashyrningahorn.
- Gistu á litlum gistiheimilum en ekki á stórum alþjóðlegum hótelum. Þannig styður þú við bakið á íbúunum sjálfum.
- Slepptu því að gista á hóteli með sundlaug, þú getur alltaf farið á ströndina eða í almenningssundlaug.
- Farðu eftir þeim umgengnisreglum sem gilda á ströndinni. Um Bláfánaströnd getur verið að ræða.
- Farðu eftir þeim umgengnisreglum sem gilda á hótelinu. Veldu umhverfismerkt hótel ef hægt er.
Einkunn
- Bílskúrinn
- Landið
- Umhverfið
Tengt lesefni:
Bílskúrinn: Ferðalög [22]
Landið: Ferðalög [22]
Umhverfið: Vistvæn húsráð [85]
Grænar síður:
Húsið: Bílskúrinn: Ferðalög [1]
Landið: Ferðalög [8]
Nýleg orð í belg
Sömu gömlu aðferðirnar. Fjárfesta áður en leyfi er fengið. Leyfi sem mun ekki fást þar ...
Gunna Tryggva 29. 07. 2010 08:22:
Skoðanakönnun Capacent/Gallup leiðir í ljós að 85% eru á móti því og 60% mjög mikið ...
Guðrún Tryggvadóttir 28. 07. 2010 23:49:
„Lausn komin á Magma-málið segir á visir.is“ reyndar bara tilkynning um að tilkynna eigi um ...
Guðrún Tryggvadóttir 27. 07. 2010 15:08:
Þetta eru alveg ótrúlega skemmtileg spil. Ég á stokk sjálf og finnst gott að grípa ...
Guðrún 26. 07. 2010 22:54:
Magma's Corporate Profile: „Since inception in early 2008 we have acquired one operating power plant ...
Guðrún Tryggvadóttir 24. 07. 2010 13:16:
VG með kröfu um riftun Magma-samningsins – Samfylkingin áminnt: http://eyjan.is/2010/07/24/vg-med-krofu-um-riftun-magma-samningsins-samfylkingin-ihugi-sina-stodu/
Guðrún Tryggvadóttir 24. 07. 2010 11:24:
Það stóð aldrei til að samsteypustjórn Vinstri Grænna og Samfylkingarinnar gerði eitthvað gagnlegt í orkumálum ...
Ásgeir Valur Sigurðsson 23. 07. 2010 17:24:
Orkuaudlindir.is er aftur kominn í loftið!
Guðrún Tryggvadóttir 23. 07. 2010 16:02:
















