Fréttir
Grænu síðurnar

Náttúran.is lítur á það sem samfélagslega skyldu sína að þróa eins fullkomnar „grænar síður“ fyrir Ísland og mögulegt er. Grænu síðurnar gefi þannig yfirsýn yfir hin fjölmörgu fyrirtæki og stofnanir sem tengjast náttúru og umhverfi á einn eða annan hátt. Grænu síðurnar tengja viðmið og vottanir við fyrirtæki og vörur og gefa hinum almenna neytanda möguleika á að beina viðskiptum sínum þangað sem honum finnst vera stunduð fyrirmyndar starfsemi. Grænar síður eru liður í að gera eftirfarandi markmið Náttúrunnar er ehf. að veruleika:
- Að þróa tæknilegar lausnir að samskiptaveröld sem getur tengt á milli þátta sem annars hafa aðeins huglæga eða óbeina tengingu
- Að auka veg íslenskrar náttúru og náttúruafurða í landkynningarlegu tilliti
- Að efla atvinnutækifæri henni tengdri um allt land og á öllum sviðum
- Að efla þátttöku sem flestra í umhverfimeðvituðum lifnaðarháttum og neyslu sem er síður mengandi eða skaðleg en önnur
Á grænum síðum eru upplýsingar um fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eða stunda eftirtalda starfsemi:
- Hafa umhverfisvottun (vottun þriðja aðila) fyrir framleiðslu sína eða starfsemi
- Eru seljendur umhverfis- og/eða sanngirnisvottaðrar vöru
- Hafa opinbera umhverfisstefnu
- Hafa fengið umhverfisviðurkenningu
- Halda grænt bókhald
- Eru eftirlitsaðilar, matsaðilar eða stofnanir
- Eru í ferli til að fá vottun
- Selja umhverfisvottaðar vörur
- Bjóða þjónustu tengda náttúru og/eða umhverfi
- Stunda sjálfbæra starfsemi
- Eru framleiðendur/innflytjendur náttúrulegrar framleiðslu og/eða heilsuvöru
Ekkert gjald er tekið fyrir grunnskráningu á grænar síður en hægt er að bæta ítarupplýsingum við skráninguna gegn hóflegu skráningargjaldi til eins árs í senn. Vottanir og aðrar ítarupplýsingar þurfa að vera byggðar á kröfum og skilyrðum tiltekinna vottunaraðila og vera óvéfengjanlegar. Náttúran áskilur sér rétt til að kynna sér réttmæti innsendra upplýsinga og vinnur í þeim tilfellum með viðkomandi vottunar- og eftirlitsaðilum.
Rúmlega tvöþúsund fyrirtæki og aðilar eru nú þegar skráð á Grænar síður en þ. 1. júní 2010 var sendur út netpóstur til allra skráðra aðila með lykilorði og leiðbeiningum um hvernig hægt er að fara yfir skráninguna og bæta við ítarskráningum gegn vægu gjaldi. Ef þú ert í forsvari fyrir fyrirtæki og hefur áhuga á að fá skráningu á síðurnar á þeim forsendum sem settar eru um skráningar* þá hafði samband í síma 483 1500 eða skrifaðu okkur á nature@nature.is.
Grænar síður eru grunnurinn fyrir Græna Íslandskortið en það er ókeypis samfélagsleg þjónusta, Green Map flokkunarkerfisins, alþjóðlegs flokkunarkerfis Green Map® System til að skilgreina aðila/fyrirbæri í flokka sem talist geta hluti af grænum viðskiptum, menningu, náttúrunni og umhverfinu.
*Sjá nánar um Grænar síður Náttúrunnar.
Grænar síður™ er skrásett vörumerki í eigu Náttúran er ehf.
Einkunn
Tengt lesefni:
Grænar síður:

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:















