Fréttir
Grænt Íslandskort - grænu lausnirnar á öllu landinu

Grænt Íslandskort en samvinnuverkefni Náttúran.is og alþjóðlega verkefnisins Green Map® System og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands en kortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli leit Náttúran.is að viðskiptatækifærum, fyrirtækjum, vörum og þjónustu sem talist geta sjálfbær, umhverfisvæn eða á einhvern hátt hlekkur í grænni vitundarvakningu hér á landi. Þessir aðilar hafa verið flokkaðir í 100 flokka á Græna kortinu, auk þess sem þeir eru skilgreindir og skráðir á Grænar síður sem er grunnurinn fyrir Græna Íslandskortið. Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is, á ensku á Nature.is og á þýsku á Natur.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum, vottunartengingum og efnisgreinum sem tengjast viðkomandi á einn eða annan hátt.
Náttúran.is starfar eftir þeirri sannfæringu að með vitundarvakningu og þátttöku almennra neytenda sé hægt að nota markaðsöflin til þess að leysa mörg af þeim umhverfisverkefnum sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag, hvort sem þau eru staðbundin eða hnattræn. Ef allir velja frekar umhverfisvænar lausnir næst árangur, annars ekki.
Einkunn
Tengt lesefni:
Grænar síður:

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:















