Fréttir

Nýja Ísland - Ný sýn á jarðfræði Íslands

Haukur Jóhannesson jarðfræðingur hjá ÍSOR heldur fræðsluerindi í Víðgelmi, Grensásvegi 9, þ. 17. desember kl. 13:00.

Fyrirlesturinn fjallar um sögu gosbeltaflutninga á Íslandi og þar eru settar fram hugmyndir um að gosbeltaflutningar hafi verið fimm eða sex á síðustu 16 milljónum ára en ekki tveir eins og talið hefur verið. Hvert gosbelti er virkt í tiltölulega skamman tíma, 2–4 milljónir ára, en færir sig svo um set. Samhverfur sem fylgja slíkum gosbeltum eru flestar grafnar undir yngri jarðmyndunum frá yngri gosbeltum og á því er aðeins ein undantekning en það er hið forna Snæfellsnesgosbelti.

Farið er yfir jarðsögu Ísland í nýju ljósi og uppbyggingu landsins. Sprungukerfi eru flóknari en talið var, einkum á vesturflekanum, og augljóst að mörg þeirra eru enn virk. Flest þessara sprungukerfa eru leifar gamalla sniðgengiskerfa sem fylgdu fyrri gosbeltaflutningum. Yfirborðsjarðhitinn fylgir sprungu-kerfunum eins og skugginn sem gefur til kynna að kerfin séu enn virk. Þar liggur líklega skýringin á því að mikill jarðhiti er á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi en lítill á Austurlandi.

Í þessari úttekt er fundin skýring á meiri háttar rofmislægjum og setlagabunkum sem lengi hafa valdið mönnum heilabrotum. Einnig bendir ýmislegt í efnafræði heits vatns til að kvika sé tiltölulega grunnt undir Vestfjörðum.

Þegar litið er á sprungukerfin vaknar grunur um að huga þurfi að skjálftahættu á vestanverðu landinu í þessu nýja ljósi.

Kort: Jarðfræðikort af Íslandi. Berggrunnur. Sjá nánar á vef NÍ.




Tengdir viðburðir


Ný sýn á jarðfræði Íslands
17. des. 2009 13:00
NA - - 000 Óstaðsett


Einkunn

Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Landið: Jarðfræði [38]

Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [418]

Nýleg orð í belg

Auglýst eftir tilnefningum til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Tilnefnd til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs eru í ár; Blái herinn, Eymundur Magnússon í Vallanesi, ...
Guðrún Tryggvadóttir 15. 02. 2012 08:48:
Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:

Fréttir frá: