Fréttir
Blóm í bæ í Hveragerði
Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ er nú haldin í annað sinn, í Hveragerði, en með sýningunni í fyrra var í fyrsta sinn á Íslandi haldin heildstæði garðyrkjusýning sem tók mið af faginu í heild sinni. Garðplöntur, afskorin blóm, skrúðgarðyrkju, blómaskreytingar, landslagsarkitektúr, grænmetisræktun og annað sem tengist græna geiranum á Íslandi mátti sjá á sýningunni. Ýmsar uppákomur voru í gangi alla helgina í blíðskaparveðri, en um 40.000 gestir sóttu hátíðina heim.
Á síðasta ári tók Náttúran.is þátt í sýningunni með bás í íþróttahúsinu auk þess sem nýr þjónustuliður „Eldhúsgarðurinn“ var kynntur með raunverulegum lifandi Eldhúsgarði í Skrúðgarðinum. Í ár munum við vera aftur með bás í íþróttahúsinu þar sem við kynnum gestum okkar starfsemi.
Mikið hefur gengið á í undirbúningi fyrir sýninguna og nú, kvöldið fyrir opnunardaginn, er Hveragerðisbær eins og klipptur út úr ævintýri. Gamalt hrörlegt hús við grunnskólann hefur fengið á sig Hans og Grétu útlit, garðar í bænum eru skreyttir sem aldrei fyrr, hringtorg bæjarins og allar götur, göngustígar og ljósastaurar eru skreyttar í takt við titil sýningarinnar „Börn og ævintýri“.
Það er ótrúlegt að sjá hve samstillt átak margra fagaðila getur komið í framkvæmd. Eins hefur fjöldi sjálfboðaliða komið að verki og fangar á Litla Hrauni lagt til ýmsar fígúrur og blóm til að skreyta bæinn með.
Samstarfsaðilar Hveragerðisbæjar um sýninguna Blóm í bæ eru: Hveragerðisbær, Samband Garðyrkjubænda og undirfélög, Landbúnaðarháskólinn að Reykjum, Félag Íslenskra Landslagsarkitekta, Félag blómaskreyta, félag skrúðgarðyrkjumeistara, Garðyrkjufélag Íslands, Grænn markaður og Sölufélag Garðyrkjumanna.
Elfa Dögg Þórðardóttir, umhverfis- og mannvirkjafulltrúi Hveragerðis á heiðurinn að skipulagi sýningarinnar. Sjá nánar um Blóm í bæ á www.blomibae.is.
Mynd: Hluti af Hans og Grétu húsinu fyrir framan íþróttahúsið við Grunnskóla Hveragerðis, ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Landið
- Útivera
- Viðburðir
Viðburðadagatal
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 06:45

Tengt lesefni:
Landið: Útivera [37]
Útivera: Afþreying [8]
Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [282]
Viðburðir: Sýningar [50]
Viðburðir: Útivera [38]
Grænar síður:
Landið: Útivera [18]
Útivera: Afþreying [30]
Viðburðir: Útivera [3]
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















