Fréttir
Litlu álfaspáspilin
Litlu álfaspáspilin komu út um Jónsmessuna í fyrra. Þessi einstöku spil eru gerð af Ragnhildi Jónsdóttur myndlistarmanni og spámiðli en Raghnhildur byggir spilin á sambandi sínu við álfheima og íslenska náttúru.
Í inngangi í litla bæklingnum sem fylgir stokknum með Litlu álfaspáspilunum segir:
„Á Íslandi hefur trú á álfa og hulduverur fylgt okkur frá upphafi landnáms. Landnámsmenn hafa tekið þessa trú með sér frá Írlandi og Noregi eða skulum við segja höfðu næmnina og viljann sem þarf til að upplifa þetta líf í Náttúrunni. Margir eru tengdir þessum verum enn í dag en þora varla að tjá sig um það eða taka því sem léttri ímyndun.
Það er frjálst val þitt hvort þú lítur á þessar sögur sem ævintýri eða hvort þú tekur þeim sem sannleika. En hugsaðu um það næst þegar þú horfir á hraunklett eða holtagrjót, ...býr kannski heil fjölskylda þarna?
Ég ólst upp í nágrenni Hellisgerðis í Hafnarfirði. Sá garður er þéttbyggður hinum ýmsu hulduverum. Þessar verur voru hluti af æsku minni, hluti af leikfélögunum.“
Í bæklingnum eru leiðbeiningar um hvernig spilin eru notuð og útskýringatexti fyrir hvert spil, bæði á íslensku og ensku. Hægt er að spyrja spilin spurninga eins og; Hvaðan kem ég? Hvað tek ég með mér áfram? Hver er staða mín? Hvað gerist næst? O.s.fr. en litlu álfaspáspilin eiga að hjálpa okkur að finna svörin við þessum spurningum innra með okkur.
Spilin fjalla um táknmyndir eins og:
Trjáveru, Dverg í hól, Álft, Vatnadís, Stein í veginum, Hreiðurgerð, Hellisgerði, Huldukonuna Púldu, Blómagarð, Hulduverur, Kríu, Vind, Landslag, Fjársjóðskistu, Fræðarann í Hvalfirði, Kisur, Íslenskan fjárhund, Fugl í sjálfsköpuðum vanda, Svartálfa, Dverginn og blómið, Fjallatívi, Krumma, Þingvelli, Uglu, Hvönn, Verndarengil o.fl.
Einkunn
- Heilsan
- Náttúrumarkaður
Orð í belg
Tengt lesefni:
Heilsan: Andlega hliðin [16]
Náttúrumarkaður: Bækur [21]
Náttúrumarkaður: Íslenskar vörur [8]
Grænar síður:
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:

















Guðrún - mánudagur 26. júlí, 2010 klukkan 22:54:40
Þetta eru alveg ótrúlega skemmtileg spil. Ég á stokk sjálf og finnst gott að grípa í hann öðru hvoru.